fimmtudagur, apríl 07, 2005

Rauða ljónið, landsæfing, Danmörk....

Ég var fyrir sunnan um páskana og hafði það gott að vanda. Eina vandamálið var læðan í næsta húsi, hún var meira en til í slaginn ef fress var á svæðinu og þeir komu nokkrir að heimsækja hana. Verst var breimið á næturnar. Mamma bannaði mér að koma nálægt gluggum í fleiri daga daga því hún var svo hrædd um að ég sæi eitthvað ósiðsamlegt úti...........

Að öðru leiti voru páskarnir eins og þeir eiga að vera, fullt af mat, hitta vini og ættingja, kíkja á lífið í bænum. Ég meira að segja fór í aðlögun áður en ég kom suður, stoppaði á Akureyri í nokkra daga þar sem ég var á námskeiði og að vinna. Var hjá Magna og fjölskyldu hans, vona að þau séu að verða búin að jafna sig.

Núna um helgina er landsæfing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Við sjáum um sjóverkefnin, bæði leit og björgun á sjó og kafarana. Það er búið að búa til slatta af dúkkum og þyngja þær með hinu og þessu fyrir liðið að glíma við. Einnig er búið að munstra unglingadeildir á austurlandi í sjúklinga. Veðurspáin er ágæt á laugardaginn sem og á morgun þegar við ætlum að sigla bátunum frá Norðfirði yfir á Reyðarfjörð. Rúmlega 300 manns búnir að skrá sig, að vísu bara hluti í sjóbjörgun og köfun.

Í næstu viku fer ég síðan til Danmerkur og Svíþjóðar. Ég er að fara á ráðstefnur í Lundi, hitti m.a. fullt af gömlum skólafélögum þar. Ég verð hjá Stefáni og Steinunni þegar ég er í Danmörku en næ vonandi að hitta Skúla og Tinu líka.

Set myndir af rauða ljóninu hérna, mamma er búin að vera að biðja um þær í langan tíma. Set líka inn myndir af snjóflóðaleitarnámskeiðinu inn á heimasíðuna mína eða síðuna hjá Björgunarsveitum á Austurlandi.

kv
Magnús



<>

laugardagur, mars 05, 2005

Rauða ljónið.....
Kominn á nýjan bíl. Imprezan kom síðasta mánudag, eldrauð á litinn. Ég ætla ekki að kalla hann rauða ljónið, fannst þetta bara vera ágætis fyrirsögn. Það er allt annað líf að vera kominn á þennan bíl, hann rennur upp Oddskarðið eins og ekkert sé á meðan ég þurfti að pína Nissaninn gamla upp og fór miklu hægar yfir. Ég hef verið spurður að því hvort ég hafi fengið mér turbo-útgáfu en eftir að hafa keyrt þennan skil ég ekki hvað í ósköpunum fólk er að vilja með turbo í þessa bíla, alveg meira en nægur kraftur í þessum. Ég er ekki með myndavélina mína hérna fyrir austan eins og er þannig að ég get ekki sett inn myndir af tryllitækinu strax.

kveðja af þjóðveginum
Magnús

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Ævintýraleg helgi

Ég fór suður um helgina þar sem við fögnuðum afmæli mömmu. Á föstudagsmorgni komu Anna Sigga, Gunna og fjölskyldur og vorum við með morgunkaffi fyrir mömmu. Seinni part dags var síðan keyrt úr bænum og stefnan tekin á Flúðir þar sem við áttum pantaða 2 sumarbústaði. Þegar þangað kom runnu á okkur tvær grímur, það var fólk í báðum bústöðunum. Kvittanir voru dregnar upp og þetta virtust vera réttu bústaðirnir en á kvittununum stóð hvað ætti að vera í hverjum bústað, hvar lykillinn var, hvernig ætti að nálgast lykilinn og að bústaðirnir voru greiddir. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að greiðslan hafði ekki borist og bústaðirnir því leigðir öðrum (þrátt fyrir að þeir sendu kvittun fyrir því að allt væri greitt). Nú voru góð ráð dýr og bjuggumst við alveg eins við að hafa sumarbústaðaferð í Reykjavík auk þess sem ekkkert náðist í Gunnu og fjölskyldu sem voru á leiðinni úr bænum. Það tókst samt að redda okkur bústað í Úthlíð og stefnan tekin þangað.

Þá kom að því sem margir hafa beðið eftir í mörg ár, landafræðin klikkaði hjá pabba. Á gatnamótum var beygt í vitlausa átt og snúið við eftir langan akstur (þetta voru að vísu ekki nema nokkrir kílómetrar en hitt er skemmtilegra). Við gátum fengið 2 litla bústaði en völdum frekar 1 þokkalegan stóran og vorum við 12 stykki í honum. Þarna var heitur pottur og gufa og fínt veður. Menn lögðust að sjálfsögðu í pottinn, grilliðu, átu mikið en gufan var ekki orðin heit fyrr en um kvöldið þegar allir lágu afvelta af ofáti og var hún því ekki notuð. Helgin heppnaðist í alla staði vel, þrátt fyrir smá byrjunarörðuleika.

Ferðalagið austur á mánudagsmorgni var í lengra lagi. Biðröðin í flugstöðinni náði út á plan. Okkur var síðan troðið inn í rútu og keyrt til Keflavíkur þar sem þota beið okkar en Reykajvíkurflugvöllur var lokaður vegna þoku. Hér fyrir austan var síðan að sjálfsögðu sól og blíða eins og alltaf (svona næstum því..) en ég kom ekki á Reyðarfjörð fyrr en eftir hádegi. Í gærkveldi var ég síðan á Vopnafirði þar sem var borgarafundur um val á leið fyrir veg. Menn þar voru auðvitað ekki sammála og var nokkuð fjör, þó engin slagsmál.

Bíllinn minn liggur á dánarbeðinu núna. Er búinn að panta mér nýjan Subaru Impreza, fæ vonandi að vita núna á eftir hvenær hann kemur. Ef einhvern vantar Nissan Sunny Wagon '91 sem þarfnast viðgerða þá endilega hafa samband ;)

kveðja úr sólinni (sem er farin að skína á öll húsin í bænum)
Magnús

föstudagur, febrúar 04, 2005

Þá er kominn nýr mánuður og kominn tími til að setja inn smá línu. Þorrablótið var að sjálfsögðu mjög gott. Það var meira að segja gert grín að einu atviki sem ég átti þátt í, aðallega þó bóndanum sem kom á eftir okkur þegar við vorum að mæla og færðu okkur alla hælana sem við höfðum stungið niður. Það tók 2 daga að fyrir einn mann að setja hælana aftur á réttan stað.

Um síðustu helgi átti að vera snjóflóðaleitarnámskeið. Við vorum farnir að halda að námskeiðið fælist í því að leita að snjóflóðum en ekki í þeim enda lítið orðið eftir af snjó. Við fórum tveir á Seyðisfjörð kvöldið fyrir námskeiðið og kíktum á barinn hjá félaga okkar þar. Hann lét okkur líka hafa heilt hús til að gista í, ekki slæmt. Þarna var hávaða rok og bjuggumst við alveg eins við því að verða rifnir út til að elta þakplötur og ruslatunnur um bæinn en sem betur fer fengum við að sofa í friði. Ekkert varð af námskeiðinu þessa helgi þar sem enginn kennari kom, ófært með flugi vegna veðurs. Aðfaranótt sunnudags vaknaði ég tvisvar við píp í símanum mínum, allt á hvolfi á Norðfirði. Þar voru þakplötur, grjót o.fl. að skemma glugga og bíla og bátar losnuðu og strönduðu í höfninni. Við seinna útkallið fór ég niður í björgunarsveitarhús á Reyðarfirði þar sem textinn gaf benti til þess að allt væri á hvolfi á öllu austurlandi, sem ég gat alveg trúað miðað við veðrið. Eina sem ég gerði þessa nótt var að kíkja á rúntinn um bæinn kl. 5 um morgun enda voru engin vandamál hér, þrátt fyrir byggingaframkvæmdir og misgott ástand húsa. Vindur í Oddskarði fór í 51 m/s þessa nótt.

Stefnan er tekin á Akureyri í næstu viku og síðan á að halda snjóflóðaleitarnámskeið 12. feb. Menn bíða eftir því hvort að það fjúki út í veður og vind aftur og hvort það verði snjór fyrir okkur. Helgina þar á eftir er stefnan tekin suður um eina helgi, sumarbústaðaferð með fjölskyldunni. Framundan er einnig undirbúningur vegna landsæfingar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem verður í byrjun apríl. Við sjáum um sjóbjörgunarhlutann, reynum að hafa það blautt og kalt :)

kveðja úr snjónum (sem fer líklega eftir helgi)
Magnús

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Núna er langt liðið á nýtt ár og kominn tími til að skrifa (bulla) smá. Lagðist í flensu milli jóla og nýárs þrátt fyrir að vera sprautaður. Varð að vísu ekki jafn veikur og aðrir sem fengu flensuna þannig að sprautan hefur sennilega gert eitthvað gagn. Þetta varð til þess að ég var bara þægur og góður um áramótin og fór snemma að sofa miðað við venjulega í byrjun árs. Við borðuðum í Neðstaberginu en fórum síðan í eftirmat hjá Önnu og Gunna og horfðum á nokkur tonn að púðri fuðra upp í Reykjavík og nágrenni, frábært útsýni frá þeim.

Um síðustu helgi var árshátíð björgunarsveita á austurlandi haldin á Norðfirði. Ég lét mig að sjálfsögðu ekki vanta og gat ekki betur séð en að allir skemmtu sér jafn vel og ég. Um næstu helgi er stórt þorrablót hérna á Reyðarfirði og náði ég næst síðasta miðanum fyrir það. Hefði ég farið örlítið seinna að kaupa miða hefði ég líklega misst af þessu. Helgina þar á eftir er stefnan sett á snjóflóðaleitarnámskeið á Seyðisfirði, nóg að gera á næstunni. Pabbi og Hjörleifur vinnufélagi hans voru hjá mér og var fínt að fá þá í heimsókn. Kíki líklega í bæinn í febrúar og munum við fara í sumarbústað og halda þar upp á afmæli mömmu.

kv úr snjónum að austan (sem er loksins kominn)
Magnús

þriðjudagur, desember 28, 2004

Meltingatruflanir, næstum því....
Núna er mesta átið búið og maður byrjaður að jafna sig að einhverju leiti. Hamborarahryggurinn var fínn, svolítið saltur að mati sumra en hreindýrið var alveg frábært. Hver veit nema að jólamaturinn breytist eftir þetta.

Fjölskyldujólaveislan í gær var fín að vanda, jólasveinarnir slógu í gegn sýndist mér, aðallega hjá yngstu kynslóðinni og afa. Framundan eru síðan áramótin með tilheyrandi púðri og látum. Munið bara þegar þið kaupið púður (ef þið kaupið það..) að kaupa frá einhverri björgunarsveit, ekki íþróttafélögum eða einkaaðilum. Þetta er helsta fjáröflun björgunarsveitanna og án púðursins væri lítið hægt að gera. Best væri náttúrulega ef þið keyptuð frá Gerpi Norðfirði en það er helst til langt að fara..... ;)

kv
Magnús

föstudagur, desember 17, 2004

Niðurstöður könnunar
Núna eru um það bil 3 vikur síðan ég bullaði hérna síðast og setti upp smá könnum um lestur á fréttaskotinu. Niðurstöðurnar eru þær að ég er sá eini sem skrifa og sennilega les þetta enginn. Eina kommentið sem var skrifað var frá mér sjálfum.

Ég er að koma suður í dag, beint í útskrift hjá Ingimar sem var að klára stúdentinn. Verð fyrir sunnan um jól og áramót, kem með hreindýrasteik í farteskinu fyrir jólin og hlakka til að hitta alla.

Annars er búið að vera rólegt hjá mér undanfarið miðað við hvernig þetta er búið að vera síðustu mánuði. Við héldum loksins aðalfund í björgunarsveitinni. Ég fór ekki á fundinn þar sem veðurspáin var vægast sagt slæm og ég lagði ekki í Oddskarðið. Auðvitað klikkaði það og það var rjómablíða langt fram á morgun. Ég var þrátt fyrir að mæta ekki kosinn sem ritari áfram sem mér finnst bara alveg ágætt. Ég er búinn að koma nokkrum myndum frá Siglufirði inn á vef björgunarsveita á Austurlandi, þær má sjá hérna.

kv
Magnús

föstudagur, nóvember 26, 2004

SMÁ KÖNNUN
Rétt upp hend sem les fréttaskotið.
Ef það virkar ekki smellið á comments (bláir litlir stafir) hérna fyrir neðan og skrifið smá línu.

kveðja
Magnús

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Nóg að gera

Það er orðið nokkuð langt síðan það var skrifað síðast hérna. Það var að vísu ég sjálfur sem skrifaði síðast en ég er svo sem að verða vanur því, spurning hvort að ég sé líka sá eini sem les bullið í sjálfum mér......

En það er annars búið að vera nóg að gera undanfarið. Búinn að vera á fullt af námskeiðum, fyrir sunnan á fundum og að skemmta mér, á þvælingi um landið og að passa köttinn hans Helga sem á íbúðina sem ég leigi.

Tók 3 námskeið í röð hjá björgunarsveitinni, skyndihjálp, á hraðbjörgunarbátinn og á nýja björgunarskipið sem er komið austur. Námskeiðin voru mjög fín, fengum frekar leiðinlegt veður á bátanámskeiðunum en fína æfingu í staðinn. Fengum meira að segja 2 bátaútköll á meðan við vorum á námskeiðinu. Það fór sem betur fer allt vel og við komust varla af stað áður en allt var afturkallað.

Í beinu framhaldi fór ég á skotvopna- og veiðinámskeið. Núna er bara að sækja um byssuleyfi og kaupa byssu, engin rjúpa samt þetta árið.

Er búinn að vera 2 helgar fyrir sunnan en því miður náði ég ekki að hitta nema brot af þeim sem maður vildi hitta frekar en vanalega. Var á fundum hjá Vegagerðinni og ráðstefnu hjá Björgunarsveitunum. Auðvitað var líka kíkt aðeins á lífið þar sem maður var á annað borð kominn í ómenninguna.

Um síðustu helgi var ég á Siglufirði með Austurland rústabjörgun. Þar fékk eitt hús að finna fyrir tækjunum okkar og ég fékk að prófa rústabjörgun í fyrsta skiftið, ekki það síðasta miðað við hvernig þetta var. Ótrúlegt hvað það er erfitt að komast í gegn um eina dýnu, held að steyptir veggir séu léttari. Sjúklingarnir fengu líka sumir að kenna á því þar sem drösla þurfti sumum í gegn um þröng og leiðinleg göt. Hjalti gæfi okkur sennilega ekki topp einkun fyrir frammistöðuna í þeim efnum. Reyndar er takmarkið að koma sjúklingum sem fyrst út og ekki hlúa að þeim nema það allra nauðsynlegasta, síðan fá aðrir þá í hendurnar og þurfa að tjasla þeim saman. Hérna eru nokkrar myndir af æfingunni en ég mun setja inn myndir hjá mér fljótlega.

Núna lítur út fyrir að það verði róleg vika framundan hjá mér, ágætt svona inn á milli. Pabbi kemur í næstu viku, maður þarf að finna eitthvað gott í matinn handa honum.

Kveðja að Austan
Magnús

ps
fólki er leyfilegt að skrifa hérna á síðuna, til þess er hún

þriðjudagur, október 05, 2004

Veðurfréttir
Fór á fund á Norðfirði í gærkveldi þar sem átti að ræða æfingu sem var um helgina og áætlaða fjallaferð um næstu helgi. Þegar búið var að ræða æfinguna og hvað þarf að bæta (fjarskipti og skyndihjálp) og byrjað var á helgarferðinni kom strákur inn og sagði að þak væri að fjúka af nálægu húsi. Þarna ákvað ég að koma mér heim á meðan skarðið væri enn fært, þurfti að fara gamla veginn þar sem verið var að vinna í göngunum. Þegar ég talaði við formanninn um ellefu leitið um kvöldið var búið að bjarga því sam bjargað varð af húsinu og hann bjóst við að menn færu að tínast heim fljótlega. Heyrði síðan í útvarpinu í morgun að þeir komust ekki heim fyrr en um 7 í morgun.

Hérna á Reyðarfiði hefur þetta verið rólegt þrátt fyrir rok og rigningu. Það er byrjað að hausta því í morgun var farinn að koma krapi Fagradal og heiðar. Í Oddskarði var farið að grána núna áðan en í morgun var allt autt. Set hérna með mynd af fyrsta vetrarsnjónum.

Mamma og pabbi eru komin heim frá Lúxemborg, voru mjög ánægð með ferðina heyrðist mér.

kv
Magnús


fimmtudagur, september 30, 2004

Núna er kominn mánuður síðan ég skrifaði hérna síðast, kominn tími á að bæta smá bulli við. Hér gengur allt sinn vanagang eins og venjan er. Búinn að fara norður á Melrakkasléttu að mæla og labbaði Hofsárdal í Vopnafirði á þriðjudaginn í frábæru veðri. Við mælingar um daginn kom bóndinn á eftir okkur og týndi upp alla hælana sem við höfðum nelgt niður, okkur til mikillar gleði.

Mamma og pabbi komu í heimsókn um daginn. Við borðuðum góðan mat (grillaða hrossalund og humar) og prófuðum nýja golfsettið mitt.

Hér fyrir austan er komin ný tíska, hér eru menn í skærgulum vestum, með gleraugu og hjálm á hausnum sama hvað menn eru að gera. Það er Alcoa sem kom þessari tísku af stað og er það þannig í dag að menn eru stöðugt svona til fara. Þetta gengur nú helst til langt að margra mati, bílstjórar verða að vera í vesti, öryggisskóm og með hjálm þegar þeir eru að keyra og ef þeir opna gluggann verða þeir að setja upp öryggisgleraugun. Það eiga allir að vera í síðermapeysum líka og eftir mikið þras og langan umhugsunartíma féllst alcoa á að leyfa mönnum að vera í stuttermabolum í hitabylgjunni, bannað samt að vera í ermalausu. Menn meiga ekki heldur pissa utandyra eða hoppa niður úr vélunum, mönnum hefur verið hótað brottrekstri fyrir slíkt. Hitti mann í gær sem hafði fari einu þrepi of hátt í tröppum, var kominn yfir 1,8m frá jörðu. Menn urður alveg vitlausir því það er bannað að fara hærra en 1,8m frá jörðu nema að vera í öryggislínu.

Við í björgunarsveitunum vorum að þrífa verkamannaskúrana fyrir alcoa í gær og við þurftum að hafa hjálm og gleraugu innandyra, fengum að sleppa öryggisskónum. Gömlu félagar mínir hjá Náttúrustofu er líka himinlifandi með þetta allt, þau þurfa að vera í vesti, öryggisskóm, með hjálm og gleraugu þegar þau eru að skoða gróður utan við álverslóðina, líka þegar þegar þau skoða gróður innanbæjar hér á Reyðarfirði. Þau sluppu reyndar við að fara í lyfjapróf og ég veit ekki hvernig það er með heilsufarsupplýsingarnar um starfsmennina sem alcoa vill fá. Ég held að sumir þurfi alvarlega að láta skoða á sér kollinn.......

kveðja af vitleysingahælinu Reyðarfirði
Magnús

föstudagur, ágúst 27, 2004

Núna er ég búinn að vera fyrir sunnan 2 helgar í röð og ætla því að prófa að vera hérna fyrir austan núna. Var á fundi í Vestmannaeyjum fyrir 2 vikum og var það mjög fínt í alla staði, veðrið lék við okkur fyrir utan að það var svarta þoka 1 dag, samt hlýtt og gott. Um seinustu helgi fór ég á tónleikana með Lou Reed sem voru vægast sagt stórkostlegir. Sá hann á Hróarskeldu um árið og var alls ekki hrifinn þá þannig að þetta kom manni á óvart. Maður var að vísu búinn að heyra að hann væri mistækur á tónleikum, sem var ástæðan fyrir því að ég ákvað að reyna aftur. Síðan var menningarnóttin ekki slæm heldur. Stefnan þessa helgi er á Norðfjörð þar sem Austurland Rústabjörgun er að búa til æfingasvæði í gömlum fjárhúsum.

Stefán og Steinunn eru víst að koma og ég missi af því að hitta þau í þetta skiftið. Vonandi gengur bara betur næst. Hver veit líka nema að maður kíki til Köben einhverntíma. Annars er allt rólegt hérna fyrir austan. Ég er víst kominn með fastráðningu sem starfsmaður deildar á Akureyri, með aðsetur á Reyðarfirði. Ég er titlaður verkefnisstjóri og núna bíð ég eftir að fá að vita nákvæmlega hvað það þýðir.

Búinn að setja nokkrar myndir af ferðinni í Vöðlavík. Ég setti þær inn á síðu Björgunarsveita á Austurlandi þar sem mér fannst það meira viðeigandi (og sparar plássið hjá mér líka...)

kv
Magnús

þriðjudagur, ágúst 03, 2004

Þá er verslunarmannahelgin búin og vinnan byrjuð aftur. Ég var í gæslu aðfaranótt laugardags, bæði á unglingaballi og eftir það í bænum fram undir morgun. Allt gekk vel fyrir sig, engin læti eins og í fyrra og lítið að gera hjá okkur. Fór á Papaball á laugardeginum og skemmti mér mjög vel.

Ég er búinn að setja inn nokkrar myndir úr sjóstangveiðinni og úr Veiðivötnum, á eftir að setja inn einhvern "gáfulegan" texta en það kemur vonandi bráðlega.

kv
Magnús

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Jæja, núna er ég búinn að vera í Vöðlavík með unglingadeildunum og í Veiðivötnum með mömmu og pabba, hvoru tveggja hepnaðist mjög vel. Við vorum með rúmlega 30 krakka í ferðinni og þeir fengu að síga í klettum, prófa dótið í rústakerrunni og smá skyndihjálparkenslu. Ég var sjálfur í að kenna skyndihjálpina, kann að vísu ekki mikið í þeim efnum en það var sjúkrafluttningamaður sem var aðalkennari. Við lékum okkur einnig með fluglínubyssuna og fretuðum nokkrum útrunnum skotum út í loftið. Eitt skotið frá mér endaði ofan í læk og sprakk með miklum látum og mislitum ljósum, krökkunum til mikillar skemmtunar.

Veiðivötn voru fín eins og ávallt, veiðin að vísu ekki mikil í fjölda talið. Pabbi fékk einn 3 punda, ég fékk einn um 6 pund (mjög skemmtilegur) og 2 titti sem ég tók á flugu, sem var líka skemmtilegt enda fyrstu fiskarnir sem mér tekst að fanga með flugustönginni. Kristín, Valur, Anna Dóra, Sigrún og Ismael komu í heimsókn til okkar og var grillað og borðað úti.

Framundan er Verslunarmannahelgin og verð ég hérna fyrir austan. Verð eitthvað í gæslu á Neistaflugi og stefni á að komast á ball þar líka.

Það hafa fáir notað þennan vef, er að velta fyrir mér hvort nokkur lesi hann heldur? Endilega skrifið fréttir eða comment (hérna undir) svo ég sjái hvort ég sé einn um að nota þetta eða ekki.

kv
Magnús

mánudagur, júlí 12, 2004

Núna er vinnuvikan byrjuð eftir helgina sem fór að mestu í að horfa á formúluna, leti og að sleikja sólina. Fór að vísu í golf á Eskifirði og gékk það svona upp og niður eins og vanalega. Næstu helgar eru sýnist mér nokkuð vel skipulagðar. Um næstu helgi er fjórðungsmót unglingadeilda björgunarsveitanna hér fyrir austan og verður það í Vöðlavík. Ég er svona hálfvegis búinn að bjóða mig fram í að vera á staðnum en ég hugsa að það geti orðið mikið fjör. Markmiðið er að krakkarnir verði þreyttir í heila viku á eftir :)

Helgina þar á eftir er síðan Veiðivatnaferð, nú verður hann sko drepinn í tonnatali. Ég kem að sjálfsögðu suður en stoppa lítið. Þetta er að vísu hálf asnalegt að fara alla leiðinni til Reykjavíkur til þess eins að fara hálfa leiðina til baka austur, það er markt skrítið í kýrhausnum (sérstaklega í mínum).

Helgin þar á eftir er síðan Verslunarmannahelgin ógurlega. Það stefnir allt í að ég verði í gæslu á Neistaflugi eins og í fyrra. Það var að vísu síður en svo slæmt að vera í þessu hlutverki, gaman að sjá sukkið frá hinni hliðinni. Spurning hvort að okkur verði raðað upp í "Belfast uppstillingu" aftur þetta árið.

kv
Magnús

mánudagur, júlí 05, 2004

Núna er ég kominn austur í sólina og blíðuna eftir að hafa farið á Metallica tónleikana í gær. Tónleikarnir voru eins og við var að búast, frábærir. Maður kom heim alveg búinn í löppunum, svitastorkinn af hitanum og þrengslunum (blöðin eru ekki að ýkja, þetta var 18 þúsund manna gufubað) og suðið í eyrunum er smám saman að hverfa.

Annars er lítið að frétta héðan að austan, lífið gengur sinn vanagang eins og vanalega. Náði að hitta allt of fáa fyrir sunnan eins og oft vill verða, helgin er búin áður en maður veit af. Næsta heimsókn í bæinn verður sennilega ekkert skárri í þeim efnum en þá kem ég til að fara með í Veiðivötn. Hef heyrt góðar sögur af veiðinni þar og nú er bara að vona að það verði mok-fiskerí.

Kveðja að austan
Magnús

föstudagur, júní 11, 2004

Hér er hægt að skrifa sig á undirskriftarlista til að mótmæla meðferð fanga í Guantanamo


Magnús

fimmtudagur, maí 13, 2004

Núna er ég búinn að bæta við þeim möguleika að hver sem er getur skrifað athugasemdir við fréttaskot. Þetta er gert með því að velja comments sem er fyrir neðan fréttaskotið.

Það eru smá vandræði með eldri fréttaskot, þau fara út af síðunni eins og hún er núna og tenglarnir hérna til hægri virka ekki. Vona að mér takist að finna út úr því en ég er búinn að komast að því að eldri fréttaskotin eru ennþá til, þau eru ekki glötuð.

Ég er síðan á leiðinni suður á morgun (föstudag) og mun fara í sjóstangveiði með afmælisbörnunum (Hjalti, pabbi og Gunni) á laugardag. Síðan er að sjálfsögðu Evróvision :)

Kveðja að austan
Magnús

laugardagur, maí 08, 2004

Núna er ég loksins búinn að setja inn myndir úr Ameríkuferðinni. Á eftir að setja texta með mörgum myndum og laga það sem ég er búinn að skrifa við sumar myndirnar. Þið getið fundið myndirnar hér

Næst á dagskrá verður síðan sjóstangveiði í tilefni af afmæli Hjalta. Ég er sem sagt að koma suður um næstu helgi. Og síðan er ég kominn með miða á Pixies og Metallicu, brjálað stuð :)

Kveðja að austan
Magnús

miðvikudagur, mars 17, 2004

Loka hluti ferðasögunnar.

Við keyrðum til Washington frá New York á þriðjudaginn en komum við í New Jersey þar sem við skoðuðum japanskan markað og smökkuðum Sushi. Þegar við komum til Washington fórum við beinustu leið í Georgetown og fengum okkur að borða. Eftir matinn var förinni heitið til foreldra Mimi þar sem við síðan gistum. Það var að sjálsfsögðu verslað (stelpurnar skoðuðu 4 búðir á meðan við strákarnir löbbuðum um allt svæðið) og Washington skoðuð. Eftir að hafa skoðað Hvíta húsið að utan (bannað að fara inn og búið að girða það af öðru megin þannig að það þarf kíki til að skoða það) og þinghúsið fórum við að skoða Smithsonian, flugsafnið. Þegar þangað var komið voru menn svangir og fengum við okkur því pylsur fyrir utan. Þar tökum við eftir manni sem situr eiginlega alveg við hliðina á okkur en sami maður hafði verið að þvælast í kring um okkur við þinghúsið. Hvernig á þessu stendur vitum við ekki enda hafði enginn hug á því að spyrja manninn að því. Okkur grunar helst að okkur hafi tekist að vekja athygli leyniþjónustunnar þegar við tókum myndir af þyrlu sem kom að Hvíta húsinu sem og leyniskyttum á nálægu húsþaki en einnig vorum við á stórum svörtum bíl með dekktum rúðum og með bílstjóra sem hleypti okkur út þar sem við fórum um og tók okkur aftur upp þegar við vorum búin að skoða nægju okkar (þ.e. Hvíta húsið og þinghúsið). Sem betur fer hvarf maðurinn fljótlega eftir að inn á safnið kom og við urðum ekki vör við fleiri grunsamlega gaura (en hver veit svo sem).

Á föstudeginum hitti ég Matt vin minn sem var að læra með mér í Lundi. Hann býr í Georgetown í gömlu húsi sem er skakkt á alla kanta, gólfið er meðal annars mjög hallandi. Við skoðum Washington aðeins meira, kíktum á helfarasafnið sem er mjög gott. Þar var meðal annars sagt vel frá því hvernig nasistar komust til valda og síðan var sagan rakin í gegn um stríðið. Við lentum í tímaþröng þar sem við komust seint inn á aðal sýninguna og náðum því ekki að skoða nægju okkar. Að sjálfsögðu var borðaður meiri góður matur og kíkt á næturlífið. Á mánudeginum skoðaði ég síðan njósnasafn sem var skemmtilegt. Þar var sagt frá sögu njósna og ýmiskonar búnaður sýndur. Eins og áður var hluti safninsins skoðaður í flýti þar sem ég vildi komast niður í Georgetown í sólina og hitann áður en ég færi út á flugvöll.

Nú er ég loks kominn heim aftur og á von á Önnu og Paul sem koma á morgun í heimsókn

Magnús