föstudagur, september 23, 2005

Ég var klukkaður.....
Það er það nýjasta á netinu í dag. Þeir sem lenda í því að vera klukkaðir eiga að skrifa 5 staðreindir um sjálfan sig á netið (eftir því sem mér skilst). Maggi Gauti var svo "vinsamlegur" að klukka mig og ætla ég ekki að skorast undan því.

1. Ég hef gaman af því að ferðast, enda bara búinn að fara fjórum sinnum til útlanda í ár (persónulegt met).
2. Ég er afspyrnu lélegur sundmaður, samt er ég í sjóbjörgun... gáfulegt?
3. Ég á það til að vera latur, sést t.d. á því að ég er ekki enn búinn að setja inn myndir úr utanlandsferðum.
4. Ég er held ég tónlistarfíkill, það bendir margt til þess að þetta sé ættgengt.
5. Mér finnst bjór góður. Þetta kemur á óvart er það ekki? ;)

Núna á maður víst að klukka einhverja aðra. Ég klukka Sigrúnu og Omar í Egyptandi og síðan þann fyrsta sem les þessa þvælu, eða ætti ég að segja alla sem lesa þessa þvælu (ekki mjög margir held ég). Það má gera með því að ýta á comments hérna fyrir neðan.

kveðja úr snjónum
Magnús

ps.
Ég er búinn að setja inn nokkrar myndir síðan í sumar, meira kemur síðar (munið, latur...)

fimmtudagur, september 22, 2005

Vetur konungur
er snemma á ferðinni. Ég kíkti á gamalt bull sem ég hafði skrifað í fyrra og sá að ég hafði sett inn snjóamynd 5. október. Í dag er 22. september og ég set inn fyrstu snjóamyndir vetrarins. Þetta er samt ekki fyrsti snjórinn, fyrir 2 vikum snjóaði líka í Oddskarði.


Oddskarð


Fjarðarheiði

Magnús

mánudagur, september 12, 2005

Eistland
Ég ætla að vera aðeins fljótari með þessa ferðasögu heldur en með ferðina til Þýskalands. Við fórum 17 manns í æfingar- og námsferð til Eistlands. Rúmlega helmingurinn var frá Austurland rústabjörgun (fólk úr sveitum á öllu Austurlandi) og restin kom frá Dalvík. Tilgangurinn var að kenna Eistlendingum stífingar rústa auk þess sem hluti okkar (ég þar á meðal) var að læra stífingar líka. Kerfið sem við notum er komið frá kananum, hannað af verkfræðingum bandaríska hersins fyrir bandaríkjamenn, með öðrum orðum mjög einfalt kerfi. Það kom líka í ljós að Eistlendingarnir voru með kerfi ættað frá Þýskalandi sem var mun flóknari þannig að þeir voru mjög ánægðir með þessa kennslu. Við eyddum 2 dögum á æfingarsvæði við Vaike-maarja (um 2000 manna bær) og stífuðum gáma ætluðum brunaæfingum í bak og fyrir. Hitinn var ekki nema 25-30°C og sól, frekar heitt í fullum galla með hjálm og allar græjur.

Við fengum líka kennslu í notkun á hljóðsjá sem er svipuð þeirri sem er til hér á landi og fengum við að prófa hana. Eins fengum við stutta kennslu í spottavinnu m.a. hvernig hægt væri að komast á bandi yfir á og taka allt draslið með sér (aðeins einn þarf að synda einu sinni yfir ána með spotta í eftirdragi). Æfingarnar voru mjög fínar og gott að æfa með þeim eistnesku enda er þetta alþjóðleg sveit hjá þeim sem hefur farið víða.

Það var einnig farið í skoðunarferðir og er ég þá ekki bara að tala um pöbbana. Við skoðuðum meðal annars miðaldarkastala í Rakvere, mjög skemmtilegur kastali með skemmtilegu safni. Við sáum bæinn Narfa (og kastala þar) sem er við ána Narfa sem skilur Eistland frá Rússlandi. Við horfðum yfir á rússana en fórum ekki yfir. Við skoðuðum olíusteins-námu (oil-shell) sem var aflögð en mesta orka á stóru svæði Eistlands kemur úr þessum olíusteini (20% er olía) en þeir vinna einnig olíu úr honum. Þetta er víst algjört ógeð að brenna, fullt af kvikalilfri og öðru ógeði.

Tallin er borg sem mér fannst alveg frábær. Ég mundi hiklaust setja hana í sama flokk og Prag, ef ekki hærra. Þetta er að vísu mikil túristaborg en maður getur alveg lifað með því (önnur hver verslun var minjagripabúð og mikið af svíjum og finnum á röltinu). Ég mæli alveg hiklaust með þessari borg en ég náði ekki að rölta allt það sem ég vildi fara.

Heimferðin einkenndist af hlaupum um Kastrup flugvöll. Við flugum beint til Egilsstaða þaðan en vegna klúðurs við bókun höfðum við algjöran lágmarkstíma til að komast á milli véla. Að sjálfsögðu voru vélarnar þannig staðsettar og eins með bókunarborðið að við þurftum að hlaupa lengstu mögulegu leið um flugvöllinn. Öll komust við þó heil heim og reynslunni ríkari. Eistlendingarnir stefna á að koma hingað á klakann næsta ár og fara í fjallaleiðangur (fjöll eru ekki til í Eistlandi). Myndir koma einhverntíma á netið, þori ekki að lofa hvenær.....

Kveðja að austan
Magnús

þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Kominn tími á skriftir

Mér sýnist að það sé kominn tími á að fara að skrifa alminnilegann texta hérna. Ég er ekki ennþá búinn að skrifa ferðasöguna frá Þýskalandi og er nýkominn heim frá Eistlandi. Tölvan hjá mér er líka full af myndum sem ég er búinn að vera lengi á leiðinni að setja á netið en ég setti málið í nefnd þar sem það er ennþá. Ég byrja á að skella inn stuttri ferðasögu frá Þýskalandi en Eistlandsferðin kemur vonandi fljótlega.

Þýskaland
Ferðin var mjög fín, helst til heitt kanski, 30°C og rúmlega það. Ég byrjaði á að fljúga til Münich sem er mjög skemmtileg borg. Þar hitti ég Önnu frá Ástralíu og við gistum hjá þýskum vini hennar. Við slógum í gegn þegar við hjóluðum í gegn um borgina niður að ánni Isar þar sem við grilluðum. Oliver (sem við gistum hjá) var með kælibox á böglaberanum og grill bundið framan á hjólið. Niðri við ána voru nokkur hundruð manns að grilla og var barasta fínasta stemming þar. Við fórum einnig að vatni sem ég bara því miður man ekkert hvað heitir, ég þarf að grafa það upp.

Eftir stutt stopp í Münich keyrðum við til Ulm þar sem Sigurd vinur okkar frá Svíþjóð tók við okkur. Ulm er mjög skemmtileg gömul borg en því miður höfðum við ekki tíma til að skoða hana í þetta skiptið. Sigurd býr nálægt Frankfurt og fórum við í skógarferð þar sem við lentum í mikilli rigningu. Sem betur fer var barinn sem var áfangastaður okkar opinn, það hefði verið mikið svekkjandi að ganga alla þessa leið og hundblotna til þess eins að koma að læstum dyrum. Við Anna fórum líka í hjólatúr þar sem ég mundi eftir því að ég hjólaði síðast þegar ég var í Lundi, fyrir 6 árum. Ég lifði þrekraunina samt af og fékk bara í meðallagi miklar harðsperrur eftir ferðina.

Í lokin fórum við til Frankfurt þar sem við gistum hjá þriðja þjóðverjanum, honum Jurgen. Frankfurt er ekki mjög spennandi borg fannst mér en eins og víða í Þýskalandi eru þeir með fínustu "bjórgarða" með allt sem maður þarf til að láta sér líða vel (bjór og mat). Í borginni er þó fínt náttúrugripasafn sem er með mikið af steingervingum frá Messel (sem við skoðuðum í hjólatúrnum), múmíum og fleiru skemmtilegu. Eins var Goethe safnið skemmtilegt.

Eftir að hafa sagt skilið við fólkið í Þýskalandi fór ég til Köpen (eina ferðina enn þetta árið). Ég hitti ekki frændur mína í þetta skiptið en gisti hjá Tinu.

Kveðja úr snjónum að austan
Magnús

föstudagur, ágúst 12, 2005

Tölvunörd?
Sá að Skúli frændi hafði tekið tölvunördapróf og ákvað að prófa það sjálfur. Ég komst að því að ég er ekki tölvunörd. Samt er ég aðal tölvunördinn í vinnunni hérna fyrir austan. Óhugnalegt?


My computer geek score is greater than 13% of all people in the world! How do you compare? Click here to find out!


Niðurstöðurnar hjá Skúla :)

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Hmmm.... það er kanski kominn tími á að fara að skrifa.....
Geri það fljótlega ;)

kveðja
Magnús

fimmtudagur, júní 16, 2005

Núna er sumarið komið...
Ég er að minnsta kosti á leiðinni í sumarfrí. Stefnan er tekin á Þýskaland með stuttu stoppi í köpen og aðeins lengra stoppi í Sódómu Reykjavík. Ætlunin er að hitta Önnu frá Ástralíu og Sigurd og fleiri þjóðverja. Hvernig dagskráin verður nákvæmlega er ekki enn vitað enda er númer eitt að hittast, hitt kemur svo í ljós. (Fyrir þá sem efast um að Sigurd sé í raun þjóðverji miðað við þetta þá bjó hann í Svíþjóð.... hmmm... það skýrir þetta síður en svo. En hann er samt þýskur...). Hver veit nema að maður skelli inn smá línu í fríinu, lofa engu samt :)

kveðja að austan (þar sem skyr er bannað)
Magnús

mánudagur, júní 06, 2005

Sumarið er komið....
..eða hvað? Það snjóaði á mig í Oddskarðinu í síðustu viku þannig að ég er ekki alveg viss. Ég held samt að það hljóti að vera komið, hitinn fer örlítið hækkandi og sólarglæta af og til. Sjómannadagurinn var meira að segja sólríkur og fínn, ekki sérstaklega heitur en það gerði ekki til. Helgin var eins og vanaleg hjá okkur, kaffisala, gæsla og umstang í kring um þetta. Veit hvað sjómannadagsráð mundi gera ef við værum ekki á staðnum, þeir þyrftu að fara að gera alveg helling :)

Tónleikarnir með Hekkenfeld voru mjög góðir, held að allir hafi skemmt sér mjög vel. Það eru komnar myndir og video á heimasíðuna þeirra fyrir þá sem vilja skoða. Ég fór með Magna vini mínum og fjölskyldu hans í Tivoli meðan ég var úti og ég held að við höfum náð að prófa næstum öll tækin þarna. Ég fór líka á Bakkann með Stefáni, Skúla og fjölskyldum þar sem maður prófaði nokkur tæki í viðbót. Ég fór held ég í öll svakalegustu tækin sem eru á þessum stöðum. Fór í turninn í Tivoli með Baddý kærustu Magna. Veðrið var frábært og við völdum sæti með útsýni í átt að Sviþjóð. Ég held að maður hafi séð til Lundar og lengra loftið var svo tært. Þetta er svakalegt tæki, ég þorði aldrei að kíkja niður en horfði bara yfir til næsta lands í staðinn. Næst næ ég kanski að kíkja niður, ég er ekki alveg viss um að ég þori því. Prófaði annan turn í Bakken, miklu minni en þar er manni skotið upp. Maður fær mikið kikk út úr báðum þessum tækjum (þrátt fyrir að lofthræðsla hafi gert vart við sig).

Helgina eftir Köpen fór ég til Akureyrar á landsþing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Það var mjög svo áhugavert, mikil pólitík í gagni þarna. Menn komust þó óslasaðir þaðan, nema kanski á sálinni sumir. Það var líka árshátíð þarna fyrir norðan þar sem Paparnir spiluðu, mikið fjör. Að sjálfsögðu var líka sukkað lítillega þarna fyrir norðan.

Næstu helgi kem ég suður í þrítugsafmæli Önnu Siggu og útskrift Gunna. Í lok júní er stefnan tekin á Þýskaland þar sem ég hitti vini mína frá Lundi. Ég fer í gegn um Köpen en Stefán og fjölskylda verða á flakki og Skúli og fjölskylda eru einnig í fríi og vita ekki hvar þau verða stödd í heiminum. Ég stoppa því stutt í Köpen í þetta skiptið en nokkra daga í Sódómu Reykjavík í staðinn.

kveðja
Magnús

miðvikudagur, maí 04, 2005

Nóg að gera..
Það er búið að vera nóg að gera undanfarið. Landsæfingin heppnaðist hreint ágætlega. Við fengum fínasta veður til að sigla bátunum frá Norðfirði yfir á Reyðarfjörð þar sem við komum fyrir dúkkum í fjörunni og á hafsbotni. Veðrið á æfingardaginn var líka mjög fínt, sól og blíða meirihluta dagsins. Æfingin tókst ágætlega þrátt fyrir að kafararnir fyndu ekki allar dúkkurnar (verkefni fyrir kafarana hérna þó líkur á að þær finnist fari hverfandi). Að vísu held ég að þeir sem hirtu dúkkurnar upp úr fjörunni hafi "drepið" sjúklingana, líklega hafa þeir gleymt að lesa á miðana sem sögðu hvað amaði að þeim. Ég náði að komast í heilar 2 sekúndur í sjóvarpsfréttirnar þar sem við vorum á hraðbjörgunarbáttnum að æfa okkur að leggja upp að skipi á ferð, ég er orðinn frægur :) Þyrlan kom líka og fengum við að æfa móttöku á sigmanni og lækni í björgunarskipið á ferð og að senda sjúkling í börum upp í þyrluna. Fín æfing þar enda hefur maður aldrei gert slíkt áður auk þess sem það var fínt að fá að gera eitthvað annað en sitja og horfa á aðra og passa að þeir fari sér ekki að voða. Eftir æfinguna var siglt til baka en veðrið var aðeins farið að versna og komnar öldur og fínerí.

Skömmu eftir þetta var ferðinni heitið til Köpen og Lundar. Ég gisti hjá Stefáni og fjölskyldu og eru þau ekkert nema höfðingjar heim að sækja. Mér tókst líka að hitta Skúla og Lilju og Tínu hittum við Stefán eftir mikla leit af partýi sem okkur var boðið í við Kristianshavn. Ráðstefnurnar í Lundi voru mjög fínar en best var samt að hitta gömlu skólafélagana frá Lundi, suma sem maður hafði ekki séð í 6 ár. Merkilegt hvað fólk breytist lítið, nokkur börn og minna hár hjá sumum en það var eins og maður hefði hitt alla fyrir nokkrum dögum en ekki nokkrum árum.

Ég er síðan nýbúinn að ganga frá miðum aftur til Köben. Stefán og hljómsveitin hans Hekkenfeld eru að fara að halda útgáfutónleika sama kvöld og Evróvision er og ég ákvað að skella mér á herlegheitin.

Ég mun síðan vonandi henda inn myndum frá Landsæfingu og utanlandsferð(um) fljótlega. Annars er ég líklega að fara að flytja heimasíðuna mína og fréttaskotið en það fer eftir því hvort netfyrirtækið getur lagað tenginguna mína eða ekki.

fimmtudagur, apríl 07, 2005

Rauða ljónið, landsæfing, Danmörk....

Ég var fyrir sunnan um páskana og hafði það gott að vanda. Eina vandamálið var læðan í næsta húsi, hún var meira en til í slaginn ef fress var á svæðinu og þeir komu nokkrir að heimsækja hana. Verst var breimið á næturnar. Mamma bannaði mér að koma nálægt gluggum í fleiri daga daga því hún var svo hrædd um að ég sæi eitthvað ósiðsamlegt úti...........

Að öðru leiti voru páskarnir eins og þeir eiga að vera, fullt af mat, hitta vini og ættingja, kíkja á lífið í bænum. Ég meira að segja fór í aðlögun áður en ég kom suður, stoppaði á Akureyri í nokkra daga þar sem ég var á námskeiði og að vinna. Var hjá Magna og fjölskyldu hans, vona að þau séu að verða búin að jafna sig.

Núna um helgina er landsæfing Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Við sjáum um sjóverkefnin, bæði leit og björgun á sjó og kafarana. Það er búið að búa til slatta af dúkkum og þyngja þær með hinu og þessu fyrir liðið að glíma við. Einnig er búið að munstra unglingadeildir á austurlandi í sjúklinga. Veðurspáin er ágæt á laugardaginn sem og á morgun þegar við ætlum að sigla bátunum frá Norðfirði yfir á Reyðarfjörð. Rúmlega 300 manns búnir að skrá sig, að vísu bara hluti í sjóbjörgun og köfun.

Í næstu viku fer ég síðan til Danmerkur og Svíþjóðar. Ég er að fara á ráðstefnur í Lundi, hitti m.a. fullt af gömlum skólafélögum þar. Ég verð hjá Stefáni og Steinunni þegar ég er í Danmörku en næ vonandi að hitta Skúla og Tinu líka.

Set myndir af rauða ljóninu hérna, mamma er búin að vera að biðja um þær í langan tíma. Set líka inn myndir af snjóflóðaleitarnámskeiðinu inn á heimasíðuna mína eða síðuna hjá Björgunarsveitum á Austurlandi.

kv
Magnús



<>

laugardagur, mars 05, 2005

Rauða ljónið.....
Kominn á nýjan bíl. Imprezan kom síðasta mánudag, eldrauð á litinn. Ég ætla ekki að kalla hann rauða ljónið, fannst þetta bara vera ágætis fyrirsögn. Það er allt annað líf að vera kominn á þennan bíl, hann rennur upp Oddskarðið eins og ekkert sé á meðan ég þurfti að pína Nissaninn gamla upp og fór miklu hægar yfir. Ég hef verið spurður að því hvort ég hafi fengið mér turbo-útgáfu en eftir að hafa keyrt þennan skil ég ekki hvað í ósköpunum fólk er að vilja með turbo í þessa bíla, alveg meira en nægur kraftur í þessum. Ég er ekki með myndavélina mína hérna fyrir austan eins og er þannig að ég get ekki sett inn myndir af tryllitækinu strax.

kveðja af þjóðveginum
Magnús

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Ævintýraleg helgi

Ég fór suður um helgina þar sem við fögnuðum afmæli mömmu. Á föstudagsmorgni komu Anna Sigga, Gunna og fjölskyldur og vorum við með morgunkaffi fyrir mömmu. Seinni part dags var síðan keyrt úr bænum og stefnan tekin á Flúðir þar sem við áttum pantaða 2 sumarbústaði. Þegar þangað kom runnu á okkur tvær grímur, það var fólk í báðum bústöðunum. Kvittanir voru dregnar upp og þetta virtust vera réttu bústaðirnir en á kvittununum stóð hvað ætti að vera í hverjum bústað, hvar lykillinn var, hvernig ætti að nálgast lykilinn og að bústaðirnir voru greiddir. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að greiðslan hafði ekki borist og bústaðirnir því leigðir öðrum (þrátt fyrir að þeir sendu kvittun fyrir því að allt væri greitt). Nú voru góð ráð dýr og bjuggumst við alveg eins við að hafa sumarbústaðaferð í Reykjavík auk þess sem ekkkert náðist í Gunnu og fjölskyldu sem voru á leiðinni úr bænum. Það tókst samt að redda okkur bústað í Úthlíð og stefnan tekin þangað.

Þá kom að því sem margir hafa beðið eftir í mörg ár, landafræðin klikkaði hjá pabba. Á gatnamótum var beygt í vitlausa átt og snúið við eftir langan akstur (þetta voru að vísu ekki nema nokkrir kílómetrar en hitt er skemmtilegra). Við gátum fengið 2 litla bústaði en völdum frekar 1 þokkalegan stóran og vorum við 12 stykki í honum. Þarna var heitur pottur og gufa og fínt veður. Menn lögðust að sjálfsögðu í pottinn, grilliðu, átu mikið en gufan var ekki orðin heit fyrr en um kvöldið þegar allir lágu afvelta af ofáti og var hún því ekki notuð. Helgin heppnaðist í alla staði vel, þrátt fyrir smá byrjunarörðuleika.

Ferðalagið austur á mánudagsmorgni var í lengra lagi. Biðröðin í flugstöðinni náði út á plan. Okkur var síðan troðið inn í rútu og keyrt til Keflavíkur þar sem þota beið okkar en Reykajvíkurflugvöllur var lokaður vegna þoku. Hér fyrir austan var síðan að sjálfsögðu sól og blíða eins og alltaf (svona næstum því..) en ég kom ekki á Reyðarfjörð fyrr en eftir hádegi. Í gærkveldi var ég síðan á Vopnafirði þar sem var borgarafundur um val á leið fyrir veg. Menn þar voru auðvitað ekki sammála og var nokkuð fjör, þó engin slagsmál.

Bíllinn minn liggur á dánarbeðinu núna. Er búinn að panta mér nýjan Subaru Impreza, fæ vonandi að vita núna á eftir hvenær hann kemur. Ef einhvern vantar Nissan Sunny Wagon '91 sem þarfnast viðgerða þá endilega hafa samband ;)

kveðja úr sólinni (sem er farin að skína á öll húsin í bænum)
Magnús

föstudagur, febrúar 04, 2005

Þá er kominn nýr mánuður og kominn tími til að setja inn smá línu. Þorrablótið var að sjálfsögðu mjög gott. Það var meira að segja gert grín að einu atviki sem ég átti þátt í, aðallega þó bóndanum sem kom á eftir okkur þegar við vorum að mæla og færðu okkur alla hælana sem við höfðum stungið niður. Það tók 2 daga að fyrir einn mann að setja hælana aftur á réttan stað.

Um síðustu helgi átti að vera snjóflóðaleitarnámskeið. Við vorum farnir að halda að námskeiðið fælist í því að leita að snjóflóðum en ekki í þeim enda lítið orðið eftir af snjó. Við fórum tveir á Seyðisfjörð kvöldið fyrir námskeiðið og kíktum á barinn hjá félaga okkar þar. Hann lét okkur líka hafa heilt hús til að gista í, ekki slæmt. Þarna var hávaða rok og bjuggumst við alveg eins við því að verða rifnir út til að elta þakplötur og ruslatunnur um bæinn en sem betur fer fengum við að sofa í friði. Ekkert varð af námskeiðinu þessa helgi þar sem enginn kennari kom, ófært með flugi vegna veðurs. Aðfaranótt sunnudags vaknaði ég tvisvar við píp í símanum mínum, allt á hvolfi á Norðfirði. Þar voru þakplötur, grjót o.fl. að skemma glugga og bíla og bátar losnuðu og strönduðu í höfninni. Við seinna útkallið fór ég niður í björgunarsveitarhús á Reyðarfirði þar sem textinn gaf benti til þess að allt væri á hvolfi á öllu austurlandi, sem ég gat alveg trúað miðað við veðrið. Eina sem ég gerði þessa nótt var að kíkja á rúntinn um bæinn kl. 5 um morgun enda voru engin vandamál hér, þrátt fyrir byggingaframkvæmdir og misgott ástand húsa. Vindur í Oddskarði fór í 51 m/s þessa nótt.

Stefnan er tekin á Akureyri í næstu viku og síðan á að halda snjóflóðaleitarnámskeið 12. feb. Menn bíða eftir því hvort að það fjúki út í veður og vind aftur og hvort það verði snjór fyrir okkur. Helgina þar á eftir er stefnan tekin suður um eina helgi, sumarbústaðaferð með fjölskyldunni. Framundan er einnig undirbúningur vegna landsæfingar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem verður í byrjun apríl. Við sjáum um sjóbjörgunarhlutann, reynum að hafa það blautt og kalt :)

kveðja úr snjónum (sem fer líklega eftir helgi)
Magnús

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Núna er langt liðið á nýtt ár og kominn tími til að skrifa (bulla) smá. Lagðist í flensu milli jóla og nýárs þrátt fyrir að vera sprautaður. Varð að vísu ekki jafn veikur og aðrir sem fengu flensuna þannig að sprautan hefur sennilega gert eitthvað gagn. Þetta varð til þess að ég var bara þægur og góður um áramótin og fór snemma að sofa miðað við venjulega í byrjun árs. Við borðuðum í Neðstaberginu en fórum síðan í eftirmat hjá Önnu og Gunna og horfðum á nokkur tonn að púðri fuðra upp í Reykjavík og nágrenni, frábært útsýni frá þeim.

Um síðustu helgi var árshátíð björgunarsveita á austurlandi haldin á Norðfirði. Ég lét mig að sjálfsögðu ekki vanta og gat ekki betur séð en að allir skemmtu sér jafn vel og ég. Um næstu helgi er stórt þorrablót hérna á Reyðarfirði og náði ég næst síðasta miðanum fyrir það. Hefði ég farið örlítið seinna að kaupa miða hefði ég líklega misst af þessu. Helgina þar á eftir er stefnan sett á snjóflóðaleitarnámskeið á Seyðisfirði, nóg að gera á næstunni. Pabbi og Hjörleifur vinnufélagi hans voru hjá mér og var fínt að fá þá í heimsókn. Kíki líklega í bæinn í febrúar og munum við fara í sumarbústað og halda þar upp á afmæli mömmu.

kv úr snjónum að austan (sem er loksins kominn)
Magnús

þriðjudagur, desember 28, 2004

Meltingatruflanir, næstum því....
Núna er mesta átið búið og maður byrjaður að jafna sig að einhverju leiti. Hamborarahryggurinn var fínn, svolítið saltur að mati sumra en hreindýrið var alveg frábært. Hver veit nema að jólamaturinn breytist eftir þetta.

Fjölskyldujólaveislan í gær var fín að vanda, jólasveinarnir slógu í gegn sýndist mér, aðallega hjá yngstu kynslóðinni og afa. Framundan eru síðan áramótin með tilheyrandi púðri og látum. Munið bara þegar þið kaupið púður (ef þið kaupið það..) að kaupa frá einhverri björgunarsveit, ekki íþróttafélögum eða einkaaðilum. Þetta er helsta fjáröflun björgunarsveitanna og án púðursins væri lítið hægt að gera. Best væri náttúrulega ef þið keyptuð frá Gerpi Norðfirði en það er helst til langt að fara..... ;)

kv
Magnús

föstudagur, desember 17, 2004

Niðurstöður könnunar
Núna eru um það bil 3 vikur síðan ég bullaði hérna síðast og setti upp smá könnum um lestur á fréttaskotinu. Niðurstöðurnar eru þær að ég er sá eini sem skrifa og sennilega les þetta enginn. Eina kommentið sem var skrifað var frá mér sjálfum.

Ég er að koma suður í dag, beint í útskrift hjá Ingimar sem var að klára stúdentinn. Verð fyrir sunnan um jól og áramót, kem með hreindýrasteik í farteskinu fyrir jólin og hlakka til að hitta alla.

Annars er búið að vera rólegt hjá mér undanfarið miðað við hvernig þetta er búið að vera síðustu mánuði. Við héldum loksins aðalfund í björgunarsveitinni. Ég fór ekki á fundinn þar sem veðurspáin var vægast sagt slæm og ég lagði ekki í Oddskarðið. Auðvitað klikkaði það og það var rjómablíða langt fram á morgun. Ég var þrátt fyrir að mæta ekki kosinn sem ritari áfram sem mér finnst bara alveg ágætt. Ég er búinn að koma nokkrum myndum frá Siglufirði inn á vef björgunarsveita á Austurlandi, þær má sjá hérna.

kv
Magnús

föstudagur, nóvember 26, 2004

SMÁ KÖNNUN
Rétt upp hend sem les fréttaskotið.
Ef það virkar ekki smellið á comments (bláir litlir stafir) hérna fyrir neðan og skrifið smá línu.

kveðja
Magnús

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Nóg að gera

Það er orðið nokkuð langt síðan það var skrifað síðast hérna. Það var að vísu ég sjálfur sem skrifaði síðast en ég er svo sem að verða vanur því, spurning hvort að ég sé líka sá eini sem les bullið í sjálfum mér......

En það er annars búið að vera nóg að gera undanfarið. Búinn að vera á fullt af námskeiðum, fyrir sunnan á fundum og að skemmta mér, á þvælingi um landið og að passa köttinn hans Helga sem á íbúðina sem ég leigi.

Tók 3 námskeið í röð hjá björgunarsveitinni, skyndihjálp, á hraðbjörgunarbátinn og á nýja björgunarskipið sem er komið austur. Námskeiðin voru mjög fín, fengum frekar leiðinlegt veður á bátanámskeiðunum en fína æfingu í staðinn. Fengum meira að segja 2 bátaútköll á meðan við vorum á námskeiðinu. Það fór sem betur fer allt vel og við komust varla af stað áður en allt var afturkallað.

Í beinu framhaldi fór ég á skotvopna- og veiðinámskeið. Núna er bara að sækja um byssuleyfi og kaupa byssu, engin rjúpa samt þetta árið.

Er búinn að vera 2 helgar fyrir sunnan en því miður náði ég ekki að hitta nema brot af þeim sem maður vildi hitta frekar en vanalega. Var á fundum hjá Vegagerðinni og ráðstefnu hjá Björgunarsveitunum. Auðvitað var líka kíkt aðeins á lífið þar sem maður var á annað borð kominn í ómenninguna.

Um síðustu helgi var ég á Siglufirði með Austurland rústabjörgun. Þar fékk eitt hús að finna fyrir tækjunum okkar og ég fékk að prófa rústabjörgun í fyrsta skiftið, ekki það síðasta miðað við hvernig þetta var. Ótrúlegt hvað það er erfitt að komast í gegn um eina dýnu, held að steyptir veggir séu léttari. Sjúklingarnir fengu líka sumir að kenna á því þar sem drösla þurfti sumum í gegn um þröng og leiðinleg göt. Hjalti gæfi okkur sennilega ekki topp einkun fyrir frammistöðuna í þeim efnum. Reyndar er takmarkið að koma sjúklingum sem fyrst út og ekki hlúa að þeim nema það allra nauðsynlegasta, síðan fá aðrir þá í hendurnar og þurfa að tjasla þeim saman. Hérna eru nokkrar myndir af æfingunni en ég mun setja inn myndir hjá mér fljótlega.

Núna lítur út fyrir að það verði róleg vika framundan hjá mér, ágætt svona inn á milli. Pabbi kemur í næstu viku, maður þarf að finna eitthvað gott í matinn handa honum.

Kveðja að Austan
Magnús

ps
fólki er leyfilegt að skrifa hérna á síðuna, til þess er hún

þriðjudagur, október 05, 2004

Veðurfréttir
Fór á fund á Norðfirði í gærkveldi þar sem átti að ræða æfingu sem var um helgina og áætlaða fjallaferð um næstu helgi. Þegar búið var að ræða æfinguna og hvað þarf að bæta (fjarskipti og skyndihjálp) og byrjað var á helgarferðinni kom strákur inn og sagði að þak væri að fjúka af nálægu húsi. Þarna ákvað ég að koma mér heim á meðan skarðið væri enn fært, þurfti að fara gamla veginn þar sem verið var að vinna í göngunum. Þegar ég talaði við formanninn um ellefu leitið um kvöldið var búið að bjarga því sam bjargað varð af húsinu og hann bjóst við að menn færu að tínast heim fljótlega. Heyrði síðan í útvarpinu í morgun að þeir komust ekki heim fyrr en um 7 í morgun.

Hérna á Reyðarfiði hefur þetta verið rólegt þrátt fyrir rok og rigningu. Það er byrjað að hausta því í morgun var farinn að koma krapi Fagradal og heiðar. Í Oddskarði var farið að grána núna áðan en í morgun var allt autt. Set hérna með mynd af fyrsta vetrarsnjónum.

Mamma og pabbi eru komin heim frá Lúxemborg, voru mjög ánægð með ferðina heyrðist mér.

kv
Magnús


fimmtudagur, september 30, 2004

Núna er kominn mánuður síðan ég skrifaði hérna síðast, kominn tími á að bæta smá bulli við. Hér gengur allt sinn vanagang eins og venjan er. Búinn að fara norður á Melrakkasléttu að mæla og labbaði Hofsárdal í Vopnafirði á þriðjudaginn í frábæru veðri. Við mælingar um daginn kom bóndinn á eftir okkur og týndi upp alla hælana sem við höfðum nelgt niður, okkur til mikillar gleði.

Mamma og pabbi komu í heimsókn um daginn. Við borðuðum góðan mat (grillaða hrossalund og humar) og prófuðum nýja golfsettið mitt.

Hér fyrir austan er komin ný tíska, hér eru menn í skærgulum vestum, með gleraugu og hjálm á hausnum sama hvað menn eru að gera. Það er Alcoa sem kom þessari tísku af stað og er það þannig í dag að menn eru stöðugt svona til fara. Þetta gengur nú helst til langt að margra mati, bílstjórar verða að vera í vesti, öryggisskóm og með hjálm þegar þeir eru að keyra og ef þeir opna gluggann verða þeir að setja upp öryggisgleraugun. Það eiga allir að vera í síðermapeysum líka og eftir mikið þras og langan umhugsunartíma féllst alcoa á að leyfa mönnum að vera í stuttermabolum í hitabylgjunni, bannað samt að vera í ermalausu. Menn meiga ekki heldur pissa utandyra eða hoppa niður úr vélunum, mönnum hefur verið hótað brottrekstri fyrir slíkt. Hitti mann í gær sem hafði fari einu þrepi of hátt í tröppum, var kominn yfir 1,8m frá jörðu. Menn urður alveg vitlausir því það er bannað að fara hærra en 1,8m frá jörðu nema að vera í öryggislínu.

Við í björgunarsveitunum vorum að þrífa verkamannaskúrana fyrir alcoa í gær og við þurftum að hafa hjálm og gleraugu innandyra, fengum að sleppa öryggisskónum. Gömlu félagar mínir hjá Náttúrustofu er líka himinlifandi með þetta allt, þau þurfa að vera í vesti, öryggisskóm, með hjálm og gleraugu þegar þau eru að skoða gróður utan við álverslóðina, líka þegar þegar þau skoða gróður innanbæjar hér á Reyðarfirði. Þau sluppu reyndar við að fara í lyfjapróf og ég veit ekki hvernig það er með heilsufarsupplýsingarnar um starfsmennina sem alcoa vill fá. Ég held að sumir þurfi alvarlega að láta skoða á sér kollinn.......

kveðja af vitleysingahælinu Reyðarfirði
Magnús