fimmtudagur, maí 13, 2004

Núna er ég búinn að bæta við þeim möguleika að hver sem er getur skrifað athugasemdir við fréttaskot. Þetta er gert með því að velja comments sem er fyrir neðan fréttaskotið.

Það eru smá vandræði með eldri fréttaskot, þau fara út af síðunni eins og hún er núna og tenglarnir hérna til hægri virka ekki. Vona að mér takist að finna út úr því en ég er búinn að komast að því að eldri fréttaskotin eru ennþá til, þau eru ekki glötuð.

Ég er síðan á leiðinni suður á morgun (föstudag) og mun fara í sjóstangveiði með afmælisbörnunum (Hjalti, pabbi og Gunni) á laugardag. Síðan er að sjálfsögðu Evróvision :)

Kveðja að austan
Magnús

2 ummæli:

Magnús sagði...

Jæja, tóks að koma þessu í lag með eldri fréttaskotin.

Ég hvet fólk til að vera duglegt að nota þessa síðu þannig að það verði aðeins meira hérna en bullið í mér ;)

Nafnlaus sagði...

Bara að prufa að svara án þess að vera skráður inn

Magnús