Já, núna eru páskarnir búnir eitt árið enn. Ég fór suður að sjálfsögðu og hafði nóg að gera að vanda. Ég kíkti á
Blúshátið með Sollu og Viktori og sá þar
Klassart,
Lay Low og
Zora Young sem voru öll mjög góð. Eftir það kíktum við í bæinn á blús-djamm sem var mjög fínt líka. Þetta var stutt kvöld þar sem Föstudagurinn langi ku vera heilagur og allt lokaði um miðnætti. Ég kíkti á Hjalta og nýjasta fjölskyldumeðliminn þar, strákinn hjá Guðjóni, nýju íbúðina hjá Eika auk nokkurra heimsókna. Að sjálfsögðu má ekki gleyma góðum mat eins og gerist á páskunum og smá peningaeyðslu í verslunum. Vel heppnað í alla staði.
Ég keypti líka miða á
Police í Danmörku í september þegar ég frétti að ættingjar ætluðu að fara á tónleikana. Þetta passar mjög vel þar sem ég er að koma heim frá Eistlandi í sömu viku og fer í gegn um Köpen þannig að ég framlengi þá ferð pínulítið. Þetta stefnir í svaka fína ferð.
Mamma, pabbi, Anna Sigga og heila familían koma síðan í næstu viku og verða í nokkra daga hér fyrir norðan. Það verður mikið fjör og gott að hafa tvö gestaherbergi :)
Ég sá að það eru komnar 190 heimsóknir á síðuna síðan ég setti teljarann upp, þetta nálgast 200 óðfluga...
Rakel er að "borða" páskalambið á myndinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli