Langaði
bara að láta ykkur vita að ég væri enn á lífi. Anna Sigga og stelpurnar eru búnar að vera í heimsókn hjá mér og Gunni af og til. Kíktum á Siglufjörð í "Siglufjarðarsólin" (sem getur verið blaut) um helgina og á þjóðlagahátíðina þar. Ég sá Halldór spila tvisvar, báðir tónleikarnir mjög flottir en ólíkir hvor öðrum. Ég keyrði afa og ömmu í Gullbringu í síðustu viku og hitti þau síðan á Siglufirði aftur. Solla frænka kom hingað á sunnudaginn og fór í morgun suður aftur og von er á mömmu og pabba á morgun. Eins kíktu Jóhanna og Páll í kvöldkaffi. Gestafjöldinn hér á Akureyri er þegar orðinn meiri en fyrir austan :)
kveðja úr ... hmmm... ekki sólinni
Magnús
Nýjar myndir
Fyrir 17 árum

1 ummæli:
Sko... ég væri örugglega að koma í annað skipti í heimsókn til þín núna um helgina ef þú værir ennþá fyrir austan! Ekki vanmeta austrið;)
Takk fyrir síðast! Kem vonandi fljótt aftur og þá geturðu vonandi kennt mér á photoshop;)
kveðja úr skýjaborginni
Solla
Skrifa ummæli