Ég er búinn að smita Magna af skotveiðibakteríu. Raunar svo mikið að honum tókst að ná fyrsta fuglinum á undan mér. Við vorum sem sagt að koma af gæsaveiðum og honum tókst að fella einn fugl en árangurinn hjá mér var ekki jafn glæsilegur.
Minn tími mun koma.... Veiðimaðurinn er stoltur, enda má hann vera það. Fuglinn er kominn á snúruna hjá mér og bíður frekari meðhöndlunar. Síðan mun hann hljóta þau örlög að verða að máltíð hjá okkur fljótlega :)
Kveðja
Magnús
Engin ummæli:
Skrifa ummæli