Ég var klukkaður.....
Það er það nýjasta á netinu í dag. Þeir sem lenda í því að vera klukkaðir eiga að skrifa 5 staðreindir um sjálfan sig á netið (eftir því sem mér skilst). Maggi Gauti var svo "vinsamlegur" að klukka mig og ætla ég ekki að skorast undan því.
1. Ég hef gaman af því að ferðast, enda bara búinn að fara fjórum sinnum til útlanda í ár (persónulegt met).
2. Ég er afspyrnu lélegur sundmaður, samt er ég í sjóbjörgun... gáfulegt?
3. Ég á það til að vera latur, sést t.d. á því að ég er ekki enn búinn að setja inn myndir úr utanlandsferðum.
4. Ég er held ég tónlistarfíkill, það bendir margt til þess að þetta sé ættgengt.
5. Mér finnst bjór góður. Þetta kemur á óvart er það ekki? ;)
Núna á maður víst að klukka einhverja aðra. Ég klukka Sigrúnu og Omar í Egyptandi og síðan þann fyrsta sem les þessa þvælu, eða ætti ég að segja alla sem lesa þessa þvælu (ekki mjög margir held ég). Það má gera með því að ýta á comments hérna fyrir neðan.
kveðja úr snjónum
Magnús
ps.
Ég er búinn að setja inn nokkrar myndir síðan í sumar, meira kemur síðar (munið, latur...)
Nýjar myndir
Fyrir 17 árum

3 ummæli:
Hæ frændi!
Það er fyndið hvað tískubylgjurnar ná inn í netheiminn líka! Þetta klukkdæmi er að "tröllríða" (hver kom með þetta orðatiltæki eiginlega) öllu! Er búin að uppljóstra öllu um sjálfa mig en Viktor á eftir að bera öll sín leyndarmál!
Sendum fullt af sólargeislum í snjóinn,
Römblubúarnir!
P.S. Er sammála þér með:
#1: er búin að fara til Spánar, Frakklands, Mónakó, Þýskalands og Danmerkur í ár
(Millilentum líka á Englandi!)
#3: Er líka löt: er búin að hanga inn í næstum allan dag OG ÉG BÝ Í EINNI MESTU MENNINGARBORG EVRÓPU!
#5 Mmmmmmm.... (þarf að segja eitthvað meira?)
1.Ég er líka ferðafíkill. Búin að ferðast víða þetta árið og ekki hætt.
2. Mér finnst ekki gaman út þegar það er kalt úti eins og í dag.
3. Mér finnst marur góður eins og sést á mér.
4. Mér finnst gott að vera löt.(stundum)
5.Ég kann ekki að synda
Mamma
það er alltaf svo gaman að vera hjálpsamur hehehe ( að klukka þig ) því að þetta virðist vera dæmið sem að gengur yfir netið þennan mánuðinn, og ég hef meira að segja séð síðu á ensku en er gerð út frá afríku þar sem að þetta er í gangi líka svo að þetta erum ekki bara við litlu íslendngarnir hehehe
p.s er kominn snjór hjá þér :/
maggi gauti
Skrifa ummæli