fimmtudagur, september 30, 2004

Núna er kominn mánuður síðan ég skrifaði hérna síðast, kominn tími á að bæta smá bulli við. Hér gengur allt sinn vanagang eins og venjan er. Búinn að fara norður á Melrakkasléttu að mæla og labbaði Hofsárdal í Vopnafirði á þriðjudaginn í frábæru veðri. Við mælingar um daginn kom bóndinn á eftir okkur og týndi upp alla hælana sem við höfðum nelgt niður, okkur til mikillar gleði.

Mamma og pabbi komu í heimsókn um daginn. Við borðuðum góðan mat (grillaða hrossalund og humar) og prófuðum nýja golfsettið mitt.

Hér fyrir austan er komin ný tíska, hér eru menn í skærgulum vestum, með gleraugu og hjálm á hausnum sama hvað menn eru að gera. Það er Alcoa sem kom þessari tísku af stað og er það þannig í dag að menn eru stöðugt svona til fara. Þetta gengur nú helst til langt að margra mati, bílstjórar verða að vera í vesti, öryggisskóm og með hjálm þegar þeir eru að keyra og ef þeir opna gluggann verða þeir að setja upp öryggisgleraugun. Það eiga allir að vera í síðermapeysum líka og eftir mikið þras og langan umhugsunartíma féllst alcoa á að leyfa mönnum að vera í stuttermabolum í hitabylgjunni, bannað samt að vera í ermalausu. Menn meiga ekki heldur pissa utandyra eða hoppa niður úr vélunum, mönnum hefur verið hótað brottrekstri fyrir slíkt. Hitti mann í gær sem hafði fari einu þrepi of hátt í tröppum, var kominn yfir 1,8m frá jörðu. Menn urður alveg vitlausir því það er bannað að fara hærra en 1,8m frá jörðu nema að vera í öryggislínu.

Við í björgunarsveitunum vorum að þrífa verkamannaskúrana fyrir alcoa í gær og við þurftum að hafa hjálm og gleraugu innandyra, fengum að sleppa öryggisskónum. Gömlu félagar mínir hjá Náttúrustofu er líka himinlifandi með þetta allt, þau þurfa að vera í vesti, öryggisskóm, með hjálm og gleraugu þegar þau eru að skoða gróður utan við álverslóðina, líka þegar þegar þau skoða gróður innanbæjar hér á Reyðarfirði. Þau sluppu reyndar við að fara í lyfjapróf og ég veit ekki hvernig það er með heilsufarsupplýsingarnar um starfsmennina sem alcoa vill fá. Ég held að sumir þurfi alvarlega að láta skoða á sér kollinn.......

kveðja af vitleysingahælinu Reyðarfirði
Magnús

föstudagur, ágúst 27, 2004

Núna er ég búinn að vera fyrir sunnan 2 helgar í röð og ætla því að prófa að vera hérna fyrir austan núna. Var á fundi í Vestmannaeyjum fyrir 2 vikum og var það mjög fínt í alla staði, veðrið lék við okkur fyrir utan að það var svarta þoka 1 dag, samt hlýtt og gott. Um seinustu helgi fór ég á tónleikana með Lou Reed sem voru vægast sagt stórkostlegir. Sá hann á Hróarskeldu um árið og var alls ekki hrifinn þá þannig að þetta kom manni á óvart. Maður var að vísu búinn að heyra að hann væri mistækur á tónleikum, sem var ástæðan fyrir því að ég ákvað að reyna aftur. Síðan var menningarnóttin ekki slæm heldur. Stefnan þessa helgi er á Norðfjörð þar sem Austurland Rústabjörgun er að búa til æfingasvæði í gömlum fjárhúsum.

Stefán og Steinunn eru víst að koma og ég missi af því að hitta þau í þetta skiftið. Vonandi gengur bara betur næst. Hver veit líka nema að maður kíki til Köben einhverntíma. Annars er allt rólegt hérna fyrir austan. Ég er víst kominn með fastráðningu sem starfsmaður deildar á Akureyri, með aðsetur á Reyðarfirði. Ég er titlaður verkefnisstjóri og núna bíð ég eftir að fá að vita nákvæmlega hvað það þýðir.

