fimmtudagur, desember 28, 2006

Jól og áramót

Gleðilega hátíð. Það er kominn tími til að skrifa held ég. Jólin eru að sjálfsögðu búin að vera fín, nóg að éta og fullt af fólki að heimsækja og örlítill tími fyrir lestur og afslöppun, gerist vart betra. Við vorum hjá Önnu og Gunna á aðfangadag og fengum að sjálfsögðu dýrindis mat þar. Þær systur Malín og Rakel voru eins og englar þrátt fyrir pakkaflóð og allt umstangið. Síðan tóku við fastir jólaliðir, matur í Klapparbergi á jóladag, heimsóknir, ofát og bókalestur. Annan í jólum var eldað hreindýr og tókst það bara mjög vel. Eini gallinn var að veiðimaðurinn lá heima með hita og missti því miður af veislunni og fannst honum og okkur það mjög súrt. Í gær, þriðja í jólum, var síðan öll stórfjölskyldan á jólaballi en því miður varð ég að stinga af þegar jólasveinarnir höfðu yfirgefið samkvæmið. Ég fór að hitta konurnar af ganginum þar sem ég bjó í Lundi. Alltaf gaman að hitta þær.

Áramótin nálgast hratt með tilheyrandi sprengingum, meira ofáti og fleiru skemmtilegu. Eins og flestir hafa líklega tekið eftir hafa björgunarsveitir víða á landinu staðið í ströngu undanfarið, hvort sem það er við að elta trambólín og þakplötur í vondu veðri, draga upp fasta bíla, sinna strönduðum skipum, grafa hús upp úr skriðum eða eitthvað annað. Eins og menn vita er þetta allt saman gert í sjálfboðavinnu og eru menn tilbúnir hvenær sem sólarhringsins allt árið. Ég er að vísu hálf undarlegur í þessu þar sem ég er yfirleitt allt annarsstaðar á landinu þegar ég fæ útkall en ég telst líklega seint sem eðlilegur..... :) Á bak við þann tíma sem fer í útköll liggur ennþá meiri tími í æfingar, námskeið, viðhald á búnaði, fjáraflanir o.fl. einnig í sjálfboðavinnu. Öll útgerð björgunarsveita er mjög dýr, hús, bílar, bátar, sleðar.... og viðhald á öllu saman því eðli málsins samkvæmt er mikið slit á hlutunum. Mikilvægasta fjáröflun fyrir allt þetta er sala á flugeldum. Ég vil því hvetja fólk til að versla við aðildarfélög Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og styrkja þá 2000+ aðila sem eru um allt land tilbúnir að koma til hjálpar hvenær sem er.

kveðja
Magnús (sem er meira að segja í burtu í þessari fjáröflun..)

ps
set niðurstöður úr könnuninni inn síðar, það er enn hægt að taka þátt.

mánudagur, desember 04, 2006

Smá könnun

Ég ákvað að setja upp smá könnun að ganni mínu og vill að sem flestir taki þátt.


Taka þátt í könnun


Annars allt rólegt að frétta. Jólin nálgast og ég er búinn að setja upp jólaseríur. Ég veit að ég er svolítið seinn, hefði átt að gera þetta í október en ég held því ennþá fram að jólin séu í desember. Rjúputíminn er búinn og núna hangir ein úti á svölum. Þetta eru stórstígar framfarir í veiðimennskunni og núna þurfum við Magni að finna út hvað við ætlum að gera við tvær rjúpur, þ.e. hvernig á að matreiða þær. Uppástungur eru vel þegnar.

kveðja úr norðri
Magnús

ps
Sá sem er nr. 50 á teljaranum hér til hliðar skrifi nafnið sitt í comment ;o)

mánudagur, nóvember 27, 2006

Heimilsfræði....

Ég var að skoða blaðið Austurlandið sem er gefið út, já á Austurlandi. Ég rakst þar á tilvitnun í gamla heimilsfræðibók sem var nokkuð athygliverð. Þetta er kanski svolítið gamaldags og gerir frekar ráð fyrir því að konan sé heimavinnandi húsmóðir, eða frekar þjónn/þræll. Þetta eru kanski bara draumórar þess sem skrifaði þetta á sínum tíma....

 

Annars er allt fínt að frétta úr snjónum. Mamma og pabbi voru hér um helgina og við skruppum í leikhús á Herra Kolbert. Mjög skemmtilegt en svolítið blóðugt leikrit.

Leikhúskveðjur
Magnús Posted by Picasa

föstudagur, nóvember 10, 2006

Jólin koma í DESEMBER....

Ég var í Reykjavíkinni um síðustu helgi og það fyrsta sem ég tók eftir á leiðinni frá flugvellinum upp í Breiðholt var að Kringlan var komin í jólabúning. Þetta var nánar tiltekið 2. nóvember og ennþá næstum tveir mánuðir til jóla. Ég tók þá ákvörðun að fara ekki í Kringluna né Smáralindina til að forðast þessi ótímabæru jól. Ég álpaðist aftur á móti í Blómaval og sá að þar var jóladót út um allt, hundfúlt. Ég lét plata mig í Smáralindina og sá að þeir voru byrjaðir að skreyta en ekki búnir að kveikja á ljósum eða setja upp neitt meira en "greni" þannig að sú ferð slapp fyrir horn. Það sem er verst við þetta að það var byrjað að skreyta og auglýsa jólin í OKTÓBER!!!!

Ég skoðaði bloggið mitt frá því í fyrra þar sem ég mundi eftir að hafa skammast yfir þessu þá og má sjá það hér. Solla frænka var að vísu ekki sammála mér þá en Malín frænka var alveg sammála mér um daginn :)



Annars var ferðin suður um síðustu helgi mjög fín eins og við var að búast. Í kvöld verður "sviðaveisla" í vinnunni en maður sér ekki fram á rjúpu"veiðar" um helgina miðað við veðurspá. Eftir viku er stefnan tekin á Gufuskála til að æfa rústabjörgun með Dalvíkingum og fleirum.

kveðja úr golunni
Magnús

þriðjudagur, október 24, 2006

Staðfesting...

Þá er það staðfest að það var ekki svo slæm hugmynd að flytja norður. Skortur á kvenfólki og kynjahlutfall var mér ekki í hag fyrir austan og þetta hérna sýnir það augljóslega. Þegar haft er í huga að Fjarðabyggð er Norðfjörður, Eskifjörður, Fáskrúðfjörður auk Reyðarfjarðar þá eru þessar tölur enn svakalegri. Ég held að kynjahlutfallið sé mun nær því að vera eðlilegt á örðum stöðum en Reyðarfirði. Það er gott að búa á Akureyri :) (veljið myndina til að lesa fréttina).


kveðja úr snjónum
Magnús

ps.
tók eftir smá vitleysu undir lokin á greininni, kanski óskhyggja höfundar? :)

Posted by Picasa

sunnudagur, október 22, 2006

Lokahluti ferðasögunnar

Já, þó að fyrr hefði verið. Það er orðið nokkuð síðan við komum heim þannig að maður þarf eiginlega að setja inn smá línu. Eftir að hafa skoðað Pisa og Lucca var Flórens skoðuð. Þetta er mjög skemmtileg borg og nóg eftir til að skoða þegar maður kemur aftur (sett á 100 ára áætlun ásamt milljón öðrum stöðum...). Okkur tókst að fá smá sólarstrandastemmingu á Ítalíu en héldum síðum upp að Garda-vatni. Við keyrðum meðfram því og það verður að segjast að það er mjög fallegt, jafnvel enn fallegra ef það er ekki mystur yfir öllu :).

Við stoppuðum stutt í Austurríki en héldum síðan til Münich þar sem Ocktoberfest var í gangi. Við kíktum að sjálfsögðu aðeins á hátíðina en komust hvergi inn í bjórtjald (sem er víst nær útilokað jafnvel með því að mæta snemma á morgnana). Eftir að hafa skoðað lífið á hátíðinni smá stund komst ég að því að það var bjórgarður ekki langt frá þar sem ég hafði farið í fyrra með Önnu frá Ástralíu og fleirum (við þurftum að klifra yfir girðinguna til að komast út eftir lokun þá). Ég gat því farið með foreldrana í alvöru bjórgarð þar sem við fengum okkur "lítinn" bjór (einn líter).

Frá Münich flugum við til Prag og tókum rútu til Brno sem er næst stærsta borg Tékklands. Eftir stutt stopp þar fórum við til Prag þar sem við gerðumst alvöru túristar með regnlíf og myndavélar, nóg að skoða og hægt að labba endalaust um borgina. Miðbærinn hefur ekki breyst síðan síðast, fleiri túristar á virkum dögum en var (kanski árstíminn líka).

Eftir þetta flugum við til Frankfurt þar sem ég stakk foreldrana af og heimsótti Sigurd sem var í Lundi um leið og ég. Hann dróg mig í klifurvegg en þetta er fyrsta skiptið sem ég prófa slíkt. Það er reyndar fáránlegt að ég hafi ekki prófað þetta fyrr, þessi fínu veggir í björgunarsveitarhúsinu á Norðfirði og eins hérna. Ég fór síðan til Lúxemborgar að hitta mömmu og pabba og heimsækja Hans og Laufey sem ég hef ekki heimsótt í sennilega 13-14 ár. Eftir "#$"&$%"% flugvöllinn í Frankfurt komust við síðan heilu og höldnu heim eftir vel heppnaða ferð. ( "#$"&$%"% má lesa á alla vegu nema fallega, mæli með að fólk forðist þennan flugvöll ef það getur..)

Ég kom síðan norður í snjóinn, smá viðbrigði frá Miðjarðarhafinu. Vinnan og hversdagsleikinn er tekinn við með veiði, björgunarsveitinni o.s.frv. þannig að það er nóg að gera framundan.

Með kveðju úr næstumþvísnjónum
Magnús

ps.
kanski koma myndir inn fljótlega

mánudagur, september 25, 2006

Spaghetti a la Mafiosa

Já, við erum komin til Ítalíu. Þegar við keyrðum frá Spáni til Frakklands var gist á gömlum kunnulegum stað sem við höfðum ekki séð í 19 ár, Cap D'Agde. Þar fengum við okkur að borða á fiskistað sem var alveg einstakur. Fiskurinn kom innan við mínútu eftir að við pöntuðum og var líka eftir því, örbylgjuhitaður..... Eftir "smá" þras við þjónana (sem allt í einu skildu ekki orð í ensku) var maturinn borgaður og staðurinn yfirgefinn og allir ennþá svangir. Pizzan á næsta stað bragðaðist einstaklega vel eftir þetta en þetta var dýr máltið. Gaman að koma aftur á gamlar slóðir... :)

Eftir þetta var haldið til Nice til að skoða smábátana þar. Þaðan var kíkt til Cannes (engar stórstjörnur sjáanlegar) og til Monaco. Í Monaco var farið í spilavítið og spilað (smá), ríka fólkið og bílarnir skoðaðar, eins fleiri smábátar og að sjálfsögðu kappakstursbrautin skoðuð. Í lokin var hluti brautarinnar keyrður en af einhverjum ástæðum var löggan búin að loka göngunum frægu, held að Schumacher hljóti að hafa verið í bíltúr þarna.......

Frá Nice var förinni heitið til Viareggio á ítölsku ríverunni. Í dag fórum við til Pisa og reyndum að rétta við skakka turninn og síðan til bæjar sem heitir Lucca, sem er mjög skemmtilegur gamall bær með fullt af skemmtilegum byggingum. Í dag var rigning í fyrsta sinn síðan ég kom hingað út (og ekkert smá á köflum, kallast stundum Siglufjarðarsól). Eftir skoðunarferðir ákváðum við að fá okkur að borða hér í Viareggio en komust þá að því að flestir staðir eru lokaðir á mánudögum okkur til mikillar "gleði". Eftir smá eftirgrennslan kom í ljós að það var opinn staður rétt hjá hótelinu og meira að segja með fínum mat.

Með "Siglufjarðarsólarkveðjum"
Magnús, mamma og pabbi

ps
Gunni bað um Ferrari-mynd og hér er ein í forrétt..














Og hér er síðan mynd af pabba og mömmu með nýja bílinn.....

miðvikudagur, september 20, 2006

Bless Spánn

..þar til næst. Við erum að yfirgefa Spán á morgun og keyrum yfir til Frakklands. Þetta er búið að vera fínt hérna, sól og upp í 30°C. Við erum búin að skoða talsvert hérna í kring, þar á meðal höfuðstöðvar Opus Dei reglunnar en þeir sem hafa lesið DaVinci lykilinn kannast við hana. Þetta er svaka stórt og flott hús (höll) sem er víst eitt stórt virki með kjarnorkubyrgi og öllum græjum. Við vitum hér með að það verður ekki guð sem kemur heimsendi af stað heldur brjálæðingar með kjarnorkusprengjur :) Við kíktum yfir til Frakklands í morgun til að fá okkur bjór og förum á morgun þangað til að fá rauðvín og osta og einhvern léttan mat í eðlilegum skammtastærðum......

kveðja frá Spáni
Magnús, mamma og pabbi....

mánudagur, september 18, 2006

Á Spáni er gott að....

...vera. Við erum í bæ sem heitir Huesca eins og er. Við höfum fengið höfðinglegar móttökur og erum búin að éta á okkur gat, gjörsamlega. Veðrið hér er búið að vera fínt, 20-26 stiga hita og ýmist sól eða ekki sól. Ég kom hingað á sunnudag eftir að hafa millilent í Frankfurt. Það er einhver "#$%" mest óþolandi flugvöllur sem ég hef prófað lengi, ég notaði sjálfsafgreiðsu og "fast check-in" og miðað við það þá þarf maður að vera heilan dag ef maður ætlar að nota gamla mátann. En þetta tókst allt saman og ég jafnaði mig á bjórnum sem ég fékk mér þegar ég var kominn í gegn um geðveikina :) En í dag er ekki hægt að kvarta yfir neinu nema of-áti sem við mamma og pabbi höfum þjáðst af hérna.

Spánarkveðjur
Magnús

ps
Nick Cave tónleikarnir voru mjög góðir :)

þriðjudagur, september 12, 2006

Veiði

Ég er búinn að smita Magna af skotveiðibakteríu. Raunar svo mikið að honum tókst að ná fyrsta fuglinum á undan mér. Við vorum sem sagt að koma af gæsaveiðum og honum tókst að fella einn fugl en árangurinn hjá mér var ekki jafn glæsilegur. Minn tími mun koma.... Veiðimaðurinn er stoltur, enda má hann vera það. Fuglinn er kominn á snúruna hjá mér og bíður frekari meðhöndlunar. Síðan mun hann hljóta þau örlög að verða að máltíð hjá okkur fljótlega :)

Kveðja
Magnús
 Posted by Picasa

þriðjudagur, september 05, 2006

Eistaheimsókn

Ég fékk sendar þessar myndir af heimsókn og æfingum með Eistunum (hljómar vel að vera að æfa með Eistunum er það ekki..?). Fleiri myndir munu koma síðar, eða tengill á þær.
Hópurinn uppi á jökli

Bílarnir að klöngrast upp á jökul

Verið að bjarga "Hagbarða" úr Svartagili við Fáskrúðsfjörð

Hellabjörgun við Mývatn


Kveðja
Magnús Posted by Picasa

laugardagur, september 02, 2006

Myndir


Loksins er hægt að setja inn myndir aftur. Það gengur þó ekki þrautalaust fyrir sig enn sem komið er því einhverra hluta vegna er ekki lengur möguleiki á að setja myndir beint inn þegar ýtt er á "skrifa fréttaskot" hérna til hliðar. Það er aftur á móti lítið mál að setja þær inn eftir á með því að velja blýantinn sem er fyrir neðan póstinn því þá er hægt að breyta póstinum að vild, nema því sem ég skrifa á mínu nafni, ég einn get átt við það :)

Ef einhver notar myndaforritið Picasa þá er hægt að setja myndir beint inn þaðan. Maður velur þær myndir sem eiga að fara hingað og ýtir síðan á "BlogThis!" takkann sem er neðst. Síðan er sama notendanafn og lykilorð og myndirnir eiga (vonandi) að rata á réttan stað. Þarna er hægt að setja inn texta með hverri mynd og gera allt það sama og beint í gegn um bloggið sjálft.

Magnús "myndarlegi"




miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Heimsókn frá Eistlandi

Já, ótrúlegt en satt. Ég var í sól og blíðu alla síðustu viku. Það kom hópur frá alþjólegu björgunarsveitinni í Eistlandi og heimsótti Austurland rústabjörgun í síðustu viku. Þegar ég kom austur á mánudegi voru þeir að "bjarga" dúkkum úr gili á móti þorpinu í Fáskrúðsfirði. Þarna var hitinn um 20 stig, sól og blíða. Á þriðjudegi fórum við með þá upp á jökul og leifðum þeim að prófa ísklifur og á miðvikudegi fórum við í Dimmugljúfur við Kárahnjúka. Við fórum niður í gljúfrið og það er alveg jafn svakalegt að sjá þaðan og ofanfrá. Eftir Dimmugljúfur fórum við á Mývatn og eistarnir vissu ekkert hvaðan á sig stóð veðrið þegar við sögðum að við værum að fara í bað og örkuðum með þá út í hraunið í svarta myrkri. Þeir voru ekkert síður hissa þegar við klöngruðumst niður í 5 metra djúpa sprungu og böðuðum okkur í 40 gráðu heitu vatni.

Daginn eftir var farið í hellabjörgun á Mývatni þar sem mýið var að gera suma alveg brjálaða. Ennþá var sól en aðeins farið að kólna (ekki nóg út af flugunni samt). Á föstudegi var farið á Norðfjörð og siglt þaðan yfir í Viðfjörð. Við fórum með Hafbjörginni (björgunarskipið) og síðan skiftumst við á að fara með Glæsi (hraðbjörgunarbáturinn). Ég fékk að endurnýja kynnin af Glæsi sem var síður en svo leiðinlegt. Spurning hvað þeir Svenni og Ingvar Stefán gera við mig næst þegar ég hitti þá, stökk aðeins of mikið í eitt skiftið. Í Viðfirði var síðan skemmt sér og farið í gufu, ofninn er viðarkinntur meira að segja (ekkert rafmagn). Á laugardeginum var síðan haldin grillveisla á Egilsstöðum með öllu tilheyrandi og farið á ball með Hjálmum eftir það, svaka fjör.

Það er skemmst frá því að segja að Eistarnir voru himinlifandi yfir þessu öllu saman. Þeir fengu að reyna fyrir sér í fjallabjörgun en fjöll eru álíka algeng í Eistlandi og í Danmörku. Það voru allir þreyttir en mjög ánægðir að vikunni lokinni. Myndir munu koma á heimasíðu Austurlands rústabjörgunar á næstunni en það er verið að safna þeim saman núna, fleiri hundruð eða þúsund stykki.

Einhverra hluta vegna er ekki hægt að setja myndir inn á þessa síðu í augnablikinu og er ég enn að reyna að finna út úr því hvers vegna það er. Ég vona að ég finni einhverja lausn á því fljótlega svo ég þurfi ekki að búa til fjallabaksleið til þess.

Með kveðju að norðan (engin sól hér núna)
Magnús

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Nýtt útlit

Eins og sjá má þá hefur síðan fengið "extreme makeover" hjá mér. Einhverra hluta vegna virðist ekki vera hægt að setja myndir inn á síðuna í augnablikinu en ég vona að það komist í lag fyrr eða síðar.  Til að skrifa þá þarf að velja "skrifa fréttaskot" hérna uppi til hægri, leiðbeiningar um notendanafn og lykilorð er að finna efst á síðunni. Ef einhver vill skrifa og lendir í vandræðum er alltaf hægt að hafa samband við mig.

Munið að þetta var upphaflega ætlað fyrir alla fjöslkyldulimi og mamma og pabbi eru búin að lofa því að nota þetta þegar þau eru úti (vonandi að hægt verði að setja inn myndir).

Kveðja
Magnús

laugardagur, ágúst 12, 2006

Hreindýraveiðar
Ég var að koma austan af Fljótsdalsheiði með Gunna og Magga vini hans. Ástæðu ferðarinnar má sjá hér að neðan, Gunni var að skjóta hreindýr. Eftir nokkurra klukkutíma leit fundum við hóp og þurftum ekki að ganga nema 2,5 km að þeim, skríða um 100 metra og eitt skot. Nokkuð gott miðað við fyrsta skiptið. Leiðsögumaðurinn kom síðan nær með bíllinn og þurftum við því bara að bera dýrið um 900 m til baka. Þetta var belja, kálfurinn kom ekki aftur og hefur líklega bjargað lífi sínu með því. Þegar búið var að hreinsa dýrið og flá það var það 41 kg. Um kvöldið voru það því þreyttir en ánægðir veiðimenn sem grilluðu gæsabringur og fóru snemma í háttinn, þrátt fyrir plön um annað :) Hægt er að sjá myndir úr ferðinni (varúð, smá blóð á sumum) hér ásamt nokkrum fleiri myndum. Af einhverjum ástæðum eru íslenskir stafir í rugli á nýju síðunum en ég hef ekki komist í það að finna út hvers vegna.

Kveðja
Magnús

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Veiðivötn og hvalur
Já, ég ætla í Veiðivötn og veiða eitt stikki hval....... Reyndar át ég hval í Gullbringu í gær og var hann að sjálfsögðu mjög góður. Ég er á leiðinni suður núna á eftir með mömmu og pabba sem eru búin að vera í heimsókn hjá mér. Við erum síðan á leiðinni í Veiðivötn um helgina og vonumst við eftir góðri veiði (fyrsta setningin er að vísu bara draumórar). Spáin er bara sól og blíða eina ferðina enn, við hljótum að lenda í stormi og snjókomu næsta ár..... Anna Sigga og fjölskylda eru á Siglifirði í augnablikinu og er von á Önnu Siggu og Rakel Rán aftur á Akureyri eftir helgi.

Við fórum í Flateyjardal á laugardaginn, ég, mamma og pabbi, Anna og Gunni með stelpurnar og foreldrar Gunna. Við fórum á þrem bílum, ég á Rauða ljóninu (Subarunum) og get ég stoltur sagt frá því að ég komst alla leið niður að sjó, yfir ótalmargar ár og læki með mismiklu vatni. Ég held að ég hafi eyðilagt daginn fyrir mörgum jeppamanninum þarna, og skammast mín ekkert fyrir það. Ég verð að viðurkenna að heimferðin var ekki alveg jafn auðveld enda hafði vaxið mikið í ánum yfir daginn. Hefðum við verið aðeins lengur hefði ég líklega stoppað í einhverri ánni (vatnið komið vel upp á húdd sumstaðar og talsverður straumur). Ég fór þetta samt án vandræða (að sjálfsögðu..) Það voru margir sem stoppuðu til að fylgjast með mér fara yfir árnar og einn jeppi elti okkur alla leið niðureftir til að fylgjast með mér. Það voru teknar einhverjar myndir og ég get vonandi sett inn "jeppamyndir" fljótlega :)

Kveðja úr næstum því sólinni
Magnús

þriðjudagur, júlí 11, 2006

Langaði
bara að láta ykkur vita að ég væri enn á lífi. Anna Sigga og stelpurnar eru búnar að vera í heimsókn hjá mér og Gunni af og til. Kíktum á Siglufjörð í "Siglufjarðarsólin" (sem getur verið blaut) um helgina og á þjóðlagahátíðina þar. Ég sá Halldór spila tvisvar, báðir tónleikarnir mjög flottir en ólíkir hvor öðrum. Ég keyrði afa og ömmu í Gullbringu í síðustu viku og hitti þau síðan á Siglufirði aftur. Solla frænka kom hingað á sunnudaginn og fór í morgun suður aftur og von er á mömmu og pabba á morgun. Eins kíktu Jóhanna og Páll í kvöldkaffi. Gestafjöldinn hér á Akureyri er þegar orðinn meiri en fyrir austan :)

kveðja úr ... hmmm... ekki sólinni
Magnús

miðvikudagur, júní 28, 2006

Að aka hratt eða ekki hratt
Rakst á þessa frétt áðan: Ökumenn rólegri í akstri um Reykjanesbrautina sem kom mér svolítið á óvart þar sem í morgun sá ég eftirfarindi frétt í sama miðli: Hraðakstur á Reykjanesbraut. Snögg skoðun á umferðargreini Vegagerðarinnar sýndi að ca 50% bíla var yfir hámarkshraða. Ég velti því fyrir mér, hvernig keyrðu menn eiginlega áður en þetta var tvöfaldað?

Kveðja úr sólinni
Magnús

miðvikudagur, júní 14, 2006

Sólarfréttir
og fréttir af sólarleysi... Veðrið er búið að vera allavegana hérna fyrir norðan. Síðasta helgi var fín, hlýtt og skýjað á laugardaginn og hlýtt og smá rigning á sunnudag en samt besta veður. Á mánudag var síðan skítakuldi, rok og rigning. Í gær, þriðjudag kom í ljós að það var grátt ofan í miðjar hlíðar en sól og fínt veður. Í dag er búið að vera rok en hætt að rigna núna.

