föstudagur, apríl 27, 2012

Síðasti póstur var árið 2009. Er einhver ástæða til að byrja aftur? Miðað við teljarann á síðunni eru samt einhverjir sem opna þetta af og til, maður er pínu forvitinn um það hver það er á margra ára gömlu bloggi :)

mánudagur, júlí 06, 2009

Spurning dagsins...

Núna eru liðnir nokkrir mánuðir síðan ég setti eitthvað hérna inn og það virðist alltaf lengjast á milli skrifa. Ástæðan er ekki sú að ekkert hafi verið að gerast undanfarið heldur flokkast þetta líklega undir leti hjá mér. Spurning dagsins er því sú hvort ég eigi að halda áfram að bulla hérna eða láta þetta eiga sig. Það er hægt að segja af eða á eða hvað sem er með því að velja comments hérna fyrir neðan og setja eitthvað inn. Engin comment hlýt ég að túlka sem svo að ég eigi að hætta að setja eitthvað hérna inn.

Magnús

sunnudagur, febrúar 15, 2009

Jáhá...

Það er pínu langt síðan ég skrifaði síðast, og enginn búinn að kvarta ennþá. En ég vill bara láta vita að ég er sprell lifandi. Látum okkur sjá, hvað er ég búinn að bralla síðan síðast....

Strákarnir komu norður eins búið var að plana og er þetta orðið árlegt hér með. Þetta var mjög gaman, skutum nokkrar leirdúfur, átum hreindýr og rjúpur og drukkum auðvitað tilheyrandi veigar með og skemmtum okkur fram undir morgun. Við Magni fórum síðan eina helgi á Mývatn og gengum báða dagana nokkra kílómetra í kulda og frosti en fallegu veðri. Við sáum ekkert agalega mikið af rjúpu en ég náði þó fjórum stykkjum, sem er persónulegt met. Magni fékk þó aðeins góðan göngutúr út úr helginni en hann kvartaði ekkert agalega mikið þrátt fyrir það.

Ég var fyrir sunnan um jólin en fór með mömmu og pabba til Danmerkur annan í jólum. Ferðin var auðvitað alveg frábær og gaman að hitta fjölskylduna þarna úti og sjá húsið sem þau búa í. Hérna er smá pistinn frá Önnu og Gunna um ferðina og hér er að finna myndir frá Danmörku.

Strax eftir áramót fór ég á gamlar slóðir fyrir austan en við vorum með kynningu á mati á umhverfisáhrifum Norðfjarðarganga. Kynningin gékk vel og gaman að koma austur, maður mætti fara oftar. Mamma og pabbi komu síðan í heimsókn norður og var þetta fínasta rólegheita helgi þar sem borðaður var góður matur, farið í bíó og slappað af.

Annars er frekar rólegt framundan miðað við oft áður. Það eru náttúrulega árshátíðir hjá björgunarsveitinni hér, vinnunni og eins hjá björgunarsveitunum fyrir austan en ótrúlegt en satt, þetta er allt í sitt hvorum mánuðinum.

Kveðjur að norðan
Magnús

föstudagur, október 31, 2008

Neyðarkall

Núna um helgina verður Neyðarkallinn seldur um allt land. Þetta er hluti af fjáröflunum fyrir björgunarsveitir á landinu. Óhöpp og náttúruöflin láta alltaf á sér kræla í mis miklu mæli. Um síðustu helgi var björgunarsveitarfólk í fjölda verkefna vegna veðurs, í viðbragðsstöðu vegna snjóflóðahættu og að aðstoða fólk vegna veðursins. Hér fyrir norðan fór fólk í aðstoð vegna færðar, að hjálpa fólki sem sat fast í snjóflóði, aðstoðaði við sjúkrafluttninga o.fl. Allt er þetta gert í sjálfboðavinnu og öll þjálfun auk kaupa og reksturs tækja er borgað með peningum sem er að lang mestu leiti aflað með sjálfboðavinnu.

Það er þröngt í búi hjá mörgum en ég hvet þá sem geta til að kaupa Neyðarkallinn því þótt það kreppi að þá þarf fé til þess að reka björgunarsveitirnar og þær eru jafn nauðsynlegar í kreppu sem á uppgangstímum. Þar sem ég er fyrir löngu búinn að lofa mér í annað um helgina get ég ekki tekið þátt í sölunni en ég hvet alla til að leggja sitt af mörkum ef hægt er, ég mun kaupa minn Neyðarkall þar sem ég veit að peningunum er þar vel varið.

Magnús

þriðjudagur, október 28, 2008

Myndir og fleira

Nú er kominn tími á að setja inn myndir og smá bull í leiðinni. Það er búið að vera "frekar rólegt" hjá mér eftir að ég kom heim frá útlandinu. Rétt eftir að ég kom norður var aftur pakkað niður í tösku og keyrt suður til Grindavíkur. Þar var stór æfing þar sem Austurland rústabjörgun, björgunarsveitin á Dalvík og björgunarsveitin á Suðurnesjum auk slökkviliðsins sáu um að "bjarga" og hlúa að um 50 "sjúklingum" sem höfðu lent í jarðskjálfta. Við fengum fínasta veður á æfingunni, það besta í allt haust þarna fyrir sunnan held ég. Æfingin var mjög góð og skemmtileg verkefni sem við fengum. Síðan var að sjálfsögðu farið í Bláa lónið á eftir til að slaka á. Hér er frétt úr Víkurfréttum um æfinguna.

Um miðja vikuna þar á eftir kom ég aftur suður út af vinnunni og var fram yfir helgi en nokkrum dögum síðar komu mamma og pabbi norður í góða veðrið. Þau enduðu í sviðaveislu í vinnunni hjá mér og skemmtu sér barasta ágætlega eftir því sem þau segja. Restin af helginni var bara róleg, bíltúr og góður matur eins og lög gera ráð fyrir.

Um síðustu helgi fór ég síðan suður aftur með björgunarsveitinni. Stefnan í þetta skiptið var sett á ráðstefnuna Björgun sem var alla síðustu helgi. Þetta var mjög góð ráðstefna og margt forvitnilegt sem var fjallað um (og annað minna áhugavert eins og gerist, háð áhugasviðum).

Um næstu helgi koma síðan strákarnir norður í veislu eins og var í fyrra. Eins og síðast ætlum við Magni að bjóða þeim upp á villibráð sem við höfum sjálfir fellt, rjúpur og hreindýr en enga gæs núna. Þetta verður mikið fjör eins og í fyrra geri ég ráð fyrir, held að öllum sé farið að hlakka til. Að vísu gæti verið að strákunum verði ekki of vel við að fljúga eftir síðustu ferð en þeir láta sig vonandi hafa það samt. Í næstu viku geri ég síðan ráð fyrir að koma suður eina ferðina enn til að fara á ráðstefnu hjá Vegagerðinni. Eftir það er barasta ekkert bókað enn sem komið er, maður kemst kannski á rjúpu?

Tenglar á nýjar myndir eru hér að neðan og mun ég bæt við einhverjum texta við þær við tækifæri.

Kveðja úr snjónum
Magnús

Ástralía 2008

Veiðivötn júlí

Flatey 2008

föstudagur, september 26, 2008

Kominn heim...

Allt tekur víst enda og er ég kominn heim í rokið og rigninguna. Sydney er skemmtileg borg. Ég var að vísu einn að þvælast þar en vinir Önnu og Paul sem búa þarna voru ekki heima og Julia sem var að læra í Svíþjóð um leið og ég komst ekki frá Canberra til að hitta mig eins og hún hafði ætlað að gera. Sydney er stærri borg en Melbourne og fann maður það á öllu þegar maður kom þangað. Þó minna væri af kaffihúsum og veitingastöðum (sem eru út um allt í Melbourne) þá var nóg að skoða þarna. Óperuhúsið og brúin yfir höfnina eru þeir staðir sem eru frægastir. Óperuhúsið er mjög sérstakt en ég skoðaði það bara að utan þar sem margir voru búnir að segja mér að það væri ekki skemmtilegt að innan. Það er hægt að labba yfir bogann á brúnni en ég lagði ekki í það, helst til hátt fyrir mig held ég (það má reyna að mana mig í það síðar ef ég fer þangað aftur....). Ég fór líka í siglingu um höfnina og rölti um svæði sem heitir Manly sem er þorp sem samt tilheyrir Sydney.

Ég skoðaði líka söfn m.a. sjóminjasafnið þarna sem flott safn. Þar snérist stór hluti sýngarinnar um sjóherinn og hvað þeir hafa afrekað. Eins var fjallað mikið um strandlífið og skútur. Eins var hluti sýningarinnar um hvalveiðar, þátt Ástrala í mikilli ofveiði á hval og baráttu þeirra gegn hvalveiðum í dag. Auðvitað var minnst á að einn væri verið að "myrða" hvali víða um heim þrátt fyrir að það sé "bannað" en engin þjóð var nefnd (þeir hafa kannski fattað að ef það ætti að vera þyrfti að setja Bandaríkin með á listann...).

Veðrið þarna var mun betra en það sem búið var að vera. Fékk ég tvo daga með 30 stiga hita, sól annan daginn en skýjað hinn. Ég slapp við þá littlu rigningu sem kom á meðan ég var þarna (fínt að það rigni á nóttinni en sé sól yfir daginn) og hitinn var í kring um 20 gráður hina dagana.

Ég er með nokkur hundruð myndir og ég er búinn að lofa mörgum að setja eitthvað inn á netið við fyrsta tækifæri. Hvort það verður fyrr en eftir helgi þegar ég kom norður er óvíst en það verður að koma í ljós.

Næst á dagskrá er síðan bara að fara að vinna eftir helgi, skoðunarferð að Dettifossi að mér skylst og síðan stór rústaæfing í Grindavík um næstu helgi. Maður er alltaf heima eins og vanalega...

kveðja úr íslenskri rigningu
Magnús

föstudagur, september 19, 2008

Melbourne, næst Sydney

No worries
Þetta hljómar oft hérna, sérstaklega þegar maður þakkar fyrir eitthvað. Það eru ekki bara kengúrurnar sem eru sérstakar hérna :)

Þetta er síðasti dagurinn minn hér í Melbourne og á morgun flýg ég til Sydney. Þar verð ég að túristast í nokkra daga áður en ég held heim á leið.

Ferðin til Phillip Island og Willsons Promontory var barasta fín. Við byrjuðum á Phillip eyju þar sem við skoðuðum dýraathvarf þar sem við gátum séð kóalabirni, kengúrur, krókudíl og fleira skemmtilegt. Eins skoðum við vinsæla brimbretta strönd og klettaströnd þar sem á að vera hægt að sjá seli á góðum degi (sá enga). Í lok dagsins var farið að horfa á mörgæsirnar massera upp úr sjónum og upp í sandhóla ofan við ströndina. Það var eins og við var að búast orðið svalt þegar mörgæsirnar létu loks sjá sig og þær sem ég sá voru mun færri en ég hafði gert ráð fyrir. Þegar maður gékk síðan frá fjörunni og upp í þjónustuhúsið þá sá maður fullt af mörgæsum sem létu margar hátt, enda er varptíminn að hefjast og fuglarnir á fullu að para sig og berjast um bestu svæðin. Þessar mörgæsir munu vera þær minnstu í heimi. Því miður mátti ekki taka neinar myndir þarna og er svæðið verndað á alla kannta enda eina mörgæsasvæðið sem er eftir á eyjunni. Við vorum síðan 5 úr hópnum sem gistum á eyjunni en restin var í dagsferð. Hinir 4 voru allir indverskir vinir sem töluðu saman á hindí allan tímann og bærinn sem við vorum í var algjör draugabær. Sem sagt rólegt kvöld og snemma að sofa.

Daginn eftir vorum við sóttir og fórum við með nýjum hóp í Wilsons Promotory. Þetta er þjóðgarður og líkist svæðið mikið Tasmaníu að því er menn segja. Svæðið er frábærlega fallegt og fjölbreytt. Þarna voru gresjur, votlendi, regnskógar, fjöll og fjörur. Við fórum í létta fjallgöngu á tind sem heitir Mt Bishop. Útsýnið þaðan var frábært og sólin farin að skína og var borðaður hádegismatur á toppnum. Síðan var gengin leið frá þjónustumiðstöðinni þarna yfir í fjöru sem heitir Squeaky Beach (það ískrar í sandnum þar sem er líklega skýringin á nafninu). Leiðin var alveg frábærlega falleg og mjög fjölbreytt. Eftir þetta voru fleiri kengúrur skoðaðar en einnig sáust emúar og wombatar. Veðrið lék við okkur þennan dag, sól og blíða og fínn hiti. Seinni dagurinn var mun skemmtilegri en sá fyrri (skemmtilegri hópur líka) þó margt áhugavert hafi verið að sjá báða dagana.

Í gær skoðaði ég meira af Melbourne, m.a. gamalt fangelsi. Við fórum síðan og borðuðum Peking önd í gærkveldi sem var örlítið frábrugðin því sem maður er vanur. Fyrst var byrjað á því að borða öndina í pönnukökum með gúrku, vorlauk og sósu. Næst fengum við öndina í núðlum og í lokin var súpa þar sem búið var að sjóða restina af öndinni og beinin. Allt var þetta algjört sælgæti.... Í dag er síðan stefnt á meira rölt um borgina og síðan að kíkja eitthvað út með vinum Önnu og Paul. Anna er farin á eitthvað námskeið sem er fyrir þá sem vinna fyrir Rauðakrossinn á alþjóðlegum vettvangi og verðu þar næstu 5 daga þannig að við Paul kíkjum aðeins á lífið. Á morgun flíg ég til Sydney eins og ég sagði áður og mun líklega þramma borgina endannna á milli. Ég er búinn að fá gistingu á gistiheimili sem lítur út fyrir að vera fínt og er á ágætis verði. Ég verð líklega ekki í netsambandi í Sydney en mun skrifa um lokahluta ferðarinn þegar ég kem heim, og auðvitað stinga inn nokkrum myndum.

Kveðja
Magnús

mánudagur, september 15, 2008

Meira "úr neðra"

Tíminn líður eins og við var að búast. Ég er búinn að labba Melbourne endanna á milli og skoða borgina. Mér tókst auðvitað að misstíga mig og snúa á mér ökklann þannig að hluti af göngunni hefur verið með bólginn ökla. Þetta er þó allt að lagast, bólgan farin en mar í öllum mögulegum litum komið í staðinn. Melbourne er mjög skemmtileg og þægileg borg. Þó þetta sé stórborg þá er rólegt yfirbragð yfir henni og allt mjög afslappað. Það er ekki skortur á veitingastöðum og kaffihúsum hér í borg.

Um síðustu helgi fórum við og heimsóttum bróður Önnu sem býr skammt utan við Melbourne. Við keyrðum líka leið sem er kölluð The Great Ocean Road. Það má segja að leiðin standi heldur betur undir nafni. Við gengum líka um trjátoppa ef svo má segja. Það er búið að byggja göngubrú í regnskóg skammt frá The Great Ocean Road og liggur brúin frá jörðu og upp í rúmlega 30 metra hæð. Þarna er líka turn sem nær upp í sömu hæð og trjátopparnir, 47 metrar. Þarna var svolítill vindur þannig að tréin sveifluðust stöðugt til (brúin og turninn örlítið líka) þannig að eftir smá stund varð Paul að játa sig sigraðan fyri lofthræðslu og "sjóveiki" og kom sér á jörðina. Þetta var mjög gaman eins og ferðin með sjónum öll. Þetta var líka heitasti dagurinn hingað til, 24 gráður plús, sól en strekkings vindur.

Í dag fórum við Anna í gamla gufulest sem heitir Puffing Billy. Leiðin lá um fjalllendi í útjaðri Melbourne og tók um 2 tíma. Við áttum miða báðar leiðir en eftir að hafa fengið okkur að borða ákváðum við að taka strætó til baka. Ástæðan var að það var frekar kalt í dag, og rok. Við fengum meira að segja haglél á okkur þegar við vorum að bíða eftir strætó.

Á morgun fer ég í tveggja daga ferð til Phillip eyjar og Wilsons Promontory þar sem ég mun skoða náttúruna og horfa á mörgæsa "skrúðgöngu". Þetta verður spennadi og vonandi verður verðir skárra en í dag. Spáin fyrir morgundaginn er að vísu ekkert voða spennandi en fyrir miðvikudaginn er hún mun skárri. En ég er búinn að kaupa húfu og vettlinga og fá lánaðar auka peysur þannig að ég ætti að lifa þetta af.

Kveðja úr kulda/hita
Magnús

þriðjudagur, september 09, 2008

Down under.....

How ar'ya doin mate...

Þá er maður kominn hinumeginn á hnöttinn loksins og meira að segja búinn að vera hér í nokkra daga. Ferðin byrjaði í Danmörku þar sem Tina gifti sig. Það var fínt að komast úr íslenska rokinu sem var heima í danska sól og 20 stiga hita. Það var ekki síður gaman að hitta Önnu Siggu og þær Malín og Rakel sem biðu eftir mér og mömmu á flugvellinum ásamt pabba sem var kominn út á undan okkur. Við fórum með töskurnar okkar þangað sem við gistum og síðan beint í Tivoli þar sem Malín þurfti að beita öllum sínum sannfæringarkrafti til að fá mig í sjónræningjaskipin. Eftir að hafa safnað kjarki lengi ákvað ég nú að láta slag standa og sjá hvort þetta væri nokkuð svo voðalegt. Þetta var síðan bara gaman á endanum. Um kvöldið kom Gunni síðan og borðuðum við kvödlmat öll saman. Daginn eftir var síðan sjálft brúðkaupið. Þegar við vorum að gera okkur klár komst ég að því að ég var bara með helminginn af jakkafötunum, buxurnar hanga inni í skáp á Akureyri. Sem betur fer var Gunni með buxur sem höfðu bjargað honum úr klípu áður á viðkvæmu augnabliki. Buxurnar voru því styttar í snarhasti og komust við í brúðkaupið akkurúrat á réttum tíma. Brúðkaupið var síðan aðeins öðruvísi en við erum vön heima eins og Gunni lýsti á síðunni þeirra.

Daginn eftir var stigið upp í flugvél fyrir styðsta legginn í ferðinni, til London. Eftir stutt stopp á flugvellinum þar tók síðan við flug til Singapore og þaðan til Melbourne. Ég mætti hér um klukkan fimm um morguninn og var því eiginlega farið beint í morgunmat. Eftir að hafa lagt mig smá fór ég í göngutúr út í St. Kilda sem er "úthverfi" í Melbourne og gékk síðan um Albert Park á bakaleiðinni. Þar fer m.a. fram formúlan einu sinni á ári og gékk ég því um kappakstursbrautina að hluta og þjónustusvæðið þar sem má sjá merkingar og gúmmí þrykkt í malbikið þar sem kappakstursbílarnir spóla af stað.

Daginn eftir var haldið til Grampians þar sem sjálft brúðkaupið fór fram. Þetta er mjög fallegt svæði sem er að hluta til þjóðgarður. Anna og Paul eiga jörð þarna og þar fór athöfnin og veislan fram. Þarna voru kengúrur út um allt og urðu einhverjar þeirra fyrir barðinu á bílum brúðkaupsgesta. Svæðið er bæði hæðótt og mjög gróið trjám en þetta svæði brann meira og minna fyrir tveimur árum í miklum skógareldum. Það er samt merkilegt að sjá hvað gróðurinn hefur tekið við sér á þessum tíma, m.a. stór tré sem brunnu illa. Undirbúningur brúðkaupsins gékk þó ekki áfallalaust fyrir sig. Eftir þurrka síðustu 13 ár þurfti auðvitað að rigna helgina fyrir brúðakaupið sem þýddi það að tveir sendibílar og tveir traktorar sátu pikkfastir á svæðinu. Það tókst að losa allt nema einn sendibíl (hinn eiðilagðist í látunum) og það þurfti að færa veislutjaldið til frá því sem upphaflega var áætlað.

Allt gékk nú samt upp á endanum og fór brúðkaupið fram undir berum himni í sól og blíðu. Hérna var það sérstakur "giftingarmaður" (veit ekki hvað á að kalla þetta á íslensku, hvorki prestur né einhver hjá sýslumanni) sem sá um athöfnina. Veislan fór síðan fram í veislutjaldi og síðan var setið við varðeld fram eftir kvöldi. Brúðhjónin eyddu síðan brúðkaupsnóttinni í indjánatjaldi sem var sett upp á svæðinu (þau sem sáu um það festust líka). Ég gisti síðan í tjaldi á svæðinu eins og fleiri veislugestir gerðu.

Eftir að hafa gengi frá í gær gerðumst við síðan túristar í Grampians og skoðuðum nokkra staði þar. Við keyrðum síðan til Melbourne núna í dag og mun ég kanna borgina fram að helgi.

Veðrið hér hefur verið fínt, sól flesta daga en ekki hlýtt. Það verður reyndar mjög kalt á næturnar sem væri svo sem allt í lagi ef Ástralir kynnu að einangra og kynda húsin. Hérna hjá Önnu og Paul er þetta þolanlegt, sérstakleg sé tekið mið af því að þetta er eldgamalt hús. Þegar við vorum ekki í tjöldum á jörðinni þeirra Önnu og Paul gistum við í húsum í Halls Gap, sem er lítið þorp þarna á svæðinu. Húsið sem ég var í er nýtt en með einföldu gleri og líklega engri einangrun. Þarna var viðarofn í stofunni (gjörsamlega fáranleg hönnun held ég, sjaldan séð svona lítinn hita koma frá svona góðum eldi) og hitablásari í eldhúsinu (öfug lofkæling) en eldhúsið og stofan var í sama rými. Enginn hiti var í herbergjum fyrir utan hitalampa í baðherberjum. Sem betur fer var nóg af teppum á rúmunum og þessi yndælu hitateppi sem voru undir manni þannig að maður gat hitað upp rúmið áður en maður fór að sofa (og lengur ef manni var kalt). Þegar ég vaknaði einn morguninn var hitinn 9 gráður..... Í morgun var hitinn 12 gráður þegar ég vaknaði en samt tókst okkur að kynda vel í gær og var hitinn 20 gráður þegar ég fór að sofa. Ég kíkti á hitann þegar ég svaf í tjaldinu og hann var líka 9 gráður. Það var því jafn gott að sofa í tjaldinu og inni, ef ekki bara betra.

Læt þetta duga í bili. Ég er ekki með myndir á þessari tölvu en get vonandi stungið inn myndum einhvern daginn.

kveðja
Magnús

þriðjudagur, ágúst 26, 2008

Síðan síðast

Núna sannast enn og aftur hvað ég er duglegur að skrifa, að nálgast tveir mánuðir síðan ég var duglegur síðast. Mamma og pabbi komu í heimsókn og höfðum við það mjög gott eins og vera ber. Við fórum í Fjörður og veiddum þar (eða pabbi, ég var að sýnast með flugustöngina). Á föstudeginum ákváðum við að kíkja til Hríseyjar en í ferjunni á leiðinni þangað komust við að því að það átti að halda áfram út í Flatey (á Skjálfanda) þar sem átti að grilla og hafa harmonikkuball. Við ákváðum auðvitað að slá til þannig að Hrísey varð að Flatey. Ferðin var mjög skemmtileg, gott grill og staðurinn mjög fallegur og veðrið lék við okkur.

Eins ákváðum við að kíkja í Gullbringu þar sem við vissum að Unnur og Þórarinn væru þar og að afi og amma væru í heimsókn. Þegar við vorum að koma þangað sáum við bíla renna úr hlaði og að enginn bíll var fyrir utan húsið þannig að við ákváðum að halda bara áfram og sjá hvort þetta væru húsráðendur. Það var svo og ekki nóg með það heldur voru Marta og Siggi þarna líka á ferðinni þannig að þetta varð að fjölskylduferð inn í botn Svarfaðadals. Og enn hélt ættarmótið áfram því Sveinn og Auður voru hér á ferðalagi með stelpunum og bauð ég þeim í mat heim til mín. Ég hitti því stóran part af Brekkugerðisfjölskyldunni hér fyrir norðan á meðan mamma og pabbi voru í heimsókn.

Seinni Veiðivatnaferðin var síðan í lok júlí og komu Anna Sigga og Gunni með stelpurnar í þetta skiptið. Ferðin var mjög góð að vanda þar sem við strákarnir, allir nema pabbi og Páll, sváfum í tjöldum. Fyrri nóttin var að vísu hvöss og blaut en mér fannst það æðislegt þó að Gunni væri ekki alveg sammála. Stelpurnar nutu sín vel og Malín veiddi sína fyrstu fiska. Rakel fékk tækifæri til að draga fisk að landi en ákvað að það væri öruggar að horfa bara á. Um Verslunarmannahelgina fór ég á Siglufjörð þar sem Anna og Gunni voru með stelpurnar. Helgin var fín með tilheyrandi grilli og böllum.

Núna eru þau flutt út til Danmerkur þau Anna Sigga, Gunni og stelpurnar. Þau eru komin til Sönderborg þar sem Gunni er að fara í nám. Ferðin og fluttningar gengu vel, fyrir utan einhver skakkaföll á húsgögnum og hjólum á leiðinni. Þau voru búin að fá íbúð á kollegíi en það kom fljótt í ljós að nágranni þeirra var eitt stykki ölstofa fyrir stúdenta. Þetta er nú ekki nágranni sem maður vill hafa, sérstaklega með krakka. En þau duttu í lukkupottinn þar sem þau fundu strax hús til leigu og eru núna flutt í þetta fína hús. Þau eru búin að stofna blogg til að segja frá lífinu í baunalandi og er slóðin http://www.annaoggunni.blogspot.com/ en það má einnig finna slóðina hér til hliðar. Eins ætti að vera hægt að sjá nýjustu færslur þeirra hér til hiðar ef þetta virkar allt eins og það á að gera.

Eins og ég sagði fyrir langa löngu fékk ég ekki úthlutað veiðileyfi á hreindýr þetta árið en Magni fékk leyfi fyrir belju. Eftir mikið púsluspil var ég búinn að afskrifa að komast með honum á veiðarnar en það kom síðan í ljós að við komust á sunnudegi fyrir rúmri viku. Það var því brunað austur á laugardagsköldi og haldið af stað eldsnemma um morguninn. Magni sló held ég nýtt met í veiðinni. Við hittum leiðsögumanninn klukkan 6, klukkan átta var Magni búinn að ná fínni belju og klukkan 10 var búið að fella kálfinn. Við vorum lagðir af stað niður af Fljótsdalsheiði fyrir hádegi sem gerist sárasjaldan. Mörgum finnst þetta hálfgert svindl þar sem enginn eltingarleikur var af viti og dýrin voru skotin nánast við veginn. Það er að mörgu leyti rétt en svona er það, ýmist mikill eltingarleikur með tilheyrandi svita og erfiði (mjög algengt) eða þetta (sem er mjög sjaldgæft).

Gæsaveiðitíminn er byrjaður og fór ég á Möðrudalsöræfi með vinnufélögum á laugardaginn. Það er skemmst frá því að segja að árangurinn var eins og oft áður, enginn fugl og jafnmörg skot komu til baka og lagt var af stað með. Gæsirnar eru víst ennþá lengra upp á fjöllum en vanalega á þessum tíma enda búið að vera hlýtt og nóg af berjum að eta.

Næstu helgi fer ég til Danmerkur með mömmu og pabba. Þar hittum við auðvitað Önnu og Gunna og stelpurnar sem verður gaman. Við förum einnig í brúðakaup hjá Tinu sem bjó í heilt ár hjá okkur fyrir mörgum árum. Þaðan fer ég síðan í annað brúðakaup, í Ástralíu. Anna sem bjó á sama gangi og ég í Svíþjóð er að fara að gifta sig og þetta er nógu brjáluð ástæða fyrir mig til að fara yfir hálfan hnöttinn. Ég verð í tæpan mánuð úti og er farið að hlakka pínu pons til.....


Click for Melbourne, Victoria Forecast


Kveðja
Magnús

Mamma og pabbi í Flatey
Posted by Picasa

sunnudagur, júlí 06, 2008

Madrid - gifting - Veiðivötn

Eins og oft áður hefur liðið svolítill tími frá síðustu skrifum (svo vægt sé til orða tekið). Og eins og svo oft áður hefur verið nóg að gera þennan tíma. Í apríl fékk ég foreldrana og Stefán frænda í heimsókn, hélt upp á afmælið mitt fyrir sunnan, fór í vinnuferð á Vopnafjörð og síðan suður í Steggjapartý hjá Viktor, sem er núna giftur Sollu frænku. Já, held ég hafi líka skellt mér á tónleika með Þursaflokkinum hér fyrir norðan, flottir tónleikar :)
Maí var síðan álíka "rólegur", Reykjavík um Hvítasunnuhelgina og um leið í brúðkaupið hjá Sollu og Viktor. Óvænt ferð suður út af vinnu sem þýddi að ég komst líka í útskriftina hjá henni Védísi og á ættarmót Hraunættarinnar. Síðan var að sjálfsögðu steggjarpartý fyrir Gunna.

Júní var síðan aðeins minna "rólegur" en hinir mánuðurnir. Ég byrjaði á að fara til Madrid á ráðstefnu, með stuttu stoppi í Köpen á báðum leiðum. Ráðstefnan var flott og Madrid skemmtileg, nóg hægt að labba og skoða. Að sjálfsögðu hafa þeir líka nóg af góðum mat og drykk :) Okkur var boðið í móttöku í gamla ráðhúsið sem er mjög flott bygging (nóg vín og tapas líka) og síðan var gala-dinner, sem var alvöru Gala-dinner (með stórum staf), amk ef miðað er við ósköpin í París í fyrra. Þarna var byrjað með tapas (smá upphitun) og síðan þriggja rétta máltíð með öllu tilheyrandi. Eini gallinn var að maður svaf ekki um nóttina eftir að hafa étið svona mikið, á spænskum tíma (milli 10 og 12 á miðnætti).
Köpen og Madrid 2008


Síðan var komið heim, skipt um föt í töskunni og haldið suður. Tilefnið var brúðkaupið hjá Önnu og Gunna. Við smíðuðum pall í garðinum á Neðstaberginu og settum þar upp tjald fyrir mat og hljómsveit. Fyrir þau sem misstu af þessu þá sögðu bæði Anna Sigga og Gunni JÁ, það var sól og blíða allan daginn og kvöldið og veislan heppnaðist frábærlega. Mikil lukka hjá öllum að þessu loknu.
Brúðkaup Önnu og Gunna


Eftir þetta var haldið norður og enn skipt um innihald í ferðatöskunni og veiðidótið sett niður í þetta sinn. Ég fór með strákunum í Veiðivötn og fiskuðum við bara ágætlega, ég sjálfur með sjö stykki í öllum stærðum (ok, aðeins færri en í fyrra). Veðrið lék ekki alveg við okkur í þetta skiptið eins og undanfarin ár, kalt og vindur en að mestu þurrt. Við fengum þó á okkur þetta fína haglél en það er ekki í fyrsta skiptið.
Veiðivötn 2008


Þessi helgi er búin að vera róleg, tærnar upp í loft (úti á svölum í sólinni) og þvottavélin í gangi. Pabbi og mamma hafa boðað komu sína í vikunni þannig að eitthvað skemmtilegt verður brallað þá.

kveðja að norðan
Magnús

mánudagur, mars 24, 2008

Páskarnir

Þá eru páskarnir búnir eina ferðina enn. Í þetta skiptið var ég heima hjá mér og fékk foreldrana í heimsókn. Við fórum að sjá Fló á skinni sem var mjög skemmtilegt og mikið hlegið, enda um farsa að ræða. Hin árlega fiskisúpa var í þetta skipti á föstudaginn langa hér á Akureyri. Auk foreldranna bauð ég Magna og fjölskyldu hans og var þetta hin fínasta máltíð. Á laugardeginum fórum við á Siglufjörð þar sem Anna Sigga og fjölskylda voru. Þarna var haldin afmælisveisla þeirra systra fyrir okkur sem ekki komust í veisluna fyrir sunnan. Mikið fjör var þarna hjá krökkunum eins og við var að búast. Á páskadag var síðan farið á Mývatn og í Jarðböðin þar. Við fengum alveg frábært veður eins og sést á myndinni. Þarna erum við úti á frostnu vatninu að viðra okkur í blíðunni. Um kvöldið var síðan haldið áfram að borða af hreindýrinu en birgðirnar fara hægt og sígandi minnkandi í frystinum hjá mér.

Annars er búið að vera nóg að gera undanfarið hjá mér eins alltaf. Í lok janúar var ætlunin að fara upp í Laugarfell og jafnvel inn í Gæsavötn en eftir að hafa verið alla nóttina að reyna að komast upp Vatnahjallann, mikinn mokstur og ónýtt dekk og öxul var snúið við með skottið á milli lappanna. Skemmtileg ferð á sinn hátt en svekkjandi að komast ekki upp á fjöll. Í mars var ég 3 helgar í bænum, furðu mikið miðað við oft áður. Tvisvar var það vegna vinnu en eitt skiptið ákvað ég á laugardegi að kíkja í bæinn í afmæli hjá Einari vini mínum og mömmu. Mjög gaman (fyrir utan fáránlegasta hiksta sem ég hef fengið á ævinni).

Núna í mars var ég síðan á snjóflóðaráðstefnu á Egilsstöðum sem var mjög góð og margt áhugavert sem þar var. Þegar ég kom aftur var síðan árshátíð í vinnunni. Í þetta skiptið var árshátíðin mjög óvenjuleg, borðað og síðan farið í leikhús og eftirréttur (og drykkir) á eftir. Þetta heppnaðist bara mjög vel held ég þó ég segi sjálfur frá (enda var ég einn af skipuleggjendunum).

Það er búið að draga út hreindýr fyrir haustið, í þetta skiptið fékk ég ekkert en Magni fékk úthlutað leyfi á eina belju þannig að maður fer líklega austur á veiðar í haust.

Með eftir-páksa kveðju
Magnús


Posted by Picasa

laugardagur, janúar 12, 2008

Útvarpið...

Jæja, þá er það búið. Viðtalið tókst bara ágætlega held ég, að minnsta kosti er mér sagt að svo sé. Það á að vera hægt að hlusta á þetta í tvær vikur eftir að þátturinn fór í loftið hérna.

Kveðja úr kuldanum
Magnús

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Framhald af flugeldablaðinu...

en fyrst... GLEÐILEGT ÁR..

..og svo aftur að framhaldinu. Það var hringt í mig áðan út af greininni og ég beðinn um að koma í viðtal í þáttinn Vítt og breytt á rás 1 á morgun. Ég sagði já eins og bjáni og eftir það komst ég að því í þokkabót að þetta verður í beinni......

Þeir sem vilja hlusta á mig stama og bulla geta hlustað á rás 1 upp úr kl. 13 á morgun. Ég er strax byrjaður að svitna.....

kveðja
Magnús sveitti...

sunnudagur, desember 30, 2007

Grein í flugeldablaði Súlna

Í framhaldi af kjaftaganginum hjá mér um flugeldasölu sá ég að félagar mínir fyri norðan hafa fengið ýmislegt að gera, m.a. að koma böndum á bátinn Húna sem er að verða eitt af kennileitum Akureyrar. Eins sá ég að á heimasíðunni hjá Súlum er komið flugeldablaðið í ár en ég skrifaði þar um Eistlandsferðina sem ég fór í núna í haust og skrifaði um hér á bloggið. Blaðið má sjá á pdf-formi hér.

kveðja
Magnús

Áramót og fastir liðir

Núna nálgast áramótin eina ferðina enn. Eins og lög gera ráð fyrir hef ég varið síðustu dögum í ofát og reynt að hitta ættingja og vini til að éta og drekka meira. Jólin hafa bara verið hin ánægjulegustu og baráttan við aukakílóin hefur gengið vel, held ég hljóti að hafa bætt einhverjum við :)

Það eru tveir liðir orðnir fastir í þessu rausi mínu hér í kring um þennan árstíma, að kvarta yfir því hvað verslunarmenn (sumir) kunna lítið á dagatal og að reka áróður fyrir því hvar fólk verslar flugelda. Þegar ég skrifa þetta sit ég inni í hlýjunni og hlusta á rigninguna úti en félagar mínir úr ýmsum björgunarsveitum eru ýmist hundvotir að eltast við fjúkandi rusl eða í brjáluðu veðri upp á Langjökli til að koma jeppafólki sem þar sat fast til byggða. Þetta bætist ofan á nokkur óveður fyrir jól, slys og annað sem björgunarsveitarmenn hafa þurft að kljást við en þess á milli hafa menn reynt að koma flugeldasölunni í gang og selja eitthvað púður fyrir áramótin. Eins og fólk veit þá er þetta allt gert í sjálfboðavinnu og er fólk til taks allan sólarhringinn allt árið. Allt kostar þetta mikla peninga og krefst dýrs búnaðar sem þarf alltaf að vera í lagi. Fjármögnun þessa alls byggist eins og starfið á sjálfboðavinnu og er flugeldasala lang stærsta fjáröflunin, um 80-90% af heildartekjum hjá mörgum sveitum. Í dag eru einkaaðilar farnir að selja flugelda í samkeppni við björgunarsveitir, íþróttafélög og góðgerðarfélög sem hafa notað þetta sem fjáraflanir. Þessir einkaaðilar stinga ágóðanum í eigin vasa og minnka ágóðan hjá hinum. Ég hvet því alla sem kaupa flugelda á annað borð til að versla við björgunarsveitir, jafnvel þó í einhverjum tilfellum sé um dýrari vöru að ræða (þekki ekki hvort svo sé samt). Verst er að veðurspáin er kanski ekki beint flugeldavæn en maður má alltaf vona.

Með flugelda kveðjum
Magnús

þriðjudagur, desember 25, 2007

Gleðileg jól..

..og farsælt komandi ár
Posted by Picasa

miðvikudagur, desember 19, 2007

Jólin nálgast.....

Þar kom að því að ég fengi formlega kvörtun yfir málæðinu mínu hérna. Ég skil það að vísu vel þegar ég skoða skrifin mín hérna. Síðasta sem ég sett inn var kvörtun yfir því hvað jólin koma snemma og síðan er liðinn rúmur mánuður. Jólin eru að koma þannig að ég get farið að lýsa gleði minni með allt jólastússið :)

Það er ýmislegt búið að gerast síðan ég skrifaði alminnilegan fréttapistil hérna. Eins og sjá má hefur fjölgað í fjölskyldunni og var stúlkan skírð núna um síðustu helgi. Hlaut hún nafnið Helga Margrét Eyfeld Ingimarsdóttir. Mamma var líka í skýjunum þegar hún heyrði nafnið fyrst og ég held að eins hafi verið um mömmu Ingimars.

Í síðastu alvöru skrifum sagði ég frá Eistlandsferðinni. Núna er ég að spóla til baka á harða disknum í hausnum (sem er lítill og hægur og hefur alltaf verið slappur) til að rifja upp hvað ég hef gert mér til dundurs síðan þá. Rétt eftir að ég kom frá Eistlandi/Danmörku fór ég með mömmu og pabba til Amsterdam. Við stoppuðum þar í 3-4 daga áður en við héldum til Parísar þar sem við pabbi vorum að fara á ráðstefnu. Ferðin var fín og margt forvitnilegt var á ráðstefnunni. Eitt af því sem við lærðum vel var að frakkar eru ekki góðir í að skipuleggja. Besta dæmið var lokahófið hjá þeim sem byrjaði Scala-dinner, fór yfir í Scala-night, svo yfir í Scala-reception en var í raun Scala-fiasco í lokin (ég fór svangur og pirraður heim). Flugeldasýningin var samt flott. Ferðin var samt mjög fín, fínasta veður mestan tímann og borgin er náttúrulega alveg frábær. Amsterdam var líka frábær, róleg og notaleg.

Í október var taka tvö á landsæfingunni á suðurlandi. Það fór nokkur hópur frá Akureyri að þessu sinni og ákvað ég að slást í bílahópinn þar sem engin rústahópur fór að norðan eða austan og ég taldi að ég væri ekki nógu mikill fjallamaður fyrir spottana. Við fengum mikla æfingu í að bíða og bíða meira og smá snatt inn á milli. Fengum að vísu eitt fínt verkefni þar sem reyndi á skyndihjálp og flutning sjúklings en því miður var verkefnið búið eftir að við skiluðum fyrsta sjúklingnum af okkur. Að vísu fengum við að flytja annan sjúkling áður en hann var kominn á börur þegar við komum og áverkarnir áttu að vera þannig að við bara þurftum að keyra hann (ekki einu sinni hægt að tala við hann). Aðrir hópar en bílahópar voru að vísu hæst ánægðir með æfinguna þannig að við vorum bara óheppnir held ég.

Helgina eftir þetta komu gömlu félagarnir héðan að sunnan og slógum við Magni upp villibráðarveislu fyrir þá með rjúpu, gæs og hreindýri. Helgin heppnaðist frábærlega vel, allir fengu að prófa að skjóta úr byssu, sumir í fyrsta skipti, maturinn var alveg frábær og síðan var skemmt sér fram undir morgun eins og lög gera ráð fyrir.

Eftir þetta var ég fyrir sunnan eina helgi en áður var farið í skoðunarferð um Snæfellsnes til að skoða framkvæmdir utan okkar svæðis. Við fengum gott veður og náðum að sjá næstum alla vegi sem er búið að eiga við á því svæði undanfarin ár.

Maggi Gauti frændi kom norður eina helgi og að sjálfsögðu fékk hann að smakka hreindýr áður en við kíktum á lífið á Akureyris. Mamma og pabbi komu um daginn norður og fengu líka hreindýr (gaman að geta boðið upp á svona eðal mat). Við fórum líka í leikhús og sáum Ökutíma. Magnað leikrit sem ég mæli eindregið með. Núna er ég kominn suður í borg óttans og verð hérna um jólin og fram yfir áramót. Þar sem ég kvartaði svo mikið yfir snemmbúnum jólum fyrir .... einum og hálfum mánuðu næstum því þá verð ég að segja að Akureyringar eru mun duglegri að skreyta en höfuðborgarbúar (jólin komu bara of snemma í Rúmfatalagernum, allt mun seinna en hér fyrir sunnanm, tengsl þarna á milli?). Eftir að ég kom er ég búinn að fara í skírn, laufabrauðsgerð og fara út að borða með fjölskyldunni og næst er kanski að reyna að kaupa nokkrar jólagjafir.

Veiðitíminn fyrir gæs og rjúpu lauk með meira plássi í frystinum (átum það sem til var af fugli og ekkert bæst við) en nokkurra kílómetra göngu í misgóðu veðri. Í björgunarsveitinni er ég búinn að gera nokkra bílstjóra vitlausa með spurningum í umferðarkönnun, fara á námskeið í leitartækni og taka þátt í leitaræfingu. Ég var einn af þremur sem var tíndur á æfingunni sem var alveg ný reinsla fyrir mig. Það gékk að vísu fólk fram á mig þar sem ég lá í snjónum og skildu ekkert í því hvað ég var að gera en eftir að mér tókst að sannfæra þau um að það var í raun í lagi með mig var bara að liggja áfram og bíða eftir að nýliðarnir fyndu mig. Nýliðarnir fundu okkur alla (snjórinn sem var þarna auðveldaði þetta líka fyrir) og hjúkruðu okkur bara þokkanlega og stóðu sig vel, sérstaklega með tillit til þess að þetta voru allt aðilar í nýliðaþjálfun.

Læt þetta duga í bili, veit ekki hvort þetta verði síðasta bullið á þessu ári en ætla ekki að lofa neinu, af eða á.

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Jólin eru í DESEMBER........

Einu sinni enn var ég á ferðinni í bænum, 2 MÁNUÐUM fyrir jól og viti menn, verslunareigendur kunna ekki á dagatöl frekar en undanfarin ár. Því set ég þetta eina ferðina enn hérna inn



Fyrir ári síðan skrifaði ég þetta hér
Fyrir tveimur árum síðan skrifaði ég þetta
Ég er alveg viss um að ég láti svipaða ræðu flakka að ári, en maður verður jú einhvern veginn að komast í jólaskapið ......

mánudagur, október 22, 2007

Nýr fjölskyldumeðliimur

Í nótt fæddi Gunna hrausta stúlku, 15 merkur. Þeim mæðgum heilsast vel eins og sjá má á myndinni.

 
Posted by Picasa