föstudagur, september 19, 2008

Melbourne, næst Sydney

No worries
Þetta hljómar oft hérna, sérstaklega þegar maður þakkar fyrir eitthvað. Það eru ekki bara kengúrurnar sem eru sérstakar hérna :)

Þetta er síðasti dagurinn minn hér í Melbourne og á morgun flýg ég til Sydney. Þar verð ég að túristast í nokkra daga áður en ég held heim á leið.

Ferðin til Phillip Island og Willsons Promontory var barasta fín. Við byrjuðum á Phillip eyju þar sem við skoðuðum dýraathvarf þar sem við gátum séð kóalabirni, kengúrur, krókudíl og fleira skemmtilegt. Eins skoðum við vinsæla brimbretta strönd og klettaströnd þar sem á að vera hægt að sjá seli á góðum degi (sá enga). Í lok dagsins var farið að horfa á mörgæsirnar massera upp úr sjónum og upp í sandhóla ofan við ströndina. Það var eins og við var að búast orðið svalt þegar mörgæsirnar létu loks sjá sig og þær sem ég sá voru mun færri en ég hafði gert ráð fyrir. Þegar maður gékk síðan frá fjörunni og upp í þjónustuhúsið þá sá maður fullt af mörgæsum sem létu margar hátt, enda er varptíminn að hefjast og fuglarnir á fullu að para sig og berjast um bestu svæðin. Þessar mörgæsir munu vera þær minnstu í heimi. Því miður mátti ekki taka neinar myndir þarna og er svæðið verndað á alla kannta enda eina mörgæsasvæðið sem er eftir á eyjunni. Við vorum síðan 5 úr hópnum sem gistum á eyjunni en restin var í dagsferð. Hinir 4 voru allir indverskir vinir sem töluðu saman á hindí allan tímann og bærinn sem við vorum í var algjör draugabær. Sem sagt rólegt kvöld og snemma að sofa.

Daginn eftir vorum við sóttir og fórum við með nýjum hóp í Wilsons Promotory. Þetta er þjóðgarður og líkist svæðið mikið Tasmaníu að því er menn segja. Svæðið er frábærlega fallegt og fjölbreytt. Þarna voru gresjur, votlendi, regnskógar, fjöll og fjörur. Við fórum í létta fjallgöngu á tind sem heitir Mt Bishop. Útsýnið þaðan var frábært og sólin farin að skína og var borðaður hádegismatur á toppnum. Síðan var gengin leið frá þjónustumiðstöðinni þarna yfir í fjöru sem heitir Squeaky Beach (það ískrar í sandnum þar sem er líklega skýringin á nafninu). Leiðin var alveg frábærlega falleg og mjög fjölbreytt. Eftir þetta voru fleiri kengúrur skoðaðar en einnig sáust emúar og wombatar. Veðrið lék við okkur þennan dag, sól og blíða og fínn hiti. Seinni dagurinn var mun skemmtilegri en sá fyrri (skemmtilegri hópur líka) þó margt áhugavert hafi verið að sjá báða dagana.

Í gær skoðaði ég meira af Melbourne, m.a. gamalt fangelsi. Við fórum síðan og borðuðum Peking önd í gærkveldi sem var örlítið frábrugðin því sem maður er vanur. Fyrst var byrjað á því að borða öndina í pönnukökum með gúrku, vorlauk og sósu. Næst fengum við öndina í núðlum og í lokin var súpa þar sem búið var að sjóða restina af öndinni og beinin. Allt var þetta algjört sælgæti.... Í dag er síðan stefnt á meira rölt um borgina og síðan að kíkja eitthvað út með vinum Önnu og Paul. Anna er farin á eitthvað námskeið sem er fyrir þá sem vinna fyrir Rauðakrossinn á alþjóðlegum vettvangi og verðu þar næstu 5 daga þannig að við Paul kíkjum aðeins á lífið. Á morgun flíg ég til Sydney eins og ég sagði áður og mun líklega þramma borgina endannna á milli. Ég er búinn að fá gistingu á gistiheimili sem lítur út fyrir að vera fínt og er á ágætis verði. Ég verð líklega ekki í netsambandi í Sydney en mun skrifa um lokahluta ferðarinn þegar ég kem heim, og auðvitað stinga inn nokkrum myndum.

Kveðja
Magnús

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er örugglega æðislegt að koma til Ástralíu,.Vona að ég eigi það eftir. Hlakka til að fá ferðasöguna. kveðja úr rokinu á Íslandi.
mamma

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Mikið hlýtur að vera gaman að sjá allt þetta. Ég er sammála mömmu vonandi á ég eftir að fá tækifæri til að fara og skoða þetta allt saman.
Hlakka til að sjá allar myndirnar á netinu.
Kveðja þín systir í Danaveldi.
p.s. það biðja allir að heilsa til Ástralíu