Ég fór að veiða með Magna og stelpunum hans á laugardaginn. Við fórum á stað þar sem eldisfiski er sleppt í litlar tjarnir og bara borgað kílóverð. Núna erum við með fulla frysta af silungi og tómar buddur. Held samt að okkur hafi tekist að smita elstu dóttir Magna af bakteríunni ógurlegu. Á sunnudag var ég spurður hvort ég væri ekki til í smá siglingu með björgunarsveitinni. Ég var meira en til í það og áttaði mig á því af hverju ég var með þessi fráhvarfseinkenni. Ástæðan var sú að það var sjómannadagur og ég hafði ekki verið í því að setja út baujur, draga kappróðrarbáta, gæslu á togurum í hópsiglingu, sigla í kring um bátana í hópsiglingu, á hlaupum í kaffisölunni, láta hífa mig upp í þyrlu og hoppa í sjóinn.... Ég bara var ekki að gera neitt af þessu eins og ég er vanur að gera um þessa helgi (meira að segja alla þessa hluti sömu helgina stundum...). Ég fékk því smá "afréttara" og komst á sjóinn og var bara hoppandi kátur fyrir bragðið.

Ég skráði mig á skotnámskeið hjá skotfélaginu hérna. Ég sé að það er bara gaman að drepa leirdúfur og mér gékk bara ágætlega í fyrsta tíma. Ég skaut að vísu bara léttustu dúfurnar en er samt kátur með árangurinn. Í dag er áætlað að skjóta meira og erfiðari dúfur. Það er líka rok þannig að það er spurning hvort mér gangi nokkuð jafn vel í þetta skiptið.

Ég kem suður um helgina. Gunna og Ingimar eru að fara að gifta sig og maður lætur sig ekki vanta. Ég ætla að keyra og koma við á Laugum í Sælingsdal og heilsa upp á Guðjón sem er hótelstjóri þar í sumar.

Kveðja úr norðan "sólinni"
Magnús

fimmtudagur, júní 08, 2006

Sólin er komin..
..og farin í bili. Það besta er samt að snjórinn er allur farinn (af láglendi). Héðan að norðan er allt fínt að frétta og lífið gengur sinn vanagang. Ég ætlaði á Gufuskála um Hvítasunnuhelgina með Austurland rústabjörgun en því var því miður aflýst á síðustu stundu vegna vöntunar á mannskap. Þá var gripið til plans-B, sem kom reyndar í ljós að var ekki neitt, það leit svo vel út með Gufuskálaferðina. Þá var farið í að búa til plan-C og þegar ég komst að því að þeir frændur mínir Kiddi og Maggi Gauti væru að fara á Reykjavík Tropik ákvað ég að skella mér suður og fara líka. Ég fékk sem sagt góðan skammt af lifandi tónlist (og smá bjór) um Hvítasunnuna. Það var mikið af góðum böndum þarna, m.a. Apparat (sem var slökkt á..) en það hefði mátt vera meira af áhorfendum. Maður er spenntur að vita hvort tónleikahaldararnir séu á leið í skuldafangelsi eða hvort þeir hafi slefað yfir núllið.

Ég fékk líka tvær snemmbúnar afmælisveislur um helgina. Anna Sigga var með kökur á sunnudeginum og Jóhanna frænka með matarboð á mánudeginum. Ég er ekkert ósáttur við það, alltaf gott að éta...... :)

Gunni og vinnufélagi hans hafa verið hér fyrir norðan og gist hjá mér. Það varð auðvitað til þess að mér varð ekkert úr verki með eldhúsið (þetta er að verða eins og sagan endalausa) og mér sýnist veðurspáin ekki ætla að hjálpa mér þessa helgi. Það er samt aldrei að vita, ég er ekki búinn að plana neitt um helgina en sól og hiti gæti alveg sett strik í reikninginn (og formúlan..).

Ég keypti miða fyrir mig og foreldrana á tónleika Emiliönu Torrini og Belle and Sebastian núna í morgun. Ég keypti miða á NASA og það er nú þegar uppsellt. Þau eru líka með tónleika á Borgarfirði eystri en þrátt fyrir mikla leit fyrir austan fann ég engan sem ætlaði þangað. Það eru orðin mjög mörg ár síðan ég sá Emiliönu spila á tónleikum síðast og ég hélt að líkurnar á að sjá Belle and Sebastian væru álíka miklar og að sjá Tom Waits þannig að ég er bara mjög kátur með að vera kominn með miða.

Kveðja úr norðan blíðunni
Magnús