Búinn að setja nokkrar myndir af ferðinni í Vöðlavík. Ég setti þær inn á síðu Björgunarsveita á Austurlandi þar sem mér fannst það meira viðeigandi (og sparar plássið hjá mér líka...)

kv
Magnús

þriðjudagur, ágúst 03, 2004

Þá er verslunarmannahelgin búin og vinnan byrjuð aftur. Ég var í gæslu aðfaranótt laugardags, bæði á unglingaballi og eftir það í bænum fram undir morgun. Allt gekk vel fyrir sig, engin læti eins og í fyrra og lítið að gera hjá okkur. Fór á Papaball á laugardeginum og skemmti mér mjög vel.

Ég er búinn að setja inn nokkrar myndir úr sjóstangveiðinni og úr Veiðivötnum, á eftir að setja inn einhvern "gáfulegan" texta en það kemur vonandi bráðlega.

kv
Magnús

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Jæja, núna er ég búinn að vera í Vöðlavík með unglingadeildunum og í Veiðivötnum með mömmu og pabba, hvoru tveggja hepnaðist mjög vel. Við vorum með rúmlega 30 krakka í ferðinni og þeir fengu að síga í klettum, prófa dótið í rústakerrunni og smá skyndihjálparkenslu. Ég var sjálfur í að kenna skyndihjálpina, kann að vísu ekki mikið í þeim efnum en það var sjúkrafluttningamaður sem var aðalkennari. Við lékum okkur einnig með fluglínubyssuna og fretuðum nokkrum útrunnum skotum út í loftið. Eitt skotið frá mér endaði ofan í læk og sprakk með miklum látum og mislitum ljósum, krökkunum til mikillar skemmtunar.

Veiðivötn voru fín eins og ávallt, veiðin að vísu ekki mikil í fjölda talið. Pabbi fékk einn 3 punda, ég fékk einn um 6 pund (mjög skemmtilegur) og 2 titti sem ég tók á flugu, sem var líka skemmtilegt enda fyrstu fiskarnir sem mér tekst að fanga með flugustönginni. Kristín, Valur, Anna Dóra, Sigrún og Ismael komu í heimsókn til okkar og var grillað og borðað úti.

Framundan er Verslunarmannahelgin og verð ég hérna fyrir austan. Verð eitthvað í gæslu á Neistaflugi og stefni á að komast á ball þar líka.

Það hafa fáir notað þennan vef, er að velta fyrir mér hvort nokkur lesi hann heldur? Endilega skrifið fréttir eða comment (hérna undir) svo ég sjái hvort ég sé einn um að nota þetta eða ekki.

kv
Magnús

mánudagur, júlí 12, 2004

Núna er vinnuvikan byrjuð eftir helgina sem fór að mestu í að horfa á formúluna, leti og að sleikja sólina. Fór að vísu í golf á Eskifirði og gékk það svona upp og niður eins og vanalega. Næstu helgar eru sýnist mér nokkuð vel skipulagðar. Um næstu helgi er fjórðungsmót unglingadeilda björgunarsveitanna hér fyrir austan og verður það í Vöðlavík. Ég er svona hálfvegis búinn að bjóða mig fram í að vera á staðnum en ég hugsa að það geti orðið mikið fjör. Markmiðið er að krakkarnir verði þreyttir í heila viku á eftir :)

Helgina þar á eftir er síðan Veiðivatnaferð, nú verður hann sko drepinn í tonnatali. Ég kem að sjálfsögðu suður en stoppa lítið. Þetta er að vísu hálf asnalegt að fara alla leiðinni til Reykjavíkur til þess eins að fara hálfa leiðina til baka austur, það er markt skrítið í kýrhausnum (sérstaklega í mínum).

Helgin þar á eftir er síðan Verslunarmannahelgin ógurlega. Það stefnir allt í að ég verði í gæslu á Neistaflugi eins og í fyrra. Það var að vísu síður en svo slæmt að vera í þessu hlutverki, gaman að sjá sukkið frá hinni hliðinni. Spurning hvort að okkur verði raðað upp í "Belfast uppstillingu" aftur þetta árið.

kv
Magnús

mánudagur, júlí 05, 2004

Núna er ég kominn austur í sólina og blíðuna eftir að hafa farið á Metallica tónleikana í gær. Tónleikarnir voru eins og við var að búast, frábærir. Maður kom heim alveg búinn í löppunum, svitastorkinn af hitanum og þrengslunum (blöðin eru ekki að ýkja, þetta var 18 þúsund manna gufubað) og suðið í eyrunum er smám saman að hverfa.

Annars er lítið að frétta héðan að austan, lífið gengur sinn vanagang eins og vanalega. Náði að hitta allt of fáa fyrir sunnan eins og oft vill verða, helgin er búin áður en maður veit af. Næsta heimsókn í bæinn verður sennilega ekkert skárri í þeim efnum en þá kem ég til að fara með í Veiðivötn. Hef heyrt góðar sögur af veiðinni þar og nú er bara að vona að það verði mok-fiskerí.

Kveðja að austan
Magnús

föstudagur, júní 11, 2004

Hér er hægt að skrifa sig á undirskriftarlista til að mótmæla meðferð fanga í Guantanamo


Magnús

fimmtudagur, maí 13, 2004

Núna er ég búinn að bæta við þeim möguleika að hver sem er getur skrifað athugasemdir við fréttaskot. Þetta er gert með því að velja comments sem er fyrir neðan fréttaskotið.

Það eru smá vandræði með eldri fréttaskot, þau fara út af síðunni eins og hún er núna og tenglarnir hérna til hægri virka ekki. Vona að mér takist að finna út úr því en ég er búinn að komast að því að eldri fréttaskotin eru ennþá til, þau eru ekki glötuð.

Ég er síðan á leiðinni suður á morgun (föstudag) og mun fara í sjóstangveiði með afmælisbörnunum (Hjalti, pabbi og Gunni) á laugardag. Síðan er að sjálfsögðu Evróvision :)

Kveðja að austan
Magnús

laugardagur, maí 08, 2004

Núna er ég loksins búinn að setja inn myndir úr Ameríkuferðinni. Á eftir að setja texta með mörgum myndum og laga það sem ég er búinn að skrifa við sumar myndirnar. Þið getið fundið myndirnar hér

Næst á dagskrá verður síðan sjóstangveiði í tilefni af afmæli Hjalta. Ég er sem sagt að koma suður um næstu helgi. Og síðan er ég kominn með miða á Pixies og Metallicu, brjálað stuð :)

Kveðja að austan
Magnús

miðvikudagur, mars 17, 2004

Loka hluti ferðasögunnar.

Við keyrðum til Washington frá New York á þriðjudaginn en komum við í New Jersey þar sem við skoðuðum japanskan markað og smökkuðum Sushi. Þegar við komum til Washington fórum við beinustu leið í Georgetown og fengum okkur að borða. Eftir matinn var förinni heitið til foreldra Mimi þar sem við síðan gistum. Það var að sjálsfsögðu verslað (stelpurnar skoðuðu 4 búðir á meðan við strákarnir löbbuðum um allt svæðið) og Washington skoðuð. Eftir að hafa skoðað Hvíta húsið að utan (bannað að fara inn og búið að girða það af öðru megin þannig að það þarf kíki til að skoða það) og þinghúsið fórum við að skoða Smithsonian, flugsafnið. Þegar þangað var komið voru menn svangir og fengum við okkur því pylsur fyrir utan. Þar tökum við eftir manni sem situr eiginlega alveg við hliðina á okkur en sami maður hafði verið að þvælast í kring um okkur við þinghúsið. Hvernig á þessu stendur vitum við ekki enda hafði enginn hug á því að spyrja manninn að því. Okkur grunar helst að okkur hafi tekist að vekja athygli leyniþjónustunnar þegar við tókum myndir af þyrlu sem kom að Hvíta húsinu sem og leyniskyttum á nálægu húsþaki en einnig vorum við á stórum svörtum bíl með dekktum rúðum og með bílstjóra sem hleypti okkur út þar sem við fórum um og tók okkur aftur upp þegar við vorum búin að skoða nægju okkar (þ.e. Hvíta húsið og þinghúsið). Sem betur fer hvarf maðurinn fljótlega eftir að inn á safnið kom og við urðum ekki vör við fleiri grunsamlega gaura (en hver veit svo sem).

Á föstudeginum hitti ég Matt vin minn sem var að læra með mér í Lundi. Hann býr í Georgetown í gömlu húsi sem er skakkt á alla kanta, gólfið er meðal annars mjög hallandi. Við skoðum Washington aðeins meira, kíktum á helfarasafnið sem er mjög gott. Þar var meðal annars sagt vel frá því hvernig nasistar komust til valda og síðan var sagan rakin í gegn um stríðið. Við lentum í tímaþröng þar sem við komust seint inn á aðal sýninguna og náðum því ekki að skoða nægju okkar. Að sjálfsögðu var borðaður meiri góður matur og kíkt á næturlífið. Á mánudeginum skoðaði ég síðan njósnasafn sem var skemmtilegt. Þar var sagt frá sögu njósna og ýmiskonar búnaður sýndur. Eins og áður var hluti safninsins skoðaður í flýti þar sem ég vildi komast niður í Georgetown í sólina og hitann áður en ég færi út á flugvöll.

Nú er ég loks kominn heim aftur og á von á Önnu og Paul sem koma á morgun í heimsókn

Magnús

þriðjudagur, mars 09, 2004

Nuna er eg buinn ad labba mig upp ad hnjam, samt er eg sennilega ekki buinn med nema brot af thvi sem Hjalti og Bjossi eru ad fara ut i. Eg flaug til New York a fostudaginn og lenti i thvi ad flugvellinum var lokad vegna lelegs skyggnis. Eftir rumlega klukkutima hringsol i haloftunum var lent a flugvellinum i Philadelphia og mattum vid bida thar. Thegar flugvollurinn i NY var loksins opnadur aftur var lagt af stad en rett adur en velin lenti var hun rifin upp aftur, svaka fjor. Thad tokst tho ad lenda i naestu tilraun og tha bidu Tom og Mimi eftir mer a flugvellinum asamt Onnu sem thau voru buin ad na i. Eftir thetta var stefnan tekin upp i sveit og farid i sumarhus her i Connecticut fylki, nanari stadsettningu veit eg ekki enda var svarta thoka a leidinni.

Eg eyddi gaerdeginum og deginum i dag i ad skoda NY. Thetta er vaegast sagt STOR-borg og mikill munur a milli sunnudags og manudags. Eg er buinn ad fara upp i Empire State bygginguna og utsynid thar er vaegast sagt frabaert. Eg for lika upp i Central Park sem var fullur af folki i gaer enda sol og blida. Vedrid i dag hefur ekki verid jafn gott, rigning og snjokoma, sma munur fra Louisiana. Let thad samt ekki stoppa mig fra thvi ad labba upp a Times Square og ad byggingu Sameinudu thjodanna. Er lika buinn ad sigla fram hja Frelsisstyttuni en for ekki i land thar.

A morgun er sidan stefnan ad skoda Kinakverfid i NY og keyra sidan til Washington DC eftir ad hafa nad i Onnu og Paul i NY.

Med kvedjum ur snjonum
Magnus

fimmtudagur, mars 04, 2004

Takk Sveinn, er búinn að skoða þessa götu. Hef því miður ekki getað skoðað New Orleans að kvöldi til en það sem ég sá lofaði mjög góðu :-)
Á sprengidaginn, sem var í síðustu viku, var Mardi Gras sem er kjötkveðjuhátið heimamanna en einnig hin mikla hátíð perlufestanna. Því miður var ég of seint á ferðinni fyrir fjörið en mér skilst að þetta hafi verið mikið.

