..byrjar ALLT of snemma. Þegar ég var á Akureyri 19. október (fyrir mánuði) voru komnar jólaskreytingar í Rúmfatalagerinn, enda ekki nema rúmir tveir mánuðir til jóla. Persónluega finnst mér að jólaundirbúningur eigi að byrja með aðventunni (fyrir utan rjúpuveiðar, en þar sem rjúpan er ekki jólamatur hjá mér fellur veiðin ekki undir jólaundirbúning). Ég get alveg fyrirgefið verslunum að byrja núna að skreyta en í október..... nei takk.

kveðja
Magnús jólasveinn

1 ummæli:
Ekki hlusta á þetta rugl í honum Magnúsi frænda mínum! Við í samtökunum JólAlltÁrið mótmælum eindregið þessum boðskapi Magnúsar og vonum að þið haldið í jólaskapið...og seríurnar allt árið um kring!
HóHóHó
Skrifa ummæli