þriðjudagur, ágúst 26, 2008

Síðan síðast

Núna sannast enn og aftur hvað ég er duglegur að skrifa, að nálgast tveir mánuðir síðan ég var duglegur síðast. Mamma og pabbi komu í heimsókn og höfðum við það mjög gott eins og vera ber. Við fórum í Fjörður og veiddum þar (eða pabbi, ég var að sýnast með flugustöngina). Á föstudeginum ákváðum við að kíkja til Hríseyjar en í ferjunni á leiðinni þangað komust við að því að það átti að halda áfram út í Flatey (á Skjálfanda) þar sem átti að grilla og hafa harmonikkuball. Við ákváðum auðvitað að slá til þannig að Hrísey varð að Flatey. Ferðin var mjög skemmtileg, gott grill og staðurinn mjög fallegur og veðrið lék við okkur.

Eins ákváðum við að kíkja í Gullbringu þar sem við vissum að Unnur og Þórarinn væru þar og að afi og amma væru í heimsókn. Þegar við vorum að koma þangað sáum við bíla renna úr hlaði og að enginn bíll var fyrir utan húsið þannig að við ákváðum að halda bara áfram og sjá hvort þetta væru húsráðendur. Það var svo og ekki nóg með það heldur voru Marta og Siggi þarna líka á ferðinni þannig að þetta varð að fjölskylduferð inn í botn Svarfaðadals. Og enn hélt ættarmótið áfram því Sveinn og Auður voru hér á ferðalagi með stelpunum og bauð ég þeim í mat heim til mín. Ég hitti því stóran part af Brekkugerðisfjölskyldunni hér fyrir norðan á meðan mamma og pabbi voru í heimsókn.

Seinni Veiðivatnaferðin var síðan í lok júlí og komu Anna Sigga og Gunni með stelpurnar í þetta skiptið. Ferðin var mjög góð að vanda þar sem við strákarnir, allir nema pabbi og Páll, sváfum í tjöldum. Fyrri nóttin var að vísu hvöss og blaut en mér fannst það æðislegt þó að Gunni væri ekki alveg sammála. Stelpurnar nutu sín vel og Malín veiddi sína fyrstu fiska. Rakel fékk tækifæri til að draga fisk að landi en ákvað að það væri öruggar að horfa bara á. Um Verslunarmannahelgina fór ég á Siglufjörð þar sem Anna og Gunni voru með stelpurnar. Helgin var fín með tilheyrandi grilli og böllum.

Núna eru þau flutt út til Danmerkur þau Anna Sigga, Gunni og stelpurnar. Þau eru komin til Sönderborg þar sem Gunni er að fara í nám. Ferðin og fluttningar gengu vel, fyrir utan einhver skakkaföll á húsgögnum og hjólum á leiðinni. Þau voru búin að fá íbúð á kollegíi en það kom fljótt í ljós að nágranni þeirra var eitt stykki ölstofa fyrir stúdenta. Þetta er nú ekki nágranni sem maður vill hafa, sérstaklega með krakka. En þau duttu í lukkupottinn þar sem þau fundu strax hús til leigu og eru núna flutt í þetta fína hús. Þau eru búin að stofna blogg til að segja frá lífinu í baunalandi og er slóðin http://www.annaoggunni.blogspot.com/ en það má einnig finna slóðina hér til hliðar. Eins ætti að vera hægt að sjá nýjustu færslur þeirra hér til hiðar ef þetta virkar allt eins og það á að gera.

Eins og ég sagði fyrir langa löngu fékk ég ekki úthlutað veiðileyfi á hreindýr þetta árið en Magni fékk leyfi fyrir belju. Eftir mikið púsluspil var ég búinn að afskrifa að komast með honum á veiðarnar en það kom síðan í ljós að við komust á sunnudegi fyrir rúmri viku. Það var því brunað austur á laugardagsköldi og haldið af stað eldsnemma um morguninn. Magni sló held ég nýtt met í veiðinni. Við hittum leiðsögumanninn klukkan 6, klukkan átta var Magni búinn að ná fínni belju og klukkan 10 var búið að fella kálfinn. Við vorum lagðir af stað niður af Fljótsdalsheiði fyrir hádegi sem gerist sárasjaldan. Mörgum finnst þetta hálfgert svindl þar sem enginn eltingarleikur var af viti og dýrin voru skotin nánast við veginn. Það er að mörgu leyti rétt en svona er það, ýmist mikill eltingarleikur með tilheyrandi svita og erfiði (mjög algengt) eða þetta (sem er mjög sjaldgæft).

Gæsaveiðitíminn er byrjaður og fór ég á Möðrudalsöræfi með vinnufélögum á laugardaginn. Það er skemmst frá því að segja að árangurinn var eins og oft áður, enginn fugl og jafnmörg skot komu til baka og lagt var af stað með. Gæsirnar eru víst ennþá lengra upp á fjöllum en vanalega á þessum tíma enda búið að vera hlýtt og nóg af berjum að eta.

Næstu helgi fer ég til Danmerkur með mömmu og pabba. Þar hittum við auðvitað Önnu og Gunna og stelpurnar sem verður gaman. Við förum einnig í brúðakaup hjá Tinu sem bjó í heilt ár hjá okkur fyrir mörgum árum. Þaðan fer ég síðan í annað brúðakaup, í Ástralíu. Anna sem bjó á sama gangi og ég í Svíþjóð er að fara að gifta sig og þetta er nógu brjáluð ástæða fyrir mig til að fara yfir hálfan hnöttinn. Ég verð í tæpan mánuð úti og er farið að hlakka pínu pons til.....


Click for Melbourne, Victoria Forecast


Kveðja
Magnús

Mamma og pabbi í Flatey
Posted by Picasa