Hreindýraveiðar
Ég var að koma austan af Fljótsdalsheiði með Gunna og Magga vini hans. Ástæðu ferðarinnar má sjá hér að neðan, Gunni var að skjóta hreindýr. Eftir nokkurra klukkutíma leit fundum við hóp og þurftum ekki að ganga nema 2,5 km að þeim, skríða um 100 metra og eitt skot. Nokkuð gott miðað við fyrsta skiptið. Leiðsögumaðurinn kom síðan nær með bíllinn og þurftum við því bara að bera dýrið um 900 m til baka. Þetta var belja, kálfurinn kom ekki aftur og hefur líklega bjargað lífi sínu með því. Þegar búið var að hreinsa dýrið og flá það var það 41 kg. Um kvöldið voru það því þreyttir en ánægðir veiðimenn sem grilluðu gæsabringur og fóru snemma í háttinn, þrátt fyrir plön um annað :) Hægt er að sjá myndir úr ferðinni (varúð, smá blóð á sumum) hér ásamt nokkrum fleiri myndum. Af einhverjum ástæðum eru íslenskir stafir í rugli á nýju síðunum en ég hef ekki komist í það að finna út hvers vegna.
Kveðja
Magnús
Nýjar myndir
Fyrir 17 árum

2 ummæli:
Hér áttu að vera myndir en einhverra hluta vegna koma þær ekki :( Þið verðið bara að skoða myndasíðuna
Magnús
Það er hér með staðfest að ég kem með í næstu ferð! Kveðja Ingimar
Skrifa ummæli