fimmtudagur, júní 08, 2006

Sólin er komin..
..og farin í bili. Það besta er samt að snjórinn er allur farinn (af láglendi). Héðan að norðan er allt fínt að frétta og lífið gengur sinn vanagang. Ég ætlaði á Gufuskála um Hvítasunnuhelgina með Austurland rústabjörgun en því var því miður aflýst á síðustu stundu vegna vöntunar á mannskap. Þá var gripið til plans-B, sem kom reyndar í ljós að var ekki neitt, það leit svo vel út með Gufuskálaferðina. Þá var farið í að búa til plan-C og þegar ég komst að því að þeir frændur mínir Kiddi og Maggi Gauti væru að fara á Reykjavík Tropik ákvað ég að skella mér suður og fara líka. Ég fékk sem sagt góðan skammt af lifandi tónlist (og smá bjór) um Hvítasunnuna. Það var mikið af góðum böndum þarna, m.a. Apparat (sem var slökkt á..) en það hefði mátt vera meira af áhorfendum. Maður er spenntur að vita hvort tónleikahaldararnir séu á leið í skuldafangelsi eða hvort þeir hafi slefað yfir núllið.

Ég fékk líka tvær snemmbúnar afmælisveislur um helgina. Anna Sigga var með kökur á sunnudeginum og Jóhanna frænka með matarboð á mánudeginum. Ég er ekkert ósáttur við það, alltaf gott að éta...... :)

Gunni og vinnufélagi hans hafa verið hér fyrir norðan og gist hjá mér. Það varð auðvitað til þess að mér varð ekkert úr verki með eldhúsið (þetta er að verða eins og sagan endalausa) og mér sýnist veðurspáin ekki ætla að hjálpa mér þessa helgi. Það er samt aldrei að vita, ég er ekki búinn að plana neitt um helgina en sól og hiti gæti alveg sett strik í reikninginn (og formúlan..).

Ég keypti miða fyrir mig og foreldrana á tónleika Emiliönu Torrini og Belle and Sebastian núna í morgun. Ég keypti miða á NASA og það er nú þegar uppsellt. Þau eru líka með tónleika á Borgarfirði eystri en þrátt fyrir mikla leit fyrir austan fann ég engan sem ætlaði þangað. Það eru orðin mjög mörg ár síðan ég sá Emiliönu spila á tónleikum síðast og ég hélt að líkurnar á að sjá Belle and Sebastian væru álíka miklar og að sjá Tom Waits þannig að ég er bara mjög kátur með að vera kominn með miða.

Kveðja úr norðan blíðunni
Magnús

mánudagur, maí 22, 2006

Smá prufa.
Langaði til að prufa að setja inn link á Belgíuferð Ara til að sjá hvernig þetta virkar. Ari er semsagt vaknaður til lífsins aftur og farinn að blogga.....
Ariel D. Járn delerar og fabúlerar: Snáðinn í Belgíu
Rakel Rán Hall
Er nafnið á dóttur Önnu Siggu og Gunna. Ég var að vona að montnir foreldrar yrðu fljót að setja nafnið inn en það er bara montinn frændi sem gerir það í staðinn.

Annað í fréttum er að pabbi er orðinn sextugur, svona ef einhver missti af því. Þau hjónin fóru til Parísar og höfðu það mjög gott eins og vera ber.

Ég er búinn að vera meira fyrir sunnan en fyrir norðan síðan ég flutti, um helgar það er að segja. Ég var eina helgi að hjálpa pabba að rústa efri hæðinni í Neðstaberginu og byggja hana aftur upp og síðan var það skírnin hjá Rakel Rán helgina þar á eftir.

Að norðan er það helst að frétta að það SNJÓAR!!!!! Í dag er 22. maí og það snjóar eins og um miðjan vetur væri, ekkert gaman. Íbúðin er hægt og rólega að komast í þokkalegt horf. Ég stefni á að klára eldhúsið núna í vikunni eða um næstu helgi. Stefnan var að gera það um síðustu helgi en ég misreiknaði opnunartíma byggingavöruverslana hér (ég bý ennþá úti á landi) og síðan var ég örlítið á Grímsstöðum þannig að allar tímaáætlanir fuku út í veður og vind. Það ætti samt að takast að klára þetta núna, jafnvel áður en snjóa leysir.......

Kveðja úr kafaldsbyl
Magnús

föstudagur, apríl 07, 2006

Akureyringur....
Ég er fluttur að heiman frá Magna og inn í íbúðina mína. Það eru að vísu nokkrir kassar að þvælast fyrir mér ennþá og eldhúsið ómálað (og einn veggur ennþá eins og beinagrind) en þetta er allt að koma. Maður kanski tengir tölvuna um helgina, hver veit. Þetta er fyrsta helgin sem ég er í minni íbúð hér fyrir norðan, búinn að vera fyrir austan og sunnan aðrar helgar eftir að ég fékk íbúðina. Fyrir tveim vikum var ég á árshátíð björgunarsveita á Seyðisfirði, mikið fjör. Mæli með því að fólk skoði fjarskiptasafnið þar. Ég flaug austur og skellti mér á tónleika með Lisu Ekdahl í leiðinni, mjög gaman. Á sunnudeginum fór ég á Túskildingsóperuna með mömmu og á mánudagsmorgni stoppaði ég á fæðingadeildinni á leiðinni út á flugvöll til að sjá nýfædda frænku mína. Mjög góð helgi í alla staði.

Síðustu helgi var ég fyrir sunnan. Það var "reunion" (endurfundir) hjá árganginum mínum úr grunnskóla. Það var mjög gaman, byrjuðum á skoðunarferð um skólann um daginn þar sem margar sögur voru rifjaður upp. Um kvöldið var síðan fengið sér smá öl og dansað og skemmt sér fram eftir. Þetta var æðislega gaman, maður hitti fullt af fólki sem maður hafði ekki séð í milljón og eitt ár. Á sunnudeginum var síðan afmæli hjá Malín stóru systur.

Ástæðan fyrir því að þær systur eru allar merktar Ferrari á myndunum frá Gunna er að pabbi var á Ítalíu þegar sú litla fæddist. Það gæti að vísu spilað eitthvað inn í að Gunni er Ferrari maður í formúlunni......

kveðja úr snjónum (þetta hvíta sem fellur af himnum, sum ykkar munið kanski eftir þessu úr bernsku....)
Magnús

mánudagur, mars 27, 2006

Lítil frænka




 Posted by Picasa

þriðjudagur, mars 21, 2006

Ég er fluttur...
..norður en ekki inn í íbúðina. Núna er verið að mála og dótið bíður í gám fyrir utan. Árshátíð hjá björgunuarsveitunum á Austurlandi á Seyðisfirði og Túskildingsóperan um næstu helgi og "reunion" hjá árgangninum úr Hólabrekkuskóla helgina þar á eftir. Síðan verður kaffi á könnunni fyrir gesti og gangandi í Tjarnarlundi 6-d :)

kveðja
Magnús
..að æfa norðlenska hreiminn

föstudagur, mars 17, 2006

Er að flytja....
...þannig að næst þegar ég skrifa eitthvað af viti hérna þá verð ég búsettur á Akureyri. Skrítin tilfinning. Íbúðin hérna fyrir austan er full af kössum núna og gardínukappinn hrundi niður í nótt, svona smá skilnaðargjöf frá íbúðinni. Pabbi kemur austur á eftir til að hjálpa mér. Fyrsta heila helgin hjá mér fyrir norðan verður samt ekki fyrr en aðra helgina í apríl, þá get ég boðið gestum og gangandi upp á kaffi (eða jafnvel eitthvað sterkara).

kveðja
Magnús - á leið norður

fimmtudagur, mars 02, 2006

Vaknaður.......
Ekki það að ég hafi verið sofandi, datt þetta bara í hug sem fyrirsögn. Það er búið að vera mikið í gangi hjá mér undanfarið. Ég var í Barcelona í .. þar síðasta mánuði.... búinn að vera meira og minna á Akureyri fyrir utan síðustu 2 vikur og búinn að fjárfesta í íbúð á Akureyri. Já, ég er sem sagt að fara að flytja norður. Verð í sömu vinnu, bara á annarri skrifstofu en annars verður allt eins og hefur verið, bara staðsettur nær yfirmanninum og þeim sem eru að vinna í sömu verkum. Fyrir þá sem sjá fram á að heimsækja mig frekar fyrir norðan en hér fyrir austan þá er ég með gestaherbergi fyrir norðan, tvö meira að segja (tek fram að ég hef ekki beint verið að drukkna í heimsóknum hér fyrir austan, hvorki á Norðfirði né Reyðarfirði). Ég fæ íbúðina núna í mars einhvern tíma og núna er mitt hafurtask meira og minna í kössum, þökk sé mömmu og pabba sem kíktu austur í síðustu viku. Það verður spennandi að prófa að búa fyrir norðan, Magni er í næstu blokk og Margrét sem var að læra á sama tíma og ég í Lundi er hinumegin við fjörðinn. Auk þess eru þarna 2 bíó (ekkert hér á Reyðarfirði), nokkrir pöbbar (1 hér), nokkur kaffihús (ekkert hér), leikhús (ekkert hér heldur) og sól allan veturinn þegar veðrið er þannig (hverfur hér á bak við fjöllin). Síðan er það sem skiptir hvað mestu máli, fleiri stelpur og kynjahlutfall nokkuð gott (sem er alls ekki hér).

Það er að vísu hálf skrítið að vera að flytja. Ég verð að viðurkenna að mér líkar bara mjög vel hérna fyrir austan. Ég held ég hafi sjaldan haft jafn mikið að gera fyrir utan vinnuna og er þar björgunarsveitin efst á blaði, var meira að segja skammaður þar um daginn þegar ég sagði að ég væri að flytja. Ég mun þó að öllum líkindum halda áfram með Austurland Rústabjörgun enda eru fleiri brottfluttir í þeim félagsskap. Ég geri því ráð fyrir að taka þátt í æfingum, "félagslegum samkomum" og jafnvel utanlandsferðum ef þær verða fleiri. Síðan verð ég að kanna hvort björgunarsveitin Súlur á Akureyri sé nokkuð slæmur félagsskapur. Auk þess geri ég ráð fyrir að verða talsvert hér fyrir austan út af vinnunni þannig að maður brallar alveg örugglega eitthvað með austfirðingum áfram, hvort sem það séu æfingar, veiðar (fiskur og janfvel fugl ef fuglaflensan skemmir það ekki) eða eitthvað annað.

Barcelona ferðin var alveg frábær. Lenti í snjókomu og kulda í Köpen en við Stefán fengum okkur bara smá frostlög þannig að það hafði ekki mikil áhrif. Við vorum að vísu heppnir að festast ekki í miðbænum um kvöldið þar sem lestirnar hættu að ganga og flestir leigubílar. Við rákumst á einn af fáum leigubílum sem var á góðum dekkjum. Í Barcelona tóku Solla og Viktor á móti mér og sýndu mér borgina og næsta nágrenni. Við sváfum yfirleitt til hádegis og löbbuðm það sem eftir var dagsins eins og brjálæðingar. Við kíktum líka í klaustur uppi í fjöllum og á Torres vínekruna. Við sem sagt sváfum, löbbuðum, borðuðum, drukkum öl og vín, löbbuðum meira........ Svona á frí að vera. Ég hef ekki sett inn myndir ennþá en set tengil á myndirnar hjá Sollu og Viktor.

Myndir, fyrsti hluti
Myndir, annar hluti

Með kveðju úr snjónum (fyrir austan)
Magnús

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Kaupmannahöfn - Barcelona - London
Þetta er planið hjá mér á næstunni. Það má bæta við þetta Reykjavík - Reyðarförður - Akureyri - Reyðarfjörður - Norðfjörður - Reyðafjörður - Reykjavík - Akureyri - Reykjavík á undan en þessi mánuður er hinn mikli mánuður ferðalaga. Ég er búinn að vera að vinna hér á Akureyri (er sem sagt staddur þar í augnablikinu) meira og minna frá áramótum. Fóru austur á Reyðarfjörð um síðustu helgi en var samt mest á Norðfirði þar sem ég var á námskeiði í fyrstu hjálp 2. Í gær flaug ég síðan suður og norður í dag eftir tafir vegna bilaðrar flugvélar. Á föstudaginn flýg ég síðan til Köpen þar sem ég mun hitta Stefán og Steinunni. Stefán er kominn með bjór í kælinn. Þaðan flýg ég til Barcelona til að hitta Sollu og Viktor. Planið þar er almennt kæruleysi með góðum skammt af túrisma. Ég held að Viktor sé kominn með stíft prógram sem er ekkert verra. Ég mun síðan reyna að sjá til þess að Solla og Viktor komi heim eins og þau eru búin að tala um. Ég mun verða samferða þeim og munum við fljúga í gegn um London. Þegar ég kem heim geri ég ráð fyrir því að fara aftur austur en þori samt ekki að lofa því, gæti allt eins haft viðkomu hér fyrir norðan.

Þar sem ég er að fara til Spánar hef ég verið að kíkja á veðrið þar. Mér sýnist að vísu að ég þurfi að hafa hlý föt með mér, ekki stuttbuxur og sundskýlu. En hvað veit maður, það getur alveg örugglega brostið á með 20 stiga hita og sól, sakar ekki að vona. Á vafri mínu að skoða veðrið rakst ég á "borða" sem hægt er að setja á síðuna sína og sýnir veðrið á ákveðnum stöðum. Þetta var auðvitað eitthvað sem ég varð að prófa og set því hérna fyrir neðan.

Kveðja úr snjónum á Akureyri
Magnús

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Gleðilegt ár
Jólin voru að sjálfsögðu fín, sem og áramótin. Maður borðaði, svaf, hitti vini og ættingja, borðaði meira, allt eins og það á að vera um jólin. Verst hvað það voru fáir frídagar, þetta var eins og löng helgi.

Núna er ég staddur á Akureyri, stoppaði eina nótt á Reyðarfirði og keyrði hingað í gær. Ég verð hérna í einhvern tíma, fullt af verkefnum sem þarf að koma frá eða vel af stað sem fyrst. Ekki kvarta ég, fínt að vera hérna. Það er að vísu spurning hvort Magni kvarti ekki á endanum, þetta er aðeins meira en stutt heimsókn núna.

Stefnan er síðan tekin á Barcelona í lok mánaðarins. Ég ætla að nota tækifærið á meðan Solla frænka er þarna og skoða borgina. Tilgangur ferðarinnar er að vísu tvíþættur. Fyrir utan að skoða Barcelona og fara í stutt frí þá ætla ég að sjá til þess að Solla og Viktor komi heim, við verðum samferða og ég létti aðeins á yfirvigtinni ;) Á leiðinni út stoppa ég í einn dag í Köpen og gisti hjá Stebba og Steinunni. Ég held að Stefán sé nú þegar búinn að setja bjór í kælinn fyrir mig.

Kveðja úr rokinu fyrir norðan
Magnús

fimmtudagur, desember 15, 2005

Öll dýrin eru jöfn..
En sum eru jafnari en önnur. Var það ekki eitthvað á þessa leið sem George Orwell skrifaði í Animal Farm? Ég rakst á fína grein sem Hallgímur Helgason skrifaði í DV (sem ég að vísu les aldrei en var svo heppinn að rekast á greinina á netinu). Eiga upphafsorðin ekki ágætlega við það sem Hallgrímur fjallar um?

kveðja
Magnús hugsuður
(gerist sjaldan þannig að tilefni er til að fagna)

miðvikudagur, desember 14, 2005

Fleiri myndir..
Já, mér tókst það loksins, myndirnar frá Eistlandi eru komnar inn. Lenti að vísu í smá vandræðum þar sem ég fékk allar myndirnar sem hópurinn tók, heilir tveir geisladiskar. Ég tók þess vegna "nokkrar" myndir og setti inn en ég þarf svolítið lengri tíma til að koma texta á þær og setja þetta upp í rétta röð. Það kemur þó vonandi á endanum. Setti líka inn nokkrar myndir sem ég tók í ísþoku sem hékk yfir Austfjörðunum í nokkra daga um daginn (hitinn var hátt í 10 gráður í dag og spáð 10-15 stiga frosti um helgina, eintómar umhleypingar..).

Ég fór á tónleika með raggie sveitinni Hjálmum um síðustu helgi. Þetta er tónlistarstefna sem maður hefur lítið hlustað á fyrir utan Bob nokkurn Marley auk þess sem ég sá son hans á Hróarskeldu (hljómaði eins og pabbinn, menn voru meira að segja að nota sömu jurtir í kring um mann í þvögunni). Það kom mér því skemmtilega á óvart að hlusta á þá þarna, þeir fá fína einkunn.

Kem suður á laugardaginn (17. des) og verð fram yfir áramót. Verð að vinna fyrir sunnan þessa daga en þó er ekki útilokað að maður taki sér verslunarfrí.

Kveðja
Magnús "myndarlegi"

föstudagur, desember 09, 2005

Myndir
Mér tókst loksins að koma inn myndum frá Þýskalandi í sumar. Myndir frá Eislandi næst á dagskrá. Myndirnar er að finna hér.

fimmtudagur, desember 01, 2005

Veiðin..
Núna er það alveg ljóst að það verður engin rjúpa um jólin hjá mér. Síðasti veiðidagurinn var í gær og eins og í fyrradag var maður kominn með veiðihug um hádegi og aftur var ég beðinn um að koma í útkall. Í þetta skiptið var veiðimaðurinn samt sem betur fer ekki jafn illa slasaður og daginn áður, "aðeins" fótbrotinn. Ég hugsa að ég fái mér mannbrodda fyrir næstu vertíð, báðir mennirnir slösuðust vegna hálku. Núna verður maður bara að einbeita sér að því að finna bát fyrir svartfugl, endur og skarf. Hef að vísu aldrei smakkað skarf en mér skilst að hann sé mjög góður þannig að ég er alveg til í að prófa. Og síðan eru það náttúrulega leirdúfurnar......

kveðja
Magnús rjúpubani.... eða þannig

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Tónleikar...
Af þeim tónleikum sem ég hef séð í gegn um tíðina þá eru það einir sem hafa staðið upp úr. Innan um Metallica, David Bowie og fleiri snillinga hefur Sigur Rós á Hróarskeldu trónað upp úr öllu saman. Þetta breyttist um helgina. Að vísu ekki mikið þar sem núna er það Sigur Rós í Laugardalshöll sem stendur upp úr, fær 12 af 10 mögulegum í einkun. Þvílíkir tónleikar. Ég vissi að ég yrði ekki fyrir vonbrigðum en þetta var ofar mínum björtustu vonum. Ég byrjaði að fá gæsahúð í fyrsta lagi og var meira og minna með gæsahúð í rúmlega 2 tíma. Lokalagið hjá þeim, sem er það magnaðasta sem ég hef séð á tónleikum hingað til, var ennþá magnaðra í þetta skiptið, þökk sé notkun ljósa, tjalda og myndvarpa. Ég var gjörsamlega í eigin heimi slefandi yfir sjálfan mig þarna, ásamt 5000 öðrum sem mér skilst að sumir hafi tárast (ég held að ég hafi ekki gert það, bara slefað). Ég mæli þess vegna með því við alla sem hafa pínu lítið gaman af Sigur Rós að fara á tónleika ef þeir geta.

Helgin í Reykjavík var fín þó þetta stæði upp úr. Kíkti í miðbæinn tvö kvöld í röð. Var rólegur á föstudeginum en aðeins minna rólegur á laugardeginum þegar við Jón Einar, sem er fluttur heim frá Louisiana, kíktum á smá öl.

Hér fyrir austan er snjór en fínt veður í augnablikinu. Ætlaði að kíkja eftir rjúpu seinni partinn en var kallaður út vegna veiðimanns sem slasaðist á veiðum. Þegar ég kom til baka var áhuginn aðeins farinn að dofna en þó hafði það mest áhrif að það var svo stuttur tími eftir með dagsbirtu. Ég hef sem sagt bara morgundaginn til þess að ná í rjúpu. Ætli ég verði ekki að sætta mig við rjúpulaus jól eina ferðina enn (hefur ekki verið jólamatur hingað til þannig að maður ætti að þola þetta). Núna er bara að herða leitina eftir bát fyrir svartfuglinn, verð eiginlega að ná mér í svoleiðis eftir að hafa smakkað einn æðislegan á Indverskum stað um daginn.

