Helgina eftir þetta, þ.e. um Hvítasunnuhelgina, fór ég enn eina ferðina í fjárhúsin hans Skúla á Norðfirði þar sem Austurland Rústabjörgun ásamt Dalvíkingum tók vel á því í æfingum. Ég er kominn með nýjan svefnpoka þannig að mér var ekki kalt eins og síðast, í raun hefði ég viljað hafa kaldara til að prófa pokann betur :) Á leiðinni á Norðfjörð gistum við á Egilsstöðum og þegar við vöknuðum sáum við að Hvítasunnuhelgin ber nafn með rentu eins og sést á myndinni hér að neðan.
Helgina þar á eftir kom ég suður en Kiddi frændi og Helga voru að gifta sig. Allt fór vel fram og bæði sögðu JÁ á réttum stað. Sjómannadagurinn var þessa sömu helgi og er þetta í fyrsta sinn í mörg ár sem ég geri ekki neitt þann dag. Það var að vísu hringt í mig til að fá mig í siglingu þennan dag en að sjálfsögðu var ég í vitlausum landshluta. Annars er það hálf sorglegt að það er ekkert um að vera hér á Akureyri þennan dag lengur.
Um síðustu helgi var ég loksins hér fyrir norðan, fyrsta sinn í nokkurn tíma sem það gerist. Ég fór að vísu að veiða austur í Ljósavatni og fékk þar þrjá fiska á um þrem tímum. Þetta er mun betra en ég bjóst við. Ég er líka búinn að dusta rykið af haglabyssunni og fara á veiðar með henni og liggja nokkrar leirdúfur í valnum uppi á skotsvæði :)
Annars er sumarið loksins komið hér fyrir norðan held ég, það er að vísu frekar kalt eins og er og spurning hvort við þurfum að bíða fram á vetur til að fá hlýindi eins og voru í apríl. En sólin vinnur hitaskortinn upp, sérstaklega ef það er ekki mjög hvasst og hægt að finna sér gott skjól.

