
Loksins er hægt að setja inn myndir aftur. Það gengur þó ekki þrautalaust fyrir sig enn sem komið er því einhverra hluta vegna er ekki lengur möguleiki á að setja myndir beint inn þegar ýtt er á "skrifa fréttaskot" hérna til hliðar. Það er aftur á móti lítið mál að setja þær inn eftir á með því að velja blýantinn sem er fyrir neðan póstinn því þá er hægt að breyta póstinum að vild, nema því sem ég skrifa á mínu nafni, ég einn get átt við það :)
Ef einhver notar myndaforritið Picasa þá er hægt að setja myndir beint inn þaðan. Maður velur þær myndir sem eiga að fara hingað og ýtir síðan á "BlogThis!" takkann sem er neðst. Síðan er sama notendanafn og lykilorð og myndirnir eiga (vonandi) að rata á réttan stað. Þarna er hægt að setja inn texta með hverri mynd og gera allt það sama og beint í gegn um bloggið sjálft.
Magnús "myndarlegi"

1 ummæli:
þú þarftað biðja Gunna eða Önnu Siggu að setja inn myndir úr ferðinni. Kveðja frá danaveldi þar sem ekki rignir í augnablikinu.
Skrifa ummæli