Gleðilega hátíð. Það er kominn tími til að skrifa held ég. Jólin eru að sjálfsögðu búin að vera fín, nóg að éta og fullt af fólki að heimsækja og örlítill tími fyrir lestur og afslöppun, gerist vart betra. Við vorum hjá Önnu og Gunna á aðfangadag og fengum að sjálfsögðu dýrindis mat þar. Þær systur Malín og Rakel voru eins og englar þrátt fyrir pakkaflóð og allt umstangið. Síðan tóku við fastir jólaliðir, matur í Klapparbergi á jóladag, heimsóknir, ofát og bókalestur. Annan í jólum var eldað hreindýr og tókst það bara mjög vel. Eini gallinn var að veiðimaðurinn lá heima með hita og missti því miður af veislunni og fannst honum og okkur það mjög súrt. Í gær, þriðja í jólum, var síðan öll stórfjölskyldan á jólaballi en því miður varð ég að stinga af þegar jólasveinarnir höfðu yfirgefið samkvæmið. Ég fór að hitta konurnar af ganginum þar sem ég bjó í Lundi. Alltaf gaman að hitta þær.
Áramótin nálgast hratt með tilheyrandi sprengingum, meira ofáti og fleiru skemmtilegu. Eins og flestir hafa líklega tekið eftir hafa björgunarsveitir víða á landinu staðið í ströngu undanfarið, hvort sem það er við að elta trambólín og þakplötur í vondu veðri, draga upp fasta bíla, sinna strönduðum skipum, grafa hús upp úr skriðum eða eitthvað annað. Eins og menn vita er þetta allt saman gert í sjálfboðavinnu og eru menn tilbúnir hvenær sem sólarhringsins allt árið. Ég er að vísu hálf undarlegur í þessu þar sem ég er yfirleitt allt annarsstaðar á landinu þegar ég fæ útkall en ég telst líklega seint sem eðlilegur..... :) Á bak við þann tíma sem fer í útköll liggur ennþá meiri tími í æfingar, námskeið, viðhald á búnaði, fjáraflanir o.fl. einnig í sjálfboðavinnu. Öll útgerð björgunarsveita er mjög dýr, hús, bílar, bátar, sleðar.... og viðhald á öllu saman því eðli málsins samkvæmt er mikið slit á hlutunum. Mikilvægasta fjáröflun fyrir allt þetta er sala á flugeldum. Ég vil því hvetja fólk til að versla við aðildarfélög Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og styrkja þá 2000+ aðila sem eru um allt land tilbúnir að koma til hjálpar hvenær sem er.
kveðja
Magnús (sem er meira að segja í burtu í þessari fjáröflun..)
ps
set niðurstöður úr könnuninni inn síðar, það er enn hægt að taka þátt.
Nýjar myndir
Fyrir 17 árum













