Það er búið að vera nóg að gera undanfarið. Landsæfingin heppnaðist hreint ágætlega. Við fengum fínasta veður til að sigla bátunum frá Norðfirði yfir á Reyðarfjörð þar sem við komum fyrir dúkkum í fjörunni og á hafsbotni. Veðrið á æfingardaginn var líka mjög fínt, sól og blíða meirihluta dagsins. Æfingin tókst ágætlega þrátt fyrir að kafararnir fyndu ekki allar dúkkurnar (verkefni fyrir kafarana hérna þó líkur á að þær finnist fari hverfandi). Að vísu held ég að þeir sem hirtu dúkkurnar upp úr fjörunni hafi "drepið" sjúklingana, líklega hafa þeir gleymt að lesa á miðana sem sögðu hvað amaði að þeim. Ég náði að komast í heilar 2 sekúndur í sjóvarpsfréttirnar þar sem við vorum á hraðbjörgunarbáttnum að æfa okkur að leggja upp að skipi á ferð, ég er orðinn frægur :) Þyrlan kom líka og fengum við að æfa móttöku á sigmanni og lækni í björgunarskipið á ferð og að senda sjúkling í börum upp í þyrluna. Fín æfing þar enda hefur maður aldrei gert slíkt áður auk þess sem það var fínt að fá að gera eitthvað annað en sitja og horfa á aðra og passa að þeir fari sér ekki að voða. Eftir æfinguna var siglt til baka en veðrið var aðeins farið að versna og komnar öldur og fínerí.
Skömmu eftir þetta var ferðinni heitið til Köpen og Lundar. Ég gisti hjá Stefáni og fjölskyldu og eru þau ekkert nema höfðingjar heim að sækja. Mér tókst líka að hitta Skúla og Lilju og Tínu hittum við Stefán eftir mikla leit af partýi sem okkur var boðið í við Kristianshavn. Ráðstefnurnar í Lundi voru mjög fínar en best var samt að hitta gömlu skólafélagana frá Lundi, suma sem maður hafði ekki séð í 6 ár. Merkilegt hvað fólk breytist lítið, nokkur börn og minna hár hjá sumum en það var eins og maður hefði hitt alla fyrir nokkrum dögum en ekki nokkrum árum.
Ég er síðan nýbúinn að ganga frá miðum aftur til Köben. Stefán og hljómsveitin hans Hekkenfeld eru að fara að halda útgáfutónleika sama kvöld og Evróvision er og ég ákvað að skella mér á herlegheitin.
Ég mun síðan vonandi henda inn myndum frá Landsæfingu og utanlandsferð(um) fljótlega. Annars er ég líklega að fara að flytja heimasíðuna mína og fréttaskotið en það fer eftir því hvort netfyrirtækið getur lagað tenginguna mína eða ekki.
