Ég var í Reykjavíkinni um síðustu helgi og það fyrsta sem ég tók eftir á leiðinni frá flugvellinum upp í Breiðholt var að Kringlan var komin í jólabúning. Þetta var nánar tiltekið 2. nóvember og ennþá næstum
tveir mánuðir til jóla. Ég tók þá ákvörðun að fara ekki í Kringluna né Smáralindina til að forðast þessi ótímabæru jól. Ég álpaðist aftur á móti í Blómaval og sá að þar var jóladót út um allt, hundfúlt. Ég lét plata mig í Smáralindina og sá að þeir voru byrjaðir að skreyta en ekki búnir að kveikja á ljósum eða setja upp neitt meira en "greni" þannig að sú ferð slapp fyrir horn. Það sem er verst við þetta að það var byrjað að skreyta og auglýsa jólin í
OKTÓBER!!!!Ég skoðaði bloggið mitt frá því í fyrra þar sem ég mundi eftir að hafa skammast yfir þessu þá og má sjá það
hér. Solla frænka var að vísu ekki sammála mér þá en Malín frænka var alveg sammála mér um daginn :)

Annars var ferðin suður um síðustu helgi mjög fín eins og við var að búast. Í kvöld verður "sviðaveisla" í vinnunni en maður sér ekki fram á rjúpu"veiðar" um helgina miðað við veðurspá. Eftir viku er stefnan tekin á Gufuskála til að æfa rústabjörgun með Dalvíkingum og fleirum.
kveðja úr golunni
Magnús
Engin ummæli:
Skrifa ummæli