Ég fór í jeppaferð með björgunarsveitinni Súlum um helgina. Við lögðum af stað frá Akureyri um kl. 8 um kvöldið og eftir að hafa keyrt í snjókomu, byl og engu skyggni, fest okkur nokkrum sinnum og tjónað dekk komum í Laugarfell kl. 3 um nóttina. Svaka stuð :)
Daginn eftir var vaknað við sólarupprás (sem betur fer kom hún seint á loft...) og lagt af stað, fyrst upp Laugarfellshnjúk, inn í skálann Landakot, að skálanum Galtaból og þaðan niður Bárðardal. Eftir smá dekkjaviðgerðir komust við síðan til byggða upp úr kl. 10 á laugardagskveldi. Svaka fín ferð. Hérna eru nokkrar myndir úr ferðinni:
kveðja úr snjónum
Magnús
Nýjar myndir
Fyrir 17 árum


2 ummæli:
Þetta hefur örugglega verið æðilseg ferð og ekkiskemmdi veðrið.
Flottar myndir.
kv. mamma
Flottar myndir, þetta hefur verið mikil ævintýraferð, hálendið er engu líkt og ekki síst að vetrarlagi. Vonandi áttu eftir að fara fleiri slíkar ferðir með sveitinni.
Pabbi
Skrifa ummæli