miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Ævintýraleg helgi

Ég fór suður um helgina þar sem við fögnuðum afmæli mömmu. Á föstudagsmorgni komu Anna Sigga, Gunna og fjölskyldur og vorum við með morgunkaffi fyrir mömmu. Seinni part dags var síðan keyrt úr bænum og stefnan tekin á Flúðir þar sem við áttum pantaða 2 sumarbústaði. Þegar þangað kom runnu á okkur tvær grímur, það var fólk í báðum bústöðunum. Kvittanir voru dregnar upp og þetta virtust vera réttu bústaðirnir en á kvittununum stóð hvað ætti að vera í hverjum bústað, hvar lykillinn var, hvernig ætti að nálgast lykilinn og að bústaðirnir voru greiddir. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að greiðslan hafði ekki borist og bústaðirnir því leigðir öðrum (þrátt fyrir að þeir sendu kvittun fyrir því að allt væri greitt). Nú voru góð ráð dýr og bjuggumst við alveg eins við að hafa sumarbústaðaferð í Reykjavík auk þess sem ekkkert náðist í Gunnu og fjölskyldu sem voru á leiðinni úr bænum. Það tókst samt að redda okkur bústað í Úthlíð og stefnan tekin þangað.

Þá kom að því sem margir hafa beðið eftir í mörg ár, landafræðin klikkaði hjá pabba. Á gatnamótum var beygt í vitlausa átt og snúið við eftir langan akstur (þetta voru að vísu ekki nema nokkrir kílómetrar en hitt er skemmtilegra). Við gátum fengið 2 litla bústaði en völdum frekar 1 þokkalegan stóran og vorum við 12 stykki í honum. Þarna var heitur pottur og gufa og fínt veður. Menn lögðust að sjálfsögðu í pottinn, grilliðu, átu mikið en gufan var ekki orðin heit fyrr en um kvöldið þegar allir lágu afvelta af ofáti og var hún því ekki notuð. Helgin heppnaðist í alla staði vel, þrátt fyrir smá byrjunarörðuleika.

Ferðalagið austur á mánudagsmorgni var í lengra lagi. Biðröðin í flugstöðinni náði út á plan. Okkur var síðan troðið inn í rútu og keyrt til Keflavíkur þar sem þota beið okkar en Reykajvíkurflugvöllur var lokaður vegna þoku. Hér fyrir austan var síðan að sjálfsögðu sól og blíða eins og alltaf (svona næstum því..) en ég kom ekki á Reyðarfjörð fyrr en eftir hádegi. Í gærkveldi var ég síðan á Vopnafirði þar sem var borgarafundur um val á leið fyrir veg. Menn þar voru auðvitað ekki sammála og var nokkuð fjör, þó engin slagsmál.

Bíllinn minn liggur á dánarbeðinu núna. Er búinn að panta mér nýjan Subaru Impreza, fæ vonandi að vita núna á eftir hvenær hann kemur. Ef einhvern vantar Nissan Sunny Wagon '91 sem þarfnast viðgerða þá endilega hafa samband ;)

kveðja úr sólinni (sem er farin að skína á öll húsin í bænum)
Magnús

föstudagur, febrúar 04, 2005

Þá er kominn nýr mánuður og kominn tími til að setja inn smá línu. Þorrablótið var að sjálfsögðu mjög gott. Það var meira að segja gert grín að einu atviki sem ég átti þátt í, aðallega þó bóndanum sem kom á eftir okkur þegar við vorum að mæla og færðu okkur alla hælana sem við höfðum stungið niður. Það tók 2 daga að fyrir einn mann að setja hælana aftur á réttan stað.

Um síðustu helgi átti að vera snjóflóðaleitarnámskeið. Við vorum farnir að halda að námskeiðið fælist í því að leita að snjóflóðum en ekki í þeim enda lítið orðið eftir af snjó. Við fórum tveir á Seyðisfjörð kvöldið fyrir námskeiðið og kíktum á barinn hjá félaga okkar þar. Hann lét okkur líka hafa heilt hús til að gista í, ekki slæmt. Þarna var hávaða rok og bjuggumst við alveg eins við því að verða rifnir út til að elta þakplötur og ruslatunnur um bæinn en sem betur fer fengum við að sofa í friði. Ekkert varð af námskeiðinu þessa helgi þar sem enginn kennari kom, ófært með flugi vegna veðurs. Aðfaranótt sunnudags vaknaði ég tvisvar við píp í símanum mínum, allt á hvolfi á Norðfirði. Þar voru þakplötur, grjót o.fl. að skemma glugga og bíla og bátar losnuðu og strönduðu í höfninni. Við seinna útkallið fór ég niður í björgunarsveitarhús á Reyðarfirði þar sem textinn gaf benti til þess að allt væri á hvolfi á öllu austurlandi, sem ég gat alveg trúað miðað við veðrið. Eina sem ég gerði þessa nótt var að kíkja á rúntinn um bæinn kl. 5 um morgun enda voru engin vandamál hér, þrátt fyrir byggingaframkvæmdir og misgott ástand húsa. Vindur í Oddskarði fór í 51 m/s þessa nótt.

Stefnan er tekin á Akureyri í næstu viku og síðan á að halda snjóflóðaleitarnámskeið 12. feb. Menn bíða eftir því hvort að það fjúki út í veður og vind aftur og hvort það verði snjór fyrir okkur. Helgina þar á eftir er stefnan tekin suður um eina helgi, sumarbústaðaferð með fjölskyldunni. Framundan er einnig undirbúningur vegna landsæfingar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem verður í byrjun apríl. Við sjáum um sjóbjörgunarhlutann, reynum að hafa það blautt og kalt :)

kveðja úr snjónum (sem fer líklega eftir helgi)
Magnús