Við fórum í gær og skoðuðum dýragarðinn í New Orelans, ætluðum líka að skoða sædýrasafnið en komust fljótt að því að við höfðum ekki tíma fyrir hvoru tveggja. Við vorum búnir að ákveða að byrja á dýragarðinum þannig að sædýrasafnið varð útundan. Við tókum "street car" frá miðbænum að næsta nágrenni garðsins og gengum þaðan. Þessi street car er sporvagn sem er búinn að vera í gangi frá því um þar síðustu aldamót. Þetta var mjög gaman og gaf manni gott tækifæri á að virða aðra hluti borgarinnar fyrir sér sem maður hafði ekki tækifæri á að skoða í þetta skiftið. Dýragarðurinn var mjög flottur og hefði farið fyrir ofan garð og neðan hefðum við ætlað að halda okkur við upphaflega planið. Sáum meðal annars hvítan alligator sem eru víst mjög sjaldgæfir en líka skógarbjörn og kattardýr sem eiga heima hér á svæðinu er eru í útrýmingarhættu og því mjög sjaldgæft að sjá villt. Síðan voru þarna auðvitað fullt af öðrum dýrum sem ég ætla ekki að telja upp núna.

Maður hefur að sjálfsögðu haldið áfram að borða góðan mat og í fyrradag prófaði ég alveg nýjan rétt, grillaðan alligator. Hann var að sjálfsögðu mjög góður eins og annað sem ég hef smakkað hérna. Aðal rétturinn hérna um þessar mundir er crawfish (crayfish minnir mig að hann sé einnig kallaður) en þetta er nokkurskonar ferskvatns humar. Ég er að sjálfsögðu búinn að borða mikið af honum og hann er mjög góður. Þar sem við borðuðum í fyrradag var fólk með stór föt af þessu á borðinu, oftast fleiri en eitt. Þegar við komum á staðinn þá var fullt út úr dyrum sem við bjuggumst ekki við. Ástæðurnar voru tvær. Annars vegar er tímabilið fyrir crawfish núna og hins vegar þá er fastan byrjuð og fólkið hér er mjög kaþólskt.

Á morgun er stefnan tekin á New York þar sem ég hitti vini mína frá Lundi. Planið er að mér skilst að fara í sumarhús í nágrenninu og keyra síðan niður til Washington.

Kveðja úr villta vestrinu ;-)
Magnús

þriðjudagur, mars 02, 2004

Jæja, núna er ég kominn til Bandaríkjanna og búinn að vera í Louisiana fylki frá því á sunnudag. Við byrjuðum á að fara til New Orleans þegar ég kom hingað og við röltum þar um fram á kvöld og borðuðum góðan mat. Þetta er mjög skemmtileg borg og skemmtilegar byggingar í franska hlutanum. Þarna er mjög líflegt næturlíf en við fórum áður en það byrjaði enda var ég ennþá á íslenskum tíma, maður verður jú að eiga eitthvað eftir.

Í gær fórum við til suðurhluta Louisiana og skoðuðum fenjasvæði og verndarsvæði fyrir fugla. Þarna sáum við að sjálfsögðu fullt af fuglum sem maður hafði ekki séð áður og einnig nokkrar eftirlegukindur af snjógæsum en það er fuglinn sem Jón Einar er að rannsaka hérna. Það var gaman að sjá fenjasvæðin en þau eru örlítið frábrugðin leiruviðarskógunum í Asíu. Samt bera tréin sömu einkenni með loftrætur upp úr vatninu. Við sáum einnig nokkra alligatora, beltisdýr og bjórrottu. Beltisdýrið var meira að segja að þvælast alveg upp við bílinn okkar og gátum við skoðað það vel og tekið fullt af myndum.

Í dag er ætlunin að skoða háskólasvæðið hérna í Baton Rouge þar sem Jón Einar býr og á morgun er stefnan á dýragarðinn og sædýrasafnið í New Orleans.

Var að vona að ég gæti sett inn myndir en ég get því miður ekki tengt myndavélina við tölvuna hérna þannig að myndirnar verða að bíða betri tíma

Magnús