Ég ákvað að setja upp smá könnun að ganni mínu og vill að sem flestir taki þátt.
Taka þátt í könnun
Annars allt rólegt að frétta. Jólin nálgast og ég er búinn að setja upp jólaseríur. Ég veit að ég er svolítið seinn, hefði átt að gera þetta í október en ég held því ennþá fram að jólin séu í desember. Rjúputíminn er búinn og núna hangir ein úti á svölum. Þetta eru stórstígar framfarir í veiðimennskunni og núna þurfum við Magni að finna út hvað við ætlum að gera við tvær rjúpur, þ.e. hvernig á að matreiða þær. Uppástungur eru vel þegnar.
kveðja úr norðri
Magnús
ps
Sá sem er nr. 50 á teljaranum hér til hliðar skrifi nafnið sitt í comment ;o)
Nýjar myndir
Fyrir 17 árum

1 ummæli:
Ég er að vísu ekki nr. 50 en skrifa samt. Ég held að rjúpan dugi bara í súpu handa ykkur eða í einhvern forrétt.
konana með bólgna andlitið
Skrifa ummæli