Kveðja frá einum sem er enn í sæluvímu eftir tónleikana...
Magnús

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Engin rjúpa...
Það er að vísu eðlileg skýring á því, ég hef ekki farið á veiðar síðan ég og Gísli fengum okkur göngutúr um daginn. Annars er rjúputíminn að verða búinn og ég geri alveg ráð fyrir rjúpulausum jólum þar sem ég verð fyrir sunnan um næstu helgi (síðasta veiðihelgin). Maður verður að reyna að ná í önd og svartfugl þar sem rjúpuna skortir og ef allt þrýtur er það bara leirdúfan, sem er að vísu frekar hörð undir tönn.

Æfingin á Seyðisfirði gekk bara nokkuð vel held ég. Við sigldum bátunum okkar frá Norðfirði en fengum lítið að gera á þeim. Sem betur fer höfðum við ákveðið að hafa vaðið fyrir neðan okkur og tókum landgalla líka með og enduðum við á hlaupum með "sjúklinga" fram og til baka í greiningarstöðinni. Veðrið var fínt og við fengum góða siglingu auk góðrar hlaupa- og burðarþjálfunar. Ég held að Norðfirðingar hafi verið fjölmennastir þarna og eftir því sem mér skilst þá stóðum við okkur bara þokkalega (hvort það sé rétt sem ég heyri eða ekki).

Ég kem suður til Sódómu næstu helgi . Er að fara að sjá Sigur Rós, vona að tónleikarnir verði jafn magnaðir og þeir sem ég hef séð áður (11 af 10 mögulegum í einkunn). Kíki líklega í "léttöl" með Jóni Einari sem er kominn heim frá ameríkunni.

Solla frænka var ekki ánægð með baráttu mína fyrir því að jólin séu haldin á réttum tíma. Þetta eru kanski slæmar minningar hjá mér úr æsku. Ég er ennþá að jafna mig á jólalagaóþoli sem ég þróaði eftir að hafa unnið í Hagkaup um tvenn jól. Eins var líffræðin svo skemmtileg að maður mátti ekki byrja að hugsa um jól og jólaundirbúning fyrr en 22. des. Þá var maður frekar slappur eftir próftímann og próflokafagnað 21. des (síðasta próf var alltaf þá, slapp aldrei við það). Solla ætti að muna eftir að hafa dröslað mér hálf glærum að versla á sínum tíma. Annars bjargaði Anna Sigga mér alltaf á þessum tíma með því að hugsa um jólagjafir allan desember, og bjargar mér stundum enn :)

Rakst á blogg-síðu þar sem einn ætlaði að fara að skammast yfir ótímabærum jólum. Hann hætti að vísu við það eftir að hafa séð eftirfarandi auglýsingu, skiljanlega.



Núna hefur maður mest áhyggjur af því að um næstu áramót verði það árið 2007 sem gengur í garð, ekki 2006.

Mamma og pabbi eru komin til Köben núna, væri alveg til í að vera þar líka.

Kveðja úr jóla-rjúpuleysinu
Magnús

föstudagur, nóvember 18, 2005

Jólatíminn...
..byrjar ALLT of snemma. Þegar ég var á Akureyri 19. október (fyrir mánuði) voru komnar jólaskreytingar í Rúmfatalagerinn, enda ekki nema rúmir tveir mánuðir til jóla. Persónluega finnst mér að jólaundirbúningur eigi að byrja með aðventunni (fyrir utan rjúpuveiðar, en þar sem rjúpan er ekki jólamatur hjá mér fellur veiðin ekki undir jólaundirbúning). Ég get alveg fyrirgefið verslunum að byrja núna að skreyta en í október..... nei takk.



kveðja
Magnús jólasveinn

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Rjúpur..
Ég er loksins kominn með alla pappíra til skotveiða í hendurnar. Ég fjárfesti í rússneskri tvíhleypu í fyrradag og í gær tókum ég og vinnufélagi minn frí þar sem veðrið var svo gott, sól og 8 stiga frost (og logn meira að segja). Við fengum okkur góðan göngutúr í harðfenni og hálku en veiðin var ekki eins og við vildum, Gísli náði einni en ég ekki neinni. Fjögur stykki sluppu frá okkur og verða að bíða betri tíma. Við sáum sem sagt heilar 5 rjúpur á 5 tíma göngu og 9 kílómetrum, ekki neitt agalega mikið. Núna er maður með harðsperrur og marbletti eftir nokkrar byltur í hálkunni. Síðan er bara að vona að það gefi fleiri tækifæri til að reyna að veiða rjúpu það sem eftir er mánaðar.

Ég var í bænum um síðstu helgi. Ég fór með þeim Kidda og Magga Gauta á leikhús, sáum Woyzeck sem Vesturport setti upp og Nick Cave samdi tónlistina við. Maður varð alls ekki fyrir vonbrigðum með þetta verk og mæli ég með að fólk sjái það ef það hefur tækifæri til þess. Ég fór líka í tveggja ára afmæli hjá Sigurði Orra frænda en að öðru leiti var þetta frekar róleg helgi. Ég kem næst í bæinn eftir rúma viku, stefnan tekin á tónleikana með Sigur Rós. Annað er ekki planað um þá helgi enn sem komið er.

Um næstu helgi er stór æfing á Seyðisfirði þar sem hermt verður eftir bruna í bílaferju. Þetta er stór æfing og tekur allt almannavarnabatteríið þátt í henni. Ég verð á bátnum frá Norðfirði og fæ að sigla þaðan til Seyðisfjarðar (og til baka geri ég ráð fyrir). Ég hef ekki siglt norðar en að Dalatanga ennþá þannig að það er fínt að sjá nýja staði (hef að vísu komið nokkrum sinnum á Seyðisfjörð áður en aldrei frá sjó). Spáin er fín enn sem komið er, hlýtt og rigning en ekki mikill vindur.

Pakistan:
Ég hef ekki skipt um skoðun varðandi þau mál, alls ekki eftir svör Árna Mathiesen í umræðum sem urðu á alþingi.

Plús fá:
Skátar fyrir sitt framlag
Ögmundur Jónasson fyrir að bera málið upp og Pétur H. Blöndal fyrir láta sinn flokk heyra það (frétt um málið)
Íbúar að Miðleiti 5-7 fyrir sitt framlag
Íslenskir fjölmiðlar fyrir að fjalla um málið og gleyma því ekki eins og stundum gerist.

fimmtudagur, október 27, 2005

Eru pakistanar ómerkilegri en annað fólk?
Fyrir skömmu síðan varð öflugur jarðskjálfti í Pakistan. Tala látinna í frétt sem ég sá ekki fyrir löngu var komin yfir 80.000. Þessi tala fer hækkandi þar sem erfitt er að koma hjálpargögnum á svæðið og vetur er að ganga í garð. Illa hefur gengið að fá fjármagn til hjálparstarfa og virðist sem mörgum sé nokk sama um ástandið, amk mætti halda það. Íslendingar hafa að vísu verið nokkuð gjafmildir og höfðu amk 3000 manns hringt í rauða krossinn og gefið 1000 kr hver. Ég hef aftur á móti mikla skömm á ríkisstjórn okkar, sem að vísu gaf 18,5 milljónir til hjálparstarfa. Ríkisstjórnin gaf aftur á móti 31 milljón vegna fellibylsins Katrina sem gekk yfir Bandaríkin. Tjónið í Pakistan er margfalt á við það sem var í Bandaríkjunum, fjöldi látinna gríðarlegur og á eftir að aukast, jafnvel tvöfaldast. Bandaríkin mjög efnuð, hafa mikla þekkingu og öll þau tæki og mannskap sem þarf til uppbyggingar. Pakistan er ekki efnað miðað við Bandaríkin, þekking þar er ekki jafn mikil, tæki eru ekki til staðar í nægu mæli og landslag hefur gert það illmögulegt að koma aðstoð til margra svæða auk þess sem vetur að ganga í garð. Þrátt fyrir þetta gefur íslenska ríkið miklu meira til Bandaríkjanna en Pakistans. Þess vegna spyr ég; eru pakistanar ómerkilegri en annað fólk?

Sameinuðu þjóðirnar berjast hart í því að útvega fjármagn en gengur ekki nógu vel. Hjálparstofnanir tala um hvað ríkar þjóðir eru tregar til að gefa til hjálparstarfsins. Á ráðstefnu sem var haldin í Genf tókst að afla loforða um nokkuð fjármagn en aðeins hluta af því sem Sameinuðu þjóðirnar höfðu sett sér. Þar af gáfu Indverjar 25 milljónir dollara, til aðstoðar gömlum erkióvin. Íslenski rauðikrossinn er búinn að gefa 20 milljónir úr neyðarsjóð sínum og ég nokkra þúsundkalla úr mínum sjóðum. Ég hvet ykkur til að gefa til hjálparstarfsins, íslenska ríkið gerir það ekki.....

Frétt um aðstoð íslenska ríkisins til Pakistans
Frétt um söfnun rauða krossins
Frétt BBC um aðstoð Indlands
Tillkynning forsætisráðuneytisins um styrk vegna Katrina

Rauði kross Íslands þar sem hægt er að gefa til hjálparstarfsins

Magnús - búinn að skammast aðeins...

mánudagur, október 17, 2005

Pólverjar.....
Þar sem Maggi Gauti hefur verið að segja sögur af Pólverjum hjá sér verð ég að taka þátt líka. Eins og menn vita þá hafa þeir verið fluttir hingað á Reyðarfjörð í gámatali undanfarið. Eins og gefur að skilja þá er tungumálakunnátta þeirra æði misjöfn og ekki tölum við mikla pólsku. Miðað við fjölda Pólverja og Íslendinga á svæðinu þá fer held ég að verða spurning hvort á að kenna þeim íslensku eða okkur pólksu. Ég fór á pöbbinn um daginn, sem ég geri nú ekki oft, og eftir lokun þá byrjuðu einhverjir pólverjar að slást. Að Íslendinga vildu maður sjá hvað var í gangi en einn pólverji kom og vildi ekki hleypa mér nálægt hópnum, hefur haldið að ég ættlaði að fara að skipta mér af. Gaurinn talaði ekki stakt orð í ensku en norsku kunni hann og spjallaði mikið við mig. Þegar löggan kom þá stoppuðu slagsmálin og allir pólverjarnir hurfu á augabragði. Það er sennilega ekki gott fyrir þá að vera teknir af löggunni.

Um helgina fór ég aftur á pöbbinn að hlusta á þá Hvanndalsbræður, mjög skemmtilegir. Eftir lokun þá stóðum við nokkrir fyrir utan að kjafta saman en þá koma til okkar tveir pólverjar. Þeir töluðu bara pólsku, enga ensku, þýsku og ekki heldur norsku. Þeir fóru að tala við okkur (mjög djúpar samræður...) en það eina sem við skildum hjá þeim var "sex" og "money" og er það minn skilningur að þeir vildu fá að vita hvar hægt væri að kaupa kynlífsþjónustu. Núna velti ég því fyrir mér hvort það sé þjónusta sem álversmenn hafi gleymt að gera ráð fyrir hingað til?

Annars var eitt merkilegt við pöbbinn um helgina. Þarna var meira af kvenfólki heldur en hefur verið í síðustu 4-5 skiptin sem ég fór á pöbbinn, samanlagt. Og þær voru samt í miklum minnihluta........ Ég bý á vitlausum stað.

Rjúpnaveiðitíminn byrjaði um helgina. Ég sjálfur fór ekki að veiða enda ekki kominn með veiðikortið og á ekki byssu. Ég er samt kominn með byssuleyfið enda kominn tími til, tók námskeiðið fyrir næstum því ári. Sá í sjónvarpinu að veiðimenn sæktu mikið hingað austur í rjúpuna. Það hlýtur að vera af gömlum vana því hér er engin rjúpa. Ég hef ekki séð eina einustu undanfarið og aðrir hafa séð lítið. Það er sagt að rjúpu hafi fjölgað mikið, þrefaldast jafnvel og það má vel vera. Fjölgun úr 100 rjúpum í 300 hefur samt lítið að segja. Hitti einn sem fór að veiða og sá eina rjúpu. Félagi hans skaut að vísu 3 og sá eina í viðbót og þeir höfðu fregnir af öðrum hópum sem sáu ekki neitt. En þetta er kanski bara eðlilegt, hef aldrei farið á rjúpu sjálfur.

Búinn að komast að því að það eru amk 4 sem lesa þetta bull mitt. Mamma, Solla frænka, Maggi Gauti og Jón Einar. Mér líður miklu betur að vita þetta :)

Kveðja að austan þar sem enginn snjór er lengur.
Magnús