sunnudagur, desember 30, 2007

Grein í flugeldablaði Súlna

Í framhaldi af kjaftaganginum hjá mér um flugeldasölu sá ég að félagar mínir fyri norðan hafa fengið ýmislegt að gera, m.a. að koma böndum á bátinn Húna sem er að verða eitt af kennileitum Akureyrar. Eins sá ég að á heimasíðunni hjá Súlum er komið flugeldablaðið í ár en ég skrifaði þar um Eistlandsferðina sem ég fór í núna í haust og skrifaði um hér á bloggið. Blaðið má sjá á pdf-formi hér.

kveðja
Magnús

Áramót og fastir liðir

Núna nálgast áramótin eina ferðina enn. Eins og lög gera ráð fyrir hef ég varið síðustu dögum í ofát og reynt að hitta ættingja og vini til að éta og drekka meira. Jólin hafa bara verið hin ánægjulegustu og baráttan við aukakílóin hefur gengið vel, held ég hljóti að hafa bætt einhverjum við :)

Það eru tveir liðir orðnir fastir í þessu rausi mínu hér í kring um þennan árstíma, að kvarta yfir því hvað verslunarmenn (sumir) kunna lítið á dagatal og að reka áróður fyrir því hvar fólk verslar flugelda. Þegar ég skrifa þetta sit ég inni í hlýjunni og hlusta á rigninguna úti en félagar mínir úr ýmsum björgunarsveitum eru ýmist hundvotir að eltast við fjúkandi rusl eða í brjáluðu veðri upp á Langjökli til að koma jeppafólki sem þar sat fast til byggða. Þetta bætist ofan á nokkur óveður fyrir jól, slys og annað sem björgunarsveitarmenn hafa þurft að kljást við en þess á milli hafa menn reynt að koma flugeldasölunni í gang og selja eitthvað púður fyrir áramótin. Eins og fólk veit þá er þetta allt gert í sjálfboðavinnu og er fólk til taks allan sólarhringinn allt árið. Allt kostar þetta mikla peninga og krefst dýrs búnaðar sem þarf alltaf að vera í lagi. Fjármögnun þessa alls byggist eins og starfið á sjálfboðavinnu og er flugeldasala lang stærsta fjáröflunin, um 80-90% af heildartekjum hjá mörgum sveitum. Í dag eru einkaaðilar farnir að selja flugelda í samkeppni við björgunarsveitir, íþróttafélög og góðgerðarfélög sem hafa notað þetta sem fjáraflanir. Þessir einkaaðilar stinga ágóðanum í eigin vasa og minnka ágóðan hjá hinum. Ég hvet því alla sem kaupa flugelda á annað borð til að versla við björgunarsveitir, jafnvel þó í einhverjum tilfellum sé um dýrari vöru að ræða (þekki ekki hvort svo sé samt). Verst er að veðurspáin er kanski ekki beint flugeldavæn en maður má alltaf vona.

Með flugelda kveðjum
Magnús

þriðjudagur, desember 25, 2007

Gleðileg jól..

..og farsælt komandi ár
Posted by Picasa

miðvikudagur, desember 19, 2007

Jólin nálgast.....

Þar kom að því að ég fengi formlega kvörtun yfir málæðinu mínu hérna. Ég skil það að vísu vel þegar ég skoða skrifin mín hérna. Síðasta sem ég sett inn var kvörtun yfir því hvað jólin koma snemma og síðan er liðinn rúmur mánuður. Jólin eru að koma þannig að ég get farið að lýsa gleði minni með allt jólastússið :)

Það er ýmislegt búið að gerast síðan ég skrifaði alminnilegan fréttapistil hérna. Eins og sjá má hefur fjölgað í fjölskyldunni og var stúlkan skírð núna um síðustu helgi. Hlaut hún nafnið Helga Margrét Eyfeld Ingimarsdóttir. Mamma var líka í skýjunum þegar hún heyrði nafnið fyrst og ég held að eins hafi verið um mömmu Ingimars.

Í síðastu alvöru skrifum sagði ég frá Eistlandsferðinni. Núna er ég að spóla til baka á harða disknum í hausnum (sem er lítill og hægur og hefur alltaf verið slappur) til að rifja upp hvað ég hef gert mér til dundurs síðan þá. Rétt eftir að ég kom frá Eistlandi/Danmörku fór ég með mömmu og pabba til Amsterdam. Við stoppuðum þar í 3-4 daga áður en við héldum til Parísar þar sem við pabbi vorum að fara á ráðstefnu. Ferðin var fín og margt forvitnilegt var á ráðstefnunni. Eitt af því sem við lærðum vel var að frakkar eru ekki góðir í að skipuleggja. Besta dæmið var lokahófið hjá þeim sem byrjaði Scala-dinner, fór yfir í Scala-night, svo yfir í Scala-reception en var í raun Scala-fiasco í lokin (ég fór svangur og pirraður heim). Flugeldasýningin var samt flott. Ferðin var samt mjög fín, fínasta veður mestan tímann og borgin er náttúrulega alveg frábær. Amsterdam var líka frábær, róleg og notaleg.

Í október var taka tvö á landsæfingunni á suðurlandi. Það fór nokkur hópur frá Akureyri að þessu sinni og ákvað ég að slást í bílahópinn þar sem engin rústahópur fór að norðan eða austan og ég taldi að ég væri ekki nógu mikill fjallamaður fyrir spottana. Við fengum mikla æfingu í að bíða og bíða meira og smá snatt inn á milli. Fengum að vísu eitt fínt verkefni þar sem reyndi á skyndihjálp og flutning sjúklings en því miður var verkefnið búið eftir að við skiluðum fyrsta sjúklingnum af okkur. Að vísu fengum við að flytja annan sjúkling áður en hann var kominn á börur þegar við komum og áverkarnir áttu að vera þannig að við bara þurftum að keyra hann (ekki einu sinni hægt að tala við hann). Aðrir hópar en bílahópar voru að vísu hæst ánægðir með æfinguna þannig að við vorum bara óheppnir held ég.

Helgina eftir þetta komu gömlu félagarnir héðan að sunnan og slógum við Magni upp villibráðarveislu fyrir þá með rjúpu, gæs og hreindýri. Helgin heppnaðist frábærlega vel, allir fengu að prófa að skjóta úr byssu, sumir í fyrsta skipti, maturinn var alveg frábær og síðan var skemmt sér fram undir morgun eins og lög gera ráð fyrir.

Eftir þetta var ég fyrir sunnan eina helgi en áður var farið í skoðunarferð um Snæfellsnes til að skoða framkvæmdir utan okkar svæðis. Við fengum gott veður og náðum að sjá næstum alla vegi sem er búið að eiga við á því svæði undanfarin ár.

Maggi Gauti frændi kom norður eina helgi og að sjálfsögðu fékk hann að smakka hreindýr áður en við kíktum á lífið á Akureyris. Mamma og pabbi komu um daginn norður og fengu líka hreindýr (gaman að geta boðið upp á svona eðal mat). Við fórum líka í leikhús og sáum Ökutíma. Magnað leikrit sem ég mæli eindregið með. Núna er ég kominn suður í borg óttans og verð hérna um jólin og fram yfir áramót. Þar sem ég kvartaði svo mikið yfir snemmbúnum jólum fyrir .... einum og hálfum mánuðu næstum því þá verð ég að segja að Akureyringar eru mun duglegri að skreyta en höfuðborgarbúar (jólin komu bara of snemma í Rúmfatalagernum, allt mun seinna en hér fyrir sunnanm, tengsl þarna á milli?). Eftir að ég kom er ég búinn að fara í skírn, laufabrauðsgerð og fara út að borða með fjölskyldunni og næst er kanski að reyna að kaupa nokkrar jólagjafir.

Veiðitíminn fyrir gæs og rjúpu lauk með meira plássi í frystinum (átum það sem til var af fugli og ekkert bæst við) en nokkurra kílómetra göngu í misgóðu veðri. Í björgunarsveitinni er ég búinn að gera nokkra bílstjóra vitlausa með spurningum í umferðarkönnun, fara á námskeið í leitartækni og taka þátt í leitaræfingu. Ég var einn af þremur sem var tíndur á æfingunni sem var alveg ný reinsla fyrir mig. Það gékk að vísu fólk fram á mig þar sem ég lá í snjónum og skildu ekkert í því hvað ég var að gera en eftir að mér tókst að sannfæra þau um að það var í raun í lagi með mig var bara að liggja áfram og bíða eftir að nýliðarnir fyndu mig. Nýliðarnir fundu okkur alla (snjórinn sem var þarna auðveldaði þetta líka fyrir) og hjúkruðu okkur bara þokkanlega og stóðu sig vel, sérstaklega með tillit til þess að þetta voru allt aðilar í nýliðaþjálfun.

Læt þetta duga í bili, veit ekki hvort þetta verði síðasta bullið á þessu ári en ætla ekki að lofa neinu, af eða á.

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Jólin eru í DESEMBER........

Einu sinni enn var ég á ferðinni í bænum, 2 MÁNUÐUM fyrir jól og viti menn, verslunareigendur kunna ekki á dagatöl frekar en undanfarin ár. Því set ég þetta eina ferðina enn hérna inn



Fyrir ári síðan skrifaði ég þetta hér
Fyrir tveimur árum síðan skrifaði ég þetta
Ég er alveg viss um að ég láti svipaða ræðu flakka að ári, en maður verður jú einhvern veginn að komast í jólaskapið ......

mánudagur, október 22, 2007

Nýr fjölskyldumeðliimur

Í nótt fæddi Gunna hrausta stúlku, 15 merkur. Þeim mæðgum heilsast vel eins og sjá má á myndinni.

 
Posted by Picasa

sunnudagur, október 07, 2007

Tehumardi 2007

Jæja, núna er ekki nema aðeins meira en nokkrir dagar síðan ég var í Eistlandi og Danmörku. Ferðin hófst má segja á Egilsstöðum þar sem utanfarar í Austurland rústabjörgun og Björgunarsveitinni á Dalvík söfnuðust saman kvöldið fyrir flugið út (fimmtudagskvöld). Þar beið okkar "hjálparbeiðni" þar sem sagt var að mikið óveður hefði ollið miklu tjóni og miklum flóðum og beðið var um 35 manna hóp til aðstoðar. Við urðum að sjálfsögðu við þessari beiðni á mettíma enda voru 33 manns tilbúnir í slaginn. Það var því sent svar þar sem sagt var að 33 manna hópur kæmi með hraði en að Eistlendingarnir þyrftu að útvega okkur búnað, mat, vatn, farartæki og mikið af kæstum hákarli. Einhverra hluta vegna tókst þeim ekki að útvega hákarl.....

Á föstudegi var flogið til Köpen þar sem gert var stutt stopp áður en flogið var til Tallinn. Þegar til Tallinn var komið beið okkar rúta sem keyrði okkur áleiðis til eyjarinnar Saaremaa þar sem "skaðasvæðið" var. Gist var á slökkvistöð og síðan ræst eldsnemma daginn eftir og allir gerðu sig klára í aðgerðir.

Þegar komið var með ferju til eyjarinnar Muhu, sem er tengd Saarumaa með brú, beið okkar "tollskoðun" þar sem nýir landamæraverðir fengu það hlutverk að skoða pappíra og fleira. Þarna var móttaka með byssum og leitarhundum og sumir enduðu í járnum og öllum pakkanum (eistneska sjónvarip var þarna líka). Eftir þetta var síðan keyrt áleiðis til Tehumardi þar sem aðal æfing fór fram.

Þar tók á móti okkur hervörður enda fór herinn með öll mál vegna hins "ógurlega óveðurs" sem þarna hafði geysað. Þegar rútan stoppaði sáum við hermenn með alvæpni á vappi við rútuna og þegar horft var lengra í burtu sáust hermenn um liggjandi um allan skóg með byssunarnar mundaðar í átt að rútunni. Ekki tók betra við þegar litið var fram fyrir rútuna þar sem var búið að reysa sandpokavígi og þar var maður með stóra vélbyssu sem var beint að rútunni allan tímann. Þarna þurftum við aftur að sína pappíra og allan þann pakka áður en við fengum að fara inn á svæðið þar sem búðirnar okkar voru.

Við tók hefðbundin bið hjá okkur óbreyttu á meðan stjórarnir okkar funduðu með "yfirvöldum" en vegna ástandsins og þess að herinn fór með öll mál var allt saman mjög hægt í sniðum. Á endanum var okkur svo skipt í hópa þar sem sjúkrahópur, spottahópur, matshópur og rústahópur voru myndaðir. Sjúkrahópur fékk það hlutverk að koma upp sjúkrastöð og matshópur (veit eiginlega ekki hvað hann er kallaður venjulega) fór á rúnt um svæðið til að meta skemmdir og hvaða búnaður og mannskapur væri tiltækur á svæðinu. Spottahópur fékk það hlutverk að koma mönnum og búnaði yfir á sem var ófær fyrir farartæki og rústahópur, já hann fór í rústabjörgun. Ég var í rústahópnum og fengum við eitt stykki alvöru rúst sem voru leifar af sovéskri eldflaugastöð.

Eftir æfinguna var síðan haldin veisla að góðra manna svið en áður var samt landsleikur í blaki, sem við töpuðum því miður. Næstu dagar fóru í að skoða svæðið og að sjálfsögðu kvöldvökur. Á þriðjudegi var haldið heim frá Eistlandi og voru allir kátir og glaðir með ferðina. Stór hluti hópsins ákvað þó að verja nokkrum dögum í Danmörku þar sem farið var í Tivoli og lífið skoðað. Ég hitti síðan Stefán og Steinunni ásamt krökkunum og einnig þá bræður Ara og Halldór. Fórum við síðan á tónleika með hljómsveitinni Police í Árósum og varð maður ekki fyrir vonbrigðum með þá.

Skemmtileg ferð og lærdómsrík æfing. Með því að smella á myndina hérna fyrir neðan má sjá nokkrar myndir úr ferðinni.

Magnús ferðalangur

Tehumardi 2007

laugardagur, ágúst 18, 2007

Veiðivötn aftur

Eins og oft áður þá hef ég verið afskaplega latur við að skrifa. Eftir veiðivatnaferðina með strákunum komu mamma og pabbi norður og voru í sumarsbústað í Skagafirðinum. Ég kíkti að sjálfsögðu á þau og var eina helgi þar. Það var mjög notalegt, kíktum á þjólagahátíð á Siglufirði, skoðuðum Vesturfarasetrið á Hofsósi og veiddum í Svartá í Skagafirði þar sem við pabbi fengum sitt hvorn fiskinn (minn var stærri...).

Eftir þetta kíktu mamma og pabbi í heimsókn til mín og að sjálfsögðu þurfti ég að vera í Vopnafirðinum að mæla þegar þau komu. Þau voru síðan hérna í eina viku og fórum við m.a. í Fjörður og ég og pabbi fórum í Ljósavatn að veiða (veiddum líka í Fjörðum í fjörunni og fékk pabbi m.a. einn þorsk, utan kvóta).

Í vikunni eftir að mamma og pabbi voru hérna komu Anna Sigga og Rakel Rán í heimsókn en Malín fékk að vera hjá ömmu sinni á Sigló í eina viku. Þær voru hérna í 2 vikur og kom Malín seinni vikuna. Eins og góðum gestgjafa sæmir stakk ég þær af og fór í Veiðivötn í annað sinn þetta sumarið. Í þetta skiptið fórum við mamma og pabbi með Jóhönnu, Páli, Magga Gauta og Viktor. Við fengum alls konar veður í þetta skiptið, snjóaði meira að segja á okkur. Í heildina var samt veðrið gott eins og hefur verið undan farin ár, þrátt fyrir alls konar sýnishorn í þetta skiptið. Veiðin var þokkaleg, allir fengu fisk og var pabbi aflakóngurinn í þetta skiptið. Ég fékk tvo og var bara sáttur við það enda kom ég ekki tómhentur heim úr ferðinni á undan.

Um verslunarmannahelgina fórum við Magni, Gunni og Maggi vinur Gunna austur á Hérað. Tilgangur ferðarinnar var að grisja hreindýrastofninn fyrir austan og hafði ég leyfi á hreinkú og Gunni á tarf. Eftir smá leit, smá labb (sem sýndi að ég þarf víst að nota líkamsræktarkortið, ekki nóg að eiga það) og nokkra hálfvita sem voru á "veiðum" í kring um okkur og skemmdu fyrir okkur oftar en einu sinni þá tókst okkur að fella bæði dýrin. Ég keypti frysti vegna þessa og ekki veitti af því hann hálffylltist þegar ég fékk kjötið. Núna eru veislur næsta árið hjá okkur. Ég á því miður ekki myndir sjálfur þar sem ég var upptekinn með byssuna en ég set inn myndir þegar ég hef fengið þær frá strákunum.

Um síðustu helgi fengum við Magni bjartsýniskast og skráðum okkur í keppni í leirdúfuskoti. Eins og við var að búast var samkeppnin hörð um neðstu sætin hjá okkur en mér tókst að vera í 2-3 sæti í núll-flokk (af 4 keppendum) með 26 dúfur skotnar af 125. Núna er markmiðið að bæta sig, það væri fúlt að fara niður á við miðað við þennan árangur....

Framundan hjá mér er æfingaferð til Eistlands með Austurland rústabjörgun og Dalvíkingum. Það verður eins dags æfing með alþjóðasveitinni þeirra úti og höfum við í raun ekki hugmynd um hvað þetta verður, sem er bara betra. Eftir þetta verður tekið smá frí í Eistlandi og Danmörku þar sem ég hitti Stefán og Steinunni sem eru þar á þvælingi.

Hérna að neðan er hægt að skoða myndir úr Veiðivatnaferð hinni síðari

kveðja
Magnús (sem bíður eftir fyrsta í gæs sem er á mánudaginn).

Veiðivötn júlí 2007

fimmtudagur, júlí 05, 2007

Mér líður þannig....

Ég var um síðustu helgi í Veiðivötnum og þetta var held ég mest notaði frasinn alla ferðina. Það var einn úr hópnum sem notaði þetta stöðugt þannig að það voru allir komnir með þetta á heilann í lokin, svaka fjör :)

Ég fór aftur með strákunum eftir nokkuð langt hlé og fengum við fínasta veður að vanda, enda var ég með. Veiðin var líka mjög fín, allir fóru heim með nóg af fiski en það hefði ekki verið leiðinlegra að ná svona einum stórum þar sem fjöldinn var kominn. En það er ekki hægt að kvarta yfir svona helgi, gott veður, góður félagskapur, smá bjór og fínasta veiði. Hægt er að sjá myndir úr ferðinni með því að velja myndina hér fyrir neðan.

Eftir þetta gerði ég örstutt stopp í borginni og gat notið sumarsins sem var þar, hér fyrir norðan hefur verið svona í svalara lagi undanfarið, samt allt að skrælna úr þurki (þar til nú í dag).

Anna Sigga og öll fjölskyldan var á Spáni í eina viku og komu heim daginn áður en ég kom norður aftur þannig að ég náði að sjá framan í þau, brún og sælleg að sjálfsögðu. Núna er róleg helgi framundan fyrir, kíki í sumarbústað þar sem foreldrarnir verða og nýt lífsins þar eftir bestu getu.

Veiðivötn 2007


Kveðja að norðan
Magnús

fimmtudagur, júní 14, 2007

Núna..

Núna er liðinn mánuður síðan ég skrifaði síðast, sem hlýtur að þíða að það er kominn tími á að sýna smá lífssmark. Þá var stefnan á að koma suður sem ég og gerði. Ég komst í partý hjá Hjalta og Rut, landsþing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar (SL), partý hjá gömlum líffræðinemum (sem höfðu furðulítið breyst á þessum árum síðan síðast), árshátið hjá SL auk þess að kíkja í Brekkó og bæinn. Fínasta helgi eins og við var að búast.

Helgina eftir þetta, þ.e. um Hvítasunnuhelgina, fór ég enn eina ferðina í fjárhúsin hans Skúla á Norðfirði þar sem Austurland Rústabjörgun ásamt Dalvíkingum tók vel á því í æfingum. Ég er kominn með nýjan svefnpoka þannig að mér var ekki kalt eins og síðast, í raun hefði ég viljað hafa kaldara til að prófa pokann betur :) Á leiðinni á Norðfjörð gistum við á Egilsstöðum og þegar við vöknuðum sáum við að Hvítasunnuhelgin ber nafn með rentu eins og sést á myndinni hér að neðan.

Helgina þar á eftir kom ég suður en Kiddi frændi og Helga voru að gifta sig. Allt fór vel fram og bæði sögðu JÁ á réttum stað. Sjómannadagurinn var þessa sömu helgi og er þetta í fyrsta sinn í mörg ár sem ég geri ekki neitt þann dag. Það var að vísu hringt í mig til að fá mig í siglingu þennan dag en að sjálfsögðu var ég í vitlausum landshluta. Annars er það hálf sorglegt að það er ekkert um að vera hér á Akureyri þennan dag lengur.

Um síðustu helgi var ég loksins hér fyrir norðan, fyrsta sinn í nokkurn tíma sem það gerist. Ég fór að vísu að veiða austur í Ljósavatni og fékk þar þrjá fiska á um þrem tímum. Þetta er mun betra en ég bjóst við. Ég er líka búinn að dusta rykið af haglabyssunni og fara á veiðar með henni og liggja nokkrar leirdúfur í valnum uppi á skotsvæði :)

Annars er sumarið loksins komið hér fyrir norðan held ég, það er að vísu frekar kalt eins og er og spurning hvort við þurfum að bíða fram á vetur til að fá hlýindi eins og voru í apríl. En sólin vinnur hitaskortinn upp, sérstaklega ef það er ekki mjög hvasst og hægt að finna sér gott skjól.


 
Posted by Picasa

sunnudagur, maí 13, 2007

Sumar??

Ég set spurningarmerki aftan við titilinn í þetta skiftið. Viku eftir að ég skrifaði síðast var sumarið búið og það er ekki byrjað að vora aftur af neinu viti. Það er búið að vera kalt, næturfrost og það er grátt niður í miðjar hlíðar. Ég er ekki alveg viss hvort það eigi að kalla þetta veður sem er spáð næstu daga vor eða ekki, það nær því alls ekki að vera kallað sumar, svo mikið er víst.

Ég var fyrir sunnan fyrir rúmri viku síðan, það var steggjapartý hjá Kidda frænda. Hann hélt að hann væri að fara í mátun og eitthvað fleira vegna komandi brúðkaups en sá að það var bara helber lygi hjá verðandi konu þegar við birtumst allir í líkamsræktinni til að ná hann. Það var mikið fjör yfir daginn og ég held að allir hafi skemmt sér mjög vel, líka verðandi brúðgumi (fórum ekkert mjög illa með hann).

Núna um helgina var í dyravörslu á kjörstað hérna á Akureyri, maður er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Þetta var ekki mjög flókið, verkið fólst í því að hleypa fólki inn í kjördeild í hæfilega stórum skömmtum og þar sem puttarnir á annari hendi dugðu við talninguna tókst þetta bara þokkalega.

Ég stefni suður núna á miðvikudaginn og fer í partý hjá Hjalta og Rut, partý með gömlum félögum úr líffræðinni, landsþing hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og árshátíð hjá þeim í Keflavík..... Þetta verður svona djamm-ferð núna.

kveðja úr kuldanum
Magnús

sunnudagur, apríl 29, 2007

Sumar

Fyrir viku þegar öll fjölskyldan var hérna var snjókoma, svona til að bjóða sumarið velkomið. Það var meira að segja þannig að við hættum við að fara á Siglufjörð þrátt fyrir að vera á einum jeppa (Hondunni) og fólksbíl sem vill vera jeppi (Subaru). Núna um helgina er þetta pínu lítið öðruvísi. Það er búið vera sól og 18 stiga hiti. Sumarið er komið, amk í bili. Helsti gallinn er að sól og hita hérna fyrir norðan fylgir yfirleitt vindur, maður er kanski orðinn svo góðu vanur að austan þar sem oft (ekki alltaf) var logn eða hæg gola með sólinni, þ.e. þegar henni tókst að brjótast í gegn um þokuna.

Semsagt, sumarið er komið með ylm af.... eh.. þetta er lykt af brunninni sinu..... Spurning hvort mystrið hérna inni í Eyjafjarðarsveit sé vegna sinuelda eða hvort þetta sé hálendið að flýta sér til byggða. Í gær voru stórir reykjamekkir vegna sinuelda. Það verður forvitnilegt að sjá svifrykstölur fyrir þessa daga.

kveðja úr sólinni
Magnús

mánudagur, apríl 23, 2007

Stórheimsókn

Já, ég fékk heldur betur stóra heimsókn um helgina. Mamma, pabbi, Anna Sigga, Gunni, Malín og Rakel komu hingað á miðvikudagskvöldi og voru fram á sunnudag. Eins komu Gunna, Ingimar og Siggi í heimsókn og borðuðum við öll saman grillaða hrossalund á sumardaginn fyrsta. Lundin sem ég hafði keypt var ekki lítil en samt var ekki meira en ein lítil sneið eftir þegar við höfðum lokið okkur af enda heppnaðist þettta frábærlega vel. Fyrr um daginn höfðum við kíkt upp í Hlíðarfjall þar sem Malín og Gunni renndu sér nokkrar ferðir á bleiku þotunni. Malín fékk líka bleikt hjól og Barbie-hjálm, allt bleikt hjá henni þessa dagana.

Á föstudeginum unnum við pabbi en létum restinni eftir að njóta lífsins, nema Gunna og þau sem fóru suður. Malín og Sunna dóttir Magna tóku líka "nokkra" hringi á hjólunum sínum í snjókomunni (gleðilegt sumar..). Um kvöldið borðuðum við síðan afmælismat sem var fasani, dýrindis matur sem ég get alveg mælt með. Malín hafði komið með afmæliskerti til að láta mig blása á sem ég að sjálfsögðu gerði.

Restin af helginni var frekar róleg, ekkert stórkostlegt gert nema farið út að borða á laugardeginum. Það voru allir ánægðir með góða og langa helgi þegar fólkið hélt heim á leið á sunnudeginum.

Hérna fyrir neðan eru myndir úr heimsókninni (veljið myndina).

kveðja að norðan
Magnús

Heimsókn

miðvikudagur, apríl 11, 2007

Páskarnir

Já, núna eru páskarnir búnir eitt árið enn. Ég fór suður að sjálfsögðu og hafði nóg að gera að vanda. Ég kíkti á Blúshátið með Sollu og Viktori og sá þar Klassart, Lay Low og Zora Young sem voru öll mjög góð. Eftir það kíktum við í bæinn á blús-djamm sem var mjög fínt líka. Þetta var stutt kvöld þar sem Föstudagurinn langi ku vera heilagur og allt lokaði um miðnætti. Ég kíkti á Hjalta og nýjasta fjölskyldumeðliminn þar, strákinn hjá Guðjóni, nýju íbúðina hjá Eika auk nokkurra heimsókna. Að sjálfsögðu má ekki gleyma góðum mat eins og gerist á páskunum og smá peningaeyðslu í verslunum. Vel heppnað í alla staði.

Ég keypti líka miða á Police í Danmörku í september þegar ég frétti að ættingjar ætluðu að fara á tónleikana. Þetta passar mjög vel þar sem ég er að koma heim frá Eistlandi í sömu viku og fer í gegn um Köpen þannig að ég framlengi þá ferð pínulítið. Þetta stefnir í svaka fína ferð.

Mamma, pabbi, Anna Sigga og heila familían koma síðan í næstu viku og verða í nokkra daga hér fyrir norðan. Það verður mikið fjör og gott að hafa tvö gestaherbergi :)

Ég sá að það eru komnar 190 heimsóknir á síðuna síðan ég setti teljarann upp, þetta nálgast 200 óðfluga...

Rakel er að "borða" páskalambið á myndinni.
 
Posted by Picasa

mánudagur, mars 26, 2007

Síðasti mánuður

Já, það er kominn mánuður síðan ég bullaði hér síðast, kominn tími á meira bull. Ég er búinn að vera á pínulitlu flakki undanfarið eins og vera ber. Ég var fyrir sunnan fyrir rúmlega viku og fór í ferminguna hjá honum Arnari Má. Svakalega líður tíminn, mér finnst vera svo stutt síðan hann var pínu lítill.

Ég tók þátt í gæslu á Gettu betur um daginn. Eins og við var að búast fór allt vel fram og var þetta einhver rólegasta gæsla sem ég hef tekið þátt í, mun rólegra en lansdmót harmonikkuspilara á Norðfirði meira að segja. Um síðustu helgi átti að fara á Skóga undir Eyjafjöllum á landsæfingu. Vegna slæmra aðstæðna var æfingin felld niður enda hefði þetta orðið meiri bátaæfing en landæfing. Austurland rústabjörgun var ekki alveg á því að æfa ekki neitt og var því haldin æfing í fjárhúsunum hans Skúla á Norðfirði. Ég fór með Dalvíkingum þangað og fengum við góða æfingu þarna. Gist var í Uralnum góða (gamall hertrukkur frá Varsjárbandalaginu með sjúkragám, algjör snilld) og grilluðum í reykhúsinu hans Skúla að æfingum loknum. Ég komst að því að ég þarf að eignast aðeins betri svefnpoka, fyrri nóttin var svolítið köld þrátt fyrir snilldar gistiaðstöðu (kyndingin er bara on/off). Góð helgi í alla staði.

Stefnan er tekin suður um páskana og að sjálfsögðu datt sumum í hug að koma og heimsækja mig á sama tíma. Gengur vonandi betur næst.

kveðja úr vorinu (vor í augnablikinu amk)
Magnús

 
Posted by Picasa

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Hækkandi sól

Já, ég er enn á lífi og miðað við dagsetningu á síðasta pósti frá mér er kominn tími á að ég bulli smávegis með hækkandi sól. Snjórinn fór og er kominn aftur, enda febrúar ekki einu sinni búinn (ég bý nú á norðurhjaranum eftir allt saman). Eins og venjulega hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið. Ég er búinn að fara á snjóflóðanámskeið, bátanámskeið, eina ferð suður og síðan fastir liðir eins og venjulega; vinnan, björgunarsveitin, ræktin (ok, ræktin er á leiðinni að verða fastur liður...)

Ég var fyrir sunnan aðra helgina í febrúar, fór á námskeið í vinnunni og tók smá bæjarferð í leiðinni. Þetta hitti svo skemmtilega á að um þessa helgi hittust gömlu æskufélagarnir og bæði ég og Magni vorum í bænum. Við að sjálfsögðu skemmtum okkur fram á rauða morgun enda ekki oft sem við hittumst allir á sama tíma.

Ég hef ekki komist á veiðar þrátt fyrir mikla löngun. Ég veit ekki hvar maður finnur endur á svæðinu og ekki heldur hvar maður finnur bát til að komast á svartfugl. Síðan þarf maður víst líka að finna tíma fyrir þetta og ekki er verra að hafa þokkalegt veður líka en þetta kemur vonandi fyrr en síðar. Ég sótti um hreindýr og það sama gerðu Gunni og Maggi vinur hans (fórum með Gunna í fyrra). Ég fékk eina belju og Gunni einn tarf þannig að það verður fjör í haust (ok, ég þarf að gera ræktina að föstum lið..). Núna er næsta vandamál að finna út hvenær maður á að komast á veiðar því haustið er þegar orðið nokkuð þétt setið með utanlandsferðir. Einhversstaðar hlýtur samt að vera smá smuga fyrir hreindýrin.

Kveðja úr snjónum
Magnús

 
Posted by Picasa

mánudagur, janúar 15, 2007

Jeppaferð

Ég fór í jeppaferð með björgunarsveitinni Súlum um helgina. Við lögðum af stað frá Akureyri um kl. 8 um kvöldið og eftir að hafa keyrt í snjókomu, byl og engu skyggni, fest okkur nokkrum sinnum og tjónað dekk komum í Laugarfell kl. 3 um nóttina. Svaka stuð :)

Daginn eftir var vaknað við sólarupprás (sem betur fer kom hún seint á loft...) og lagt af stað, fyrst upp Laugarfellshnjúk, inn í skálann Landakot, að skálanum Galtaból og þaðan niður Bárðardal. Eftir smá dekkjaviðgerðir komust við síðan til byggða upp úr kl. 10 á laugardagskveldi. Svaka fín ferð. Hérna eru nokkrar myndir úr ferðinni:



kveðja úr snjónum
Magnús

fimmtudagur, janúar 04, 2007

Gleðilegt ár

Já, það er víst komið 2007, maður þarf að fara að læra það. Jólin og áramótin voru að sjálfsögðu fín og núna er maður kominn norður og byrjaður að vinna aftur. Ég ætlaði að skoða könnunina sem ég setti upp en komst að því að hún var dottin út. Það voru ekki mikil gögn sem töpuðust þar sem aðeins tveir höfðu tekið þátt. Ef ég man spurningar og svör rétt voru þau eitthvað á þessa leið.
  1. Spjallið er flott
  2. Það er lesið einu sinni í viku að jafnaði
  3. Það var enginn úr brekkugerðisfjölskyldunni sem tók þátt í könnuninni
  4. Ég á að halda áfram í óbreyttu formi með sama nafni (samt tók enginn í brekkugerðisfjölskyldu þátt)
  5. Fólk trúir á jólasveina, ýmist 13 stykki eða að ég sé einn svoleiðis
  6. Bjór er góður, ég vissi það fyrir
  7. Allir keyptu flugelda frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
  8. Ég man ekki 2 spurningar
  9. Enginn skrifaði skammir, hrós eða klámvísur...


Er að prófa að setja myndir inn á Picasa Web Albums. Byrja á myndum úr Evrópuferð sem ég var búinn að lofa fyrir löngu, þær er að finna hér: