þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Hækkandi sól

Já, ég er enn á lífi og miðað við dagsetningu á síðasta pósti frá mér er kominn tími á að ég bulli smávegis með hækkandi sól. Snjórinn fór og er kominn aftur, enda febrúar ekki einu sinni búinn (ég bý nú á norðurhjaranum eftir allt saman). Eins og venjulega hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið. Ég er búinn að fara á snjóflóðanámskeið, bátanámskeið, eina ferð suður og síðan fastir liðir eins og venjulega; vinnan, björgunarsveitin, ræktin (ok, ræktin er á leiðinni að verða fastur liður...)

Ég var fyrir sunnan aðra helgina í febrúar, fór á námskeið í vinnunni og tók smá bæjarferð í leiðinni. Þetta hitti svo skemmtilega á að um þessa helgi hittust gömlu æskufélagarnir og bæði ég og Magni vorum í bænum. Við að sjálfsögðu skemmtum okkur fram á rauða morgun enda ekki oft sem við hittumst allir á sama tíma.

Ég hef ekki komist á veiðar þrátt fyrir mikla löngun. Ég veit ekki hvar maður finnur endur á svæðinu og ekki heldur hvar maður finnur bát til að komast á svartfugl. Síðan þarf maður víst líka að finna tíma fyrir þetta og ekki er verra að hafa þokkalegt veður líka en þetta kemur vonandi fyrr en síðar. Ég sótti um hreindýr og það sama gerðu Gunni og Maggi vinur hans (fórum með Gunna í fyrra). Ég fékk eina belju og Gunni einn tarf þannig að það verður fjör í haust (ok, ég þarf að gera ræktina að föstum lið..). Núna er næsta vandamál að finna út hvenær maður á að komast á veiðar því haustið er þegar orðið nokkuð þétt setið með utanlandsferðir. Einhversstaðar hlýtur samt að vera smá smuga fyrir hreindýrin.

Kveðja úr snjónum
Magnús

 
Posted by Picasa

Engin ummæli: