miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Heimsókn frá Eistlandi

Já, ótrúlegt en satt. Ég var í sól og blíðu alla síðustu viku. Það kom hópur frá alþjólegu björgunarsveitinni í Eistlandi og heimsótti Austurland rústabjörgun í síðustu viku. Þegar ég kom austur á mánudegi voru þeir að "bjarga" dúkkum úr gili á móti þorpinu í Fáskrúðsfirði. Þarna var hitinn um 20 stig, sól og blíða. Á þriðjudegi fórum við með þá upp á jökul og leifðum þeim að prófa ísklifur og á miðvikudegi fórum við í Dimmugljúfur við Kárahnjúka. Við fórum niður í gljúfrið og það er alveg jafn svakalegt að sjá þaðan og ofanfrá. Eftir Dimmugljúfur fórum við á Mývatn og eistarnir vissu ekkert hvaðan á sig stóð veðrið þegar við sögðum að við værum að fara í bað og örkuðum með þá út í hraunið í svarta myrkri. Þeir voru ekkert síður hissa þegar við klöngruðumst niður í 5 metra djúpa sprungu og böðuðum okkur í 40 gráðu heitu vatni.

Daginn eftir var farið í hellabjörgun á Mývatni þar sem mýið var að gera suma alveg brjálaða. Ennþá var sól en aðeins farið að kólna (ekki nóg út af flugunni samt). Á föstudegi var farið á Norðfjörð og siglt þaðan yfir í Viðfjörð. Við fórum með Hafbjörginni (björgunarskipið) og síðan skiftumst við á að fara með Glæsi (hraðbjörgunarbáturinn). Ég fékk að endurnýja kynnin af Glæsi sem var síður en svo leiðinlegt. Spurning hvað þeir Svenni og Ingvar Stefán gera við mig næst þegar ég hitti þá, stökk aðeins of mikið í eitt skiftið. Í Viðfirði var síðan skemmt sér og farið í gufu, ofninn er viðarkinntur meira að segja (ekkert rafmagn). Á laugardeginum var síðan haldin grillveisla á Egilsstöðum með öllu tilheyrandi og farið á ball með Hjálmum eftir það, svaka fjör.

Það er skemmst frá því að segja að Eistarnir voru himinlifandi yfir þessu öllu saman. Þeir fengu að reyna fyrir sér í fjallabjörgun en fjöll eru álíka algeng í Eistlandi og í Danmörku. Það voru allir þreyttir en mjög ánægðir að vikunni lokinni. Myndir munu koma á heimasíðu Austurlands rústabjörgunar á næstunni en það er verið að safna þeim saman núna, fleiri hundruð eða þúsund stykki.

Einhverra hluta vegna er ekki hægt að setja myndir inn á þessa síðu í augnablikinu og er ég enn að reyna að finna út úr því hvers vegna það er. Ég vona að ég finni einhverja lausn á því fljótlega svo ég þurfi ekki að búa til fjallabaksleið til þess.

Með kveðju að norðan (engin sól hér núna)
Magnús

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Nýtt útlit

Eins og sjá má þá hefur síðan fengið "extreme makeover" hjá mér. Einhverra hluta vegna virðist ekki vera hægt að setja myndir inn á síðuna í augnablikinu en ég vona að það komist í lag fyrr eða síðar.  Til að skrifa þá þarf að velja "skrifa fréttaskot" hérna uppi til hægri, leiðbeiningar um notendanafn og lykilorð er að finna efst á síðunni. Ef einhver vill skrifa og lendir í vandræðum er alltaf hægt að hafa samband við mig.

Munið að þetta var upphaflega ætlað fyrir alla fjöslkyldulimi og mamma og pabbi eru búin að lofa því að nota þetta þegar þau eru úti (vonandi að hægt verði að setja inn myndir).

Kveðja
Magnús

laugardagur, ágúst 12, 2006

Hreindýraveiðar
Ég var að koma austan af Fljótsdalsheiði með Gunna og Magga vini hans. Ástæðu ferðarinnar má sjá hér að neðan, Gunni var að skjóta hreindýr. Eftir nokkurra klukkutíma leit fundum við hóp og þurftum ekki að ganga nema 2,5 km að þeim, skríða um 100 metra og eitt skot. Nokkuð gott miðað við fyrsta skiptið. Leiðsögumaðurinn kom síðan nær með bíllinn og þurftum við því bara að bera dýrið um 900 m til baka. Þetta var belja, kálfurinn kom ekki aftur og hefur líklega bjargað lífi sínu með því. Þegar búið var að hreinsa dýrið og flá það var það 41 kg. Um kvöldið voru það því þreyttir en ánægðir veiðimenn sem grilluðu gæsabringur og fóru snemma í háttinn, þrátt fyrir plön um annað :) Hægt er að sjá myndir úr ferðinni (varúð, smá blóð á sumum) hér ásamt nokkrum fleiri myndum. Af einhverjum ástæðum eru íslenskir stafir í rugli á nýju síðunum en ég hef ekki komist í það að finna út hvers vegna.

Kveðja
Magnús