mánudagur, september 12, 2005

Eistland
Ég ætla að vera aðeins fljótari með þessa ferðasögu heldur en með ferðina til Þýskalands. Við fórum 17 manns í æfingar- og námsferð til Eistlands. Rúmlega helmingurinn var frá Austurland rústabjörgun (fólk úr sveitum á öllu Austurlandi) og restin kom frá Dalvík. Tilgangurinn var að kenna Eistlendingum stífingar rústa auk þess sem hluti okkar (ég þar á meðal) var að læra stífingar líka. Kerfið sem við notum er komið frá kananum, hannað af verkfræðingum bandaríska hersins fyrir bandaríkjamenn, með öðrum orðum mjög einfalt kerfi. Það kom líka í ljós að Eistlendingarnir voru með kerfi ættað frá Þýskalandi sem var mun flóknari þannig að þeir voru mjög ánægðir með þessa kennslu. Við eyddum 2 dögum á æfingarsvæði við Vaike-maarja (um 2000 manna bær) og stífuðum gáma ætluðum brunaæfingum í bak og fyrir. Hitinn var ekki nema 25-30°C og sól, frekar heitt í fullum galla með hjálm og allar græjur.

Við fengum líka kennslu í notkun á hljóðsjá sem er svipuð þeirri sem er til hér á landi og fengum við að prófa hana. Eins fengum við stutta kennslu í spottavinnu m.a. hvernig hægt væri að komast á bandi yfir á og taka allt draslið með sér (aðeins einn þarf að synda einu sinni yfir ána með spotta í eftirdragi). Æfingarnar voru mjög fínar og gott að æfa með þeim eistnesku enda er þetta alþjóðleg sveit hjá þeim sem hefur farið víða.

Það var einnig farið í skoðunarferðir og er ég þá ekki bara að tala um pöbbana. Við skoðuðum meðal annars miðaldarkastala í Rakvere, mjög skemmtilegur kastali með skemmtilegu safni. Við sáum bæinn Narfa (og kastala þar) sem er við ána Narfa sem skilur Eistland frá Rússlandi. Við horfðum yfir á rússana en fórum ekki yfir. Við skoðuðum olíusteins-námu (oil-shell) sem var aflögð en mesta orka á stóru svæði Eistlands kemur úr þessum olíusteini (20% er olía) en þeir vinna einnig olíu úr honum. Þetta er víst algjört ógeð að brenna, fullt af kvikalilfri og öðru ógeði.

Tallin er borg sem mér fannst alveg frábær. Ég mundi hiklaust setja hana í sama flokk og Prag, ef ekki hærra. Þetta er að vísu mikil túristaborg en maður getur alveg lifað með því (önnur hver verslun var minjagripabúð og mikið af svíjum og finnum á röltinu). Ég mæli alveg hiklaust með þessari borg en ég náði ekki að rölta allt það sem ég vildi fara.

Heimferðin einkenndist af hlaupum um Kastrup flugvöll. Við flugum beint til Egilsstaða þaðan en vegna klúðurs við bókun höfðum við algjöran lágmarkstíma til að komast á milli véla. Að sjálfsögðu voru vélarnar þannig staðsettar og eins með bókunarborðið að við þurftum að hlaupa lengstu mögulegu leið um flugvöllinn. Öll komust við þó heil heim og reynslunni ríkari. Eistlendingarnir stefna á að koma hingað á klakann næsta ár og fara í fjallaleiðangur (fjöll eru ekki til í Eistlandi). Myndir koma einhverntíma á netið, þori ekki að lofa hvenær.....

Kveðja að austan
Magnús

Engin ummæli: