Þetta er planið hjá mér á næstunni. Það má bæta við þetta Reykjavík - Reyðarförður - Akureyri - Reyðarfjörður - Norðfjörður - Reyðafjörður - Reykjavík - Akureyri - Reykjavík á undan en þessi mánuður er hinn mikli mánuður ferðalaga. Ég er búinn að vera að vinna hér á Akureyri (er sem sagt staddur þar í augnablikinu) meira og minna frá áramótum. Fóru austur á Reyðarfjörð um síðustu helgi en var samt mest á Norðfirði þar sem ég var á námskeiði í fyrstu hjálp 2. Í gær flaug ég síðan suður og norður í dag eftir tafir vegna bilaðrar flugvélar. Á föstudaginn flýg ég síðan til Köpen þar sem ég mun hitta Stefán og Steinunni. Stefán er kominn með bjór í kælinn. Þaðan flýg ég til Barcelona til að hitta Sollu og Viktor. Planið þar er almennt kæruleysi með góðum skammt af túrisma. Ég held að Viktor sé kominn með stíft prógram sem er ekkert verra. Ég mun síðan reyna að sjá til þess að Solla og Viktor komi heim eins og þau eru búin að tala um. Ég mun verða samferða þeim og munum við fljúga í gegn um London. Þegar ég kem heim geri ég ráð fyrir því að fara aftur austur en þori samt ekki að lofa því, gæti allt eins haft viðkomu hér fyrir norðan.
Þar sem ég er að fara til Spánar hef ég verið að kíkja á veðrið þar. Mér sýnist að vísu að ég þurfi að hafa hlý föt með mér, ekki stuttbuxur og sundskýlu. En hvað veit maður, það getur alveg örugglega brostið á með 20 stiga hita og sól, sakar ekki að vona. Á vafri mínu að skoða veðrið rakst ég á "borða" sem hægt er að setja á síðuna sína og sýnir veðrið á ákveðnum stöðum. Þetta var auðvitað eitthvað sem ég varð að prófa og set því hérna fyrir neðan.
Kveðja úr snjónum á Akureyri
Magnús

2 ummæli:
Er hitt póstkortið ekki komið ennþá? Hvert ætli það hafi farið?
Detti mér allar dauðar lýs úr höfði, líka þær sem eru lifandi. Ég svarði kommenti frá Sollu og það datt út. Í staðin er bara svarið mitt en menn verða að geta sér til um hvað Solla skrifaði.....
Skrifa